Fréttablaðið - 22.03.2006, Síða 26
MARKAÐURINN
Þýsk-bandaríski bílaframleið-
andinn DaimlerChrysler greindi
frá því á mánudag að fyrirtæk-
ið ætli að innkalla 268.800 bíla
af gerðunum Dodge Durango,
Dodge Caravan, Grand Caravan
og Chrysler Town & Country
vegna galla í rúðuþurrkumót-
or bílanna. Bílarnir voru allir
framleiddir í verksmiðju fyr-
irtækisins í Auburn Hills í
Michiganríki í Bandaríkjunum
á þessu ári og því síðasta.
Gallinn felst í því að mótor-
inn á það til að bila með þeim
afleiðingum að rúðuþurrkurnar
virka ekki. Þá hefur bandaríska
bifreiðaeftirlitið jafnframt
verið látið vita af gallanum, að
því er fram kemur í tilkynningu
frá DaimlerChrysler. - jab
22. MARS 2006 MIÐVIKUDAGUR6
E R L E N T
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Sýningar á nýjustu þáttaröðinni um Sopranos-
fjölskylduna hófust í Bandaríkjunum um miðjan
mánuðinn. James Gandolfini, sem fer með hlutverk
Tonys Sopranos, fær eina milljón dollara, jafnvirði
rúmlegra 69,6 milljóna íslenskra króna, fyrir hvern
þátt. Aðrir leikarar eru sagðir horfa öfundaraugum
til hans en þeir fá um 35.000 til 50.000 dollara, jafn-
virði allt að tæplega 3,5 milljóna íslenskra króna,
fyrir sömu vinnu. Samningsstaða þeirra er hins
vegar talin hafa veikst nokkuð, m.a. vegna þess að
færri horfðu á nýjustu þáttaröðina en vonir stóðu
til.
Einungis 9,5 milljónir áhorfenda sáu fyrsta þátt-
inn í mars og er það 2,6 milljónum færri en sáu
fyrsta þáttinn fyrir tveimur árum. Aðstandendur
HBO sjónvarpsstöðvarinnar, sem framleiðir þætt-
ina, segja leikarana geta átt möguleika á launa-
hækkunum ef áhorf á þættina aukist. Þá segja
þeir ástæðuna fyrir minna áhorfi þá að á sama
tíma sýni ABC-sjónvarpsstöðin nýjustu þáttaröð-
ina af Aðþrengdum eiginkonum. Til samanburðar
horfðu 22,2 milljónir áhorfenda á fyrstu þættina
af Aðþrengdum eiginkonum, sem er 12,7 milljón
áhorfendum fleiri en sáu fyrsta Sopranos-þáttinn.
Aðstandendur þáttanna benda á að þótt fáir hafi
kveikt á imbakassanum þegar fyrsti Sopranos-þátt-
urinn fór í loftið noti margir aðrar leiðir til að horfa
á þá, s.s kaupi þeir staka þætti hjá sjónvarpsveitum
eða einfaldlega taki þá upp á myndband. Þeir sem
nýta sér þessa möguleika eru hins vegar ekki á
lista yfir þá sem sáu fyrsta þáttinn þegar hann var
frumsýndur í sjónvarpi og því hljóti þeir að vera
mun fleiri sem hafi séð þáttinn á endanum, að sögn
HBO. - jab
Aukaleikararnir
vilja hærri laun
Fá 66 milljónum króna minna fyrir hvern þátt en aðalleikar-
inn í sjónvarpsþáttunum um Sopranos-fjölskylduna.
JAMES GANDOLFINI Hann þarf vart að hafa áhyggjur af fjár-
hagnum eftir leik í þáttunum um Sopranos-fjölskylduna.
Forsvarsmenn Hróarskeldu-
hátíðarinnar hafa látið jafnvirði
tæpra 159 milljóna íslenskra
króna renna til ýmissa góðgerða-
og hjálparsamtaka í Danmörku
af andvirði miðasölu á hátíð-
inni á síðasta ári. Rúmlega
65.000 manns keyptu miða á
Hróarskelduhátíðina í fyrra en
búist var við 10.000 fleirum og
óttuðust forsvarsmenn hátíðar-
innar að hún myndi skila tapi.
