Fréttablaðið - 22.03.2006, Síða 52
22. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR28
Við eigum afmæli…
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
!
menning@frettabladid.is
Peter Anderson er dansari
hjá Íslenska dansflokknum
og kennir ungum mönnum
ný spor. Nemendur hans
sanna að strákar geta svo
sannarlega dansað.
Áhugasamir strákar úr Hagaskóla,
Víkurskóla og Austurbæjarskóla
mæta í stúdíóið til Peters og félaga
hans úr dansflokknum en þetta er í
annað skipti sem dansflokkurinn
stendur fyrir námskeiði fyrir
stráka í 9. og 10. bekk. Þátttakend-
urnir eru á annan tug og Peter
segir að orkan sé frábær. „Þetta
gengur mjög vel, þeir eru með
fínar hreyfingar og við höfum náð
miklum árangri á skömmum tíma,“
segir Peter. Námskeiðið stendur í
þrjá daga en í dag mun fyrri hópur-
inn sína afrakstur námskeiðisins í
skólunum þremur.
Lærdómsríkt fyrir alla
Peter hefur kennt mörgum strák-
um í gegnum tíðina en hann segir
að það séu ákveðnir fordómar
gagnvart dansi meðal stráka því
þeir haldi að það sé of stelpulegt
að dansa. Þegar þeir komi hins
vegar og kynnist dansinum skipti
þeir um skoðun. „Við höfum unnið
vel saman og það gefur nemend-
unum mikla hvatningu,“ segir
Peter en hópurinn í ár er mjög
fjölbreyttur, sumir hafa þjálfun
t.d. úr öðrum íþróttum en aðrir
ekki. „Þeir eru alls ekki feimnir,
þeir völdu að koma hingað og vit-
anlega hjálpar það en um leið og
þeir mæta gefa þeir allt sem þeir
eiga.“ Peter segir að það sé einnig
mjög gefandi fyrir kennarana að
vinna með svona kraftmiklum
hóp. „Mér finnst mikilvægt og
gaman að færa dansinn út í sam-
félagið,“ útskýrir Peter og bætir
við að þetta sé allt önnur nálgun
en að vera á sviðinu þar sem dans-
arinn er í ákveðinni fjarlægð frá
áhorfendunum.
Að byrja
Peter hefur námskeiðið á því að
kynna strákana fyrir dansinum og
vinnu dansarans og hita þá upp.
„Ég sýni þeim nokkrar æfingar
sem við vinnum með, þeir gera
síðan sínar eigin hreyfingar og
síðan blöndum við þessu saman
og gerum úr því verk sem þeir
flytja sjálfir,“ segir Peter. Verkið
sem strákarnir munu flytja bygg-
ir að hluta til á verki eftir dans-
höfundinn Rui Horta sem hverfist
um hugmyndina um stríð og
blekkinguna á bak við friðarvilj-
ann. „Það er áhugavert að fylgjast
með þeim, þeir eru orkumiklir
strákar sem tengja við átökin,
stríðsleikina og öskrin,“ segir
Peter og áréttar að það sé ekkert
erfiðara að fá stráka til að koma
fram heldur en stelpur. „Orkan og
andinn er sá sami, allar þessar
fyrirframgefnu hugmyndir um að
strákarnir geti það ekki því þeir
hafi ekki dansað áður og þeir séu
feimnir er mikill misskilningur,
strákarnir láta bara vaða,“ segir
kennarinn.
Ólíkar leiðir
Peter byrjaði sjálfur að dansa
fremur seint en hann segir að
margir strákar í nútímadansi
byrji ekki fyrr en um tvítugt. „Ég
hafði þessa orku, það kallar fram
minningar fyrir mig og hina strák-
ana í hópnum að hitta þessa ungu
menn. Við erum allir á sama báti
svo orkan er góð,“ segir Peter.
Hann segir það fara eftir áhuga-
sviðinu hvaða dansstíl fólk velur
en nútímadansinn sé mjög opinn.
Hann bætir því að stundum sé
gott að hafa ekki byrjað of
snemma því þá búi enn svo mikið
frelsi í dönsurunum og þeir velji
fremur að dansa af einskærum
áhuga og vilja.
kristrun@frettabladid.is
KL. 12.00
Þorvaldur Kristinsson fjallar um
þætti í lífssögum íslenskra homma
á Félagsvísindatorgi Háskólans á
Akureyri og reifar spurningar um
fjölskyldusambönd og samskipti
samkynhneigðra. Erindi sitt flyt-
ur hann í stofu L201 á Sólborg við
Norðurslóð.
> Ekki missa af...
Richard Vine, ritstjóra listatíma-
ritsins Art in America sem flytur
fyrirlestur í fjölnotasal Hafnar-
hússins um sýningu Guðjóns
Bjarnasonar, AFsprengi HUgsun-
ar, kl 17.00.
Yfirlitssýningu á verkum Stein-
unnar Sigurðardóttur fatahönn-
uðar í Gerðubergi.
Erindi Hallgríms Helgasonar um
íslenskar bókmenntir og eigin
verk í Lögbergi, stofu 101, kl.
20.00. Samkoman er á vegum
Félags erlendra stúdenta við
Háskóla Íslands og Alþjóðaskrif-
stofu HÍ. Erindið og umræður
fara fram á ensku.
Kristján Hreinsson rithöfundur
er í forsvari fyrir Fjórmenninga-
klíkuna sem heldur Hagyrðinga-
kvöld á Næsta bar í kvöld. Þessir
hagmæltu félagar leiða nú saman
hesta sína í fjórða sinn og ætla að
skemmta gestum með kveðskap
en auk Kristjáns munu Ómar
Ragnarsson, Ragnar Ingi Aðal-
steinsson og Sigurjón V. Jónsson
koma fram.
„Þetta er ekki oft gert hérna
í borginni,“ útskýrir Kristján en
síðast þegar þeir félagar héldu
hagyrðingakvöld á Nasa mættu
um 650 manns svo skáldið bendir
á að mikill áhugi hljóti að vera
á vísnakveðskap. „Þetta er alltaf
mjög frjálst í forminu hjá okkur,“ segir Kristján sem
sjálfur kveðst semja nokkrar vísur í hverri viku sem
telji líklega 400-500 vísur á ári. „Ég
safna yfirleitt öllu sem ég sem og
eitt sinn tók ég saman limrurnar,
ætli þær hafi ekki verið yfir 1.000
talsins,“ bætir hann við en áréttar
að hann hafi nú grisjað burt þær
sem „voru andvana fæddar“ og þá
fækkaði eitthvað í safninu.
Kristján byrjaði ungur að setja
saman vísur og ætlaði sér alltaf
að verða rithöfundur og skáld.
„Það hafa allir brageyra, það er
bara misjafnt hvernig fólk nýtir
sér það og heldur því við,“ segir
hann. Kristján er þegar farinn að
undirbúa sig fyrir kvöldið, þar sem
búast má við skensi og hagleiks-
smíðum um herinn og önnur mál
sem brenna á fólki þessa dagana.
Hagyrðingakvöldið hefst stundvíslega kl. 21.00.
Kveðskapur á Næsta bar
KRISTJÁN HREINSSON SKÁLD
Orkan og áhuginn
PETER ANDERSON OG UNGIR DANSARAR Á
æfingu hjá upprennandi dönsurum úr Haga-
skóla, Austurbæjarskóla og Víkurskóla.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI