Fréttablaðið - 10.04.2006, Síða 8
10. apríl 2006 MÁNUDAGUR
5 100 300 www.apollo.is
Langferðir ehf., Holtasmára 1, 201 Kópavogur
Hjón m/2 börn, 2ja-17 ára,
1. vika, 4. júlí:
38.900 kr.
á mann með sköttum
Búlgaría
Besta verðið okkar í sólina
Hjón m/1 barn, 2ja-11 ára,
1 vika, 5. sept.:
35.440 kr.
á mann með sköttum
Flugfargjald, 1 vika, 13. júní:
29.900 kr.
með sköttum
Flugfargjald, 1 vika, 12. sept.:
28.900 kr.
með sköttum
Hjón í júníor-svítu,
1. vika 27. júní:
55.100 kr.
á mann með sköttum
5 manna fjsk. (3 börn, 2ja-17
ára), 2 vikur, 22. ágúst:
43.100 kr.
á mann með sköttum
Par í 2ja manna herbergi,
1 vika, 13. júni:
45.800 kr.
á mann með sköttum
Hjón m/2 börn, 2ja-17 ára, 1.
vika 12. sept.:
33.150 kr.
á mann með sköttum
Tveir í 2ja manna herb.,
1 vika, 12. sept:
40.300 kr.
á mann með sköttum
Reykjavík: Ártúnshöfði og
Fossvogur.
Hafnarfjörður: Lækjargata
Akureyri: Leiruvegur
Það þarf ekki að vera
dýrt að skreppa í sólarfrí.
Ekki einu sinni alla leið
til Svartahafsins þar sem
sólin er í öndvegi...
...og spennandi mannlif er hvar
sem litið er. Dæmið verður ennþá
skemmtilegra þegar við bætist
einstaklega hagstætt verðlag. Á
Sunny Beach, stærsta sólarstað
Búlgaríu, bíða þín islenskir
fararstjórar sem bjóða upp á
fjölbreyttar kynnisferðir við allra
hæfi. Verðdæmin í auglýsingunni
miðast við netbókun og að ferð sé
til við bókun.
Bæklingar á
Esso-stöðvum:
NISSAN MICRA
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mán – fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
12
12
ÖLLU MICRA
VERÐUR ÞAÐ EKKI!
*Miðað við 20% útborgun og bílasaming Lýsingar í 84 mánuði.
Nissan Micra 5 dyra
NÝ MICRA OG ÞÚ BORGAR
AÐEINS 18.112 KR. Á MÁNUÐI!
Beinskiptur, 6 diska geislaspilari, lyklalaus,sjálfvirkar rúðuþurrkur og mjög sparneytin!
Verð aðeins 1.490.000 kr.
STJÓRNMÁL Samfylkingin á Akur-
eyri vill koma á fót Akureyrar-
stofu sem hefði það hlutverk að
markaðssetja bæinn innan lands
og utan. Markmiðið yrði að laða
fjárfesta, fyrirtæki, stofnanir og
ferðamenn til Akureyrar og fjölga
þannig störfum í bænum.
Hermann Jón Tómasson, efsti
maður á framboðslista Samfylk-
ingarinnar, segir ekki hafa verið
hugað nægilega vel að markaðs-
setningu bæjarins á fyrirtækja-
markaði til þessa. „Þeim fyrir-
tækjum