Fréttablaðið - 09.04.2006, Qupperneq 29
Sumarstörf og framtíðarstörf hjá Félagsþjónustunni í
Hafnarfirði. Hér er um að ræða störf við félagslega
heimaþjónustu og félagslega liðveislu. Í boði er sveigjan-
legur starfstími og starfshlutföll eru samkomulagsatriði.
Bæði störfin gera kröfu til jákvæðs viðmóts, mannúðlegra
viðhorfa og góðra hæfileika til mannlegra samskipta.
Sjálfstæði og frumkvæði í starfi eru miklir kostir.
Við leitum að einstaklingum með félagsliðamenntun eða
aðra félagslega menntun, reynslu eða mikinn áhuga á
störfunum.
Félagsleg heimaþjónusta er veitt á hefðbundnum
vinnutíma en félagsleg liðveisla utan venjulegs vinnutíma.
Laun fara eftir kjarasamningi Hafnarfjarðarbæjar og
Verkalýðsfélagsins Hlífar.
Upplýsingar um störfin veita Sjöfn Guðmundsdóttir full-
trúi heimaþjónustudeild (félagsleg heimaþjónusta og
Guðrún Þ. Ingólfsdóttir félagsráðgjafi (félagsleg liðveisla) í
síma 585 5700
Umsóknum skal skila til
Félagsþjónustunnar í Hafnarfirði
Strandgötu 33
220 Hafnarfirði
FÉLAGSÞJÓNUSTAN
Í HAFNARFIRÐI
Kennarar
Skóli með áherslu á þróunarstarf
og nýbreytni í starfsháttum auglýsir
eftir öflugum kennurum til starfa
Kennara vantar til starfa við Sunnulækjarskóla á Selfossi
næsta haust. Sunnulækjarskóli var stofnaður haustið
2004. Skólinn vex ört og verður 10 árganga grunnskóli
innan tíðar. Næsta skólaár verða um 250 nemendur í
1. – 6. bekk við skólann.
Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta
kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu
kennara, ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem
að skólastarfinu koma.
Umsjónarkennara vantar á yngsta- og miðstig. Einnig
vantar kennara til kennslu í list- og verkgreinum, sér-
staklega tónmennta- og heimilisfræðikennslu. Þá vantar
íþróttakennara til starfa.
Umsækjandi þarf að hafa kennarapróf, góða skipulags-
hæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum.
Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi eru
mikilvægir eiginleikar.
Umsókn fylgi greinargerð þar sem fram komi hver er
reynsla og menntun umsækjanda og hvaða sýn hann
hefur á skólastarf, nýbreytni og þróunarstarf.
Frekari upplýsingar má finna á vef skólans
http://www.sunnulaekjarskoli.is og hjá skólastjóra,
Birgi Edwald í síma 480-5400 eða tölvupósti,
birgir@sunnulaek.is.
Umsóknarfrestur er til 17. apríl 2006.
Umsókn sendist til skólastjóra Sunnulækjarskóla,
Norðurhólum 1, Selfossi.
Skólastjóri
Grunnskólinn í Grindavík
lausar kennarastöður
Við leitum að áhugasömum kennurum
til eftirfarandi starfa næsta skólaár.
• umsjónarkennurum á yngsta- og miðstig
• sérkennara
• myndmenntakennara í hlutastarf
• danskennara í hlutastarf
• heimilisfræðikennara í hlutastarf
Grindavík er blómlegt sveitarfélag með um 2700 íbúa í aðeins 50
km. fjarðlægað frá höfuðborginni. Nemendur eru 500 í 1.-10. bekk.
Í skólanum er unnið framsækið starf af áhugasömu starfsfólki. Unnið
er að innleiðingu uppbyggingastefnunnar - uppeldi til ábyrgðar.
Nánari upplýsingar er að finna um skólann á heimasíðu hans
http://skolinn.grindavik.is
Upplýsingar veitir skólastjóri í símum 420-1150 og 660-7320
(netfang gulli@grindavik.is.) Umsóknarfrestur er til 20. apríl.
Skólastjóri
ATVINNA
SUNNUDAGUR 9. apríl 2006 7