Fréttablaðið - 22.03.2006, Síða 54
22. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR30
HÆFILEIKARÍKUR Þórður Ingi Jónsson
sýndi verk á sýningunni. Hann þarf ekki að
sækja hæfileikana langt því móðir hans er
Steinunn Þórarinsdóttir listakona.
Myndlistaskólinn í
Reykjavík opnaði sýn-
ingu á verkum nemenda
í Gallerý Tukt í Hinu
Húsinu síðastliðinn
laugardag. Á sýningunni
kenndi margra grasa og
var sköpunarkrafturinn
allsráðandi.
Á sýningunni voru sýndar lág-
myndir úr jarðleir þar sem nem-
endur túlkuðu áhrifamikla náttúru
Reykjaness þar sem áhrifa frá
hrauninu, hverunum og brimi
hafsins voru ríkjandi. Frosti Örn
Gnarr Gunnarsson sýndi vídeó-
verk sem hann gerði í samvinnu
við Hilmi Berg Ragnarsson. Verk-
ið ber nafnið Sleikur fyrir jafn-
rétti.
„Við létum hvítar og svartar
búddastyttur ofan í bleika gifs-
blöndu en stytturnar voru í sleik.
Með þessu vildum við vekja athygli
á trúarjafnrétti, kynjajafnrétti og
samkynhneigð,“ segir Frosti Örn
sem hefur stundað nám við Ker-
amikdeild Myndlistaskóla Reykja-
víkur. Hann stefnir á inntöku í
Listaháskóla Íslands og ætlar að
leggja myndlistina fyrir sig.
Hlín Reykdal stundar nám á
hönnunarbraut Iðnskólans. Hún
var með sérstakt verk á sýning-
unni, beinagrind klædda fata-
skúlptúr. Hún var mikið að hugsa
um að láta verkið heita Hið full-
komna módel en hætti svo við það.
„Ég hef mikið verið í því að gera
fataskúlptúra, ýmist úr gifsi, papp-
ír eða grysju. Núna ákvað ég að
fara aðra leið og valdi að gera
skúlptúrinn utan um beinagrind,“
segir Hlín. Þegar hún er spurð
hvers vegna segir hún að það sé
líklega til að vekja athygli á öfgun-
um.
„Fyrirsætur eru komnar út í
svo miklar öfgar, verða alltaf
mjórri og mjórri sem gengur nátt-
úrlega ekki.“ ■
IÐANDI DÝRÐ SKÖPUNARINNAR Arna Óttarsdóttir og Hrafnhildur Helgadóttir á sýningunni
í Hinu húsinu.
GNARR Í ÖÐRU VELDI Frosti Örn Gnarr
Gunnarsson er hér ásamt stjúpföður sínum
Jóni Gnarr. Frosti gerði vídeóverk ásamt
vini sínum sem þeir félagar sýndu á sýning-
unni. Trúin er þeim Gnarr feðgum ofarlega í
huga en Frosti sýndi búddastyttur í sleik.
Búddastyttur í sleik og
beinagrindur í fötum
BEINAGRIND Í FÖTUM Hlín Reykdal sýndi
þetta frumlega verk á sýningunni.
Við blásum á kerti fyrir hvert ár sem við höfum verið hér í Kópavogi. Þessi tími hefur einkennst af ljúfri sambúð og
ánægjulegum samskiptum við viðskiptavini okkar og Kópavogsbúa alla. Við hlökkum til næstu 50 ára!
Starfsfólk SPK
Dansnámskeið með tveimur bresk-
um kennurum fer fram í Sporthús-
inu dagana 24. mars til 26. mars.
Þetta er í annað sinn sem nám-
skeiðið er haldið en rúmlega 100
manns sóttu fyrra námskeiðið.
„Þetta gekk rosalega vel í fyrra
og fólk var að læra mjög mikið,“
segir Sigrún B. Blomsterberg,
danskennari og atvinnudansari,
sem stendur fyrir námskeiðinu.
„Þetta er fyrir fólk á öllum aldri
en ætli meðalaldurinn sé ekki sex-
tán til sautján ára.“ Hún segir að
kennararnir séu mjög færir og
meðal annars hafi Sisco verið val-
inn besti danshöfundurinn á Carn-
ival Showcase-danskeppninni í
Bretlandi í fyrra. „Þetta námskeið
er eitthvað sem fólk sem hefur
áhuga á dansi má ekki missa af,“
segir Sigrún.
Kennararnir, sem heita Franc-
isco Gomez og Kimberley Taylor,
koma frá London og eru
mjög þekktir danshöf-
undar úti í heimi. Þau
hafa unnið með stór-
stjörnum á borð við
PussycatDolls, Pink,
Sugababes, Kanye West,
Geri Halliwell og
Shaggy. Þeir hafa einnig
dansað í og samið fyrir
MTV-verðlaunahátíð-
ina, PopWorld, Smash
hits-Wembley, Bounce
HipHop shows og fyrir
þekktar auglýsingar eins og Dies-
el, PlayStation, McDonalds, O‘Neal
og Speedo.
Þau munu kenna allt það heit-
asta í dansheiminum í dag, blöndu
af hip hop, street, fönk,
djass og „quick-melt“
sem er nýjasta nýtt. Um
er að ræða sex tíma, þar
sem hver er ein og hálf
klukkustund. Verður
nýr dans kenndur í
hverjum tíma. Skráning
á námskeiðið er í síma
691 1390 eða 863 3757.
Allt það heitasta í dansinum
SISCO Breski danskennar-
inn verður hér á landi um
næstu helgi.
SIGRÚN BLOMSTERBERG Sigrún stendur
fyrir dansnámskeiði í Sporthúsinu í annað
sinn.