Hróarskeldusamtökin, sem
standa að tónlistarhátíðinni,
högnuðust um 229.000 dansk-
ar krónur, tæpar 2,6 milljón-
ir íslenskra króna, á miðasölu
hátíðarinnar. Þá seldust matvör-
ur, drykkir og ýmislegt annað
á hátíðinni fyrir 155 milljónir
danskra króna.
Undirbúningur er kom-
inn á fullt skrið fyrir næstu
Hróarskelduhátíð sem haldin
verður dagana 29. júní til 2. júlí
í sumar. Á henni koma fram 160
tónlistarmenn og hljómsveit-
ir, m.a. Bob Dylan, Sigur Rós,
Tool, Arctic Monkeys og Roger
Waters, fyrrum meðlimur Pink
Floyd, en hann mun flytja Dark
Side of the Moon í heild sinni.
Sama verk flytur hann í Egilshöll
í Grafarvogi í Reykjavík 12. júní
næstkomandi.
Búist er við að 75.000 gestum
á hátíðina í ár. - jab
Góðgerðasamtök fá styrk
FRÁ HRÓARSKELDUHÁTÍÐINNI 2005
Neysla á léttvíni og sterkum
drykkjum hefur aukist mikið
í Noregi en bjórneysla hefur
dregist saman. Í útreikningum
Norsku hagstofunnar um neyslu
áfengis í landinu, sem birtar
voru í síðustu viku, eru ekki tölur
um neyslu heimabruggs, áfeng-
is sem smyglað er til landsins og
þess sem ferðamenn koma með
inn í landið heldur aðeins þess
sem keypt er í landinu.
Samkvæmt upplýsingum
Norsku hagstofunnar skoluðu
Norðmenn niður 61 lítra af létt-
víni á síðasta ári en það er 5,5
prósentum meira en árið 2004.
Sala á sterkum áfengum drykkj-
um jókst um 3 prósent á milli
ára og nam 11,9 milljónum lítra.
Sala á bjór dróst hins vegar
saman um tæpt prósent og var
neyslan 2,3 milljónir lítra. Bjór
trónir á toppnum yfir neyslu
áfengra drykkja í Noregi en
Norðmenn keyptu 247 milljón-
ir lítra af bjór á síðasta ári.
Rauðvín fylgir fast á eftir á list-
anum yfir vinsæla áfenga drykki
í Noregi. Ástæðan fyrir aukinni
léttvínsneyslu Norðmanna ligg-
ur ekki ljós fyrir en að sögn
norska dagblaðsins Aftenposten
hafa Norðmenn tekið í auknum
mæli upp venjur íbúa í Mið-
og Suður-Evrópu hvað léttvíns-
neyslu varðar. - jab
Aukin vínneysla í Noregi
LÉTTVÍNSFLÖSKUR Í VERSLUN
Ríkisstjórn Bretlands greindi frá
því á mánudag að lægstu laun í
landinu muni hækka í október.
Tímakaup yngsta aldurshópsins,
16 og 17 ára, hækkar um 30 pens
og verður 3,30 pund eftir breyt-
inguna. Lægstu laun 18 til 21
árs hækka um 20 pens og verða
4,45 pund eftir breytinguna. Þá
hækka lægstu laun 22 ára og
eldri um 30 pens, tæp 6 prósent,
og muni lægsta tímakaupið verða
5,35 pund, jafnvirði rúmra 654
króna, eftir hækkunina.
Launahækkanirnar eru sagðar
fara illa í stjórnendur fyrirtækja
í Bretlandi sem segja þetta gera
fyrirtækjum erfitt fyrir. Hins
vegar líkar verkalýðsforingjum
vel við hækkun lægstu launa en
félögin hafa mikil áhrif innan
breska Verkamannaflokksins.
Gordon Brown, fjármálaráð-
herra Bretlands, kynnir fjár-
hagsáætlun ríkisstjórnarinnar í
breska þinginu í dag. - jab
Lægstu laun munu
hækka í Bretlandi
GORDON BROWN Vill hækka lægstu laun
í Bretlandi.
Bílar
innkallaðir
DODGE DURANGO Gallar voru í rúðu-
þurrkumótor bíla af þessari gerð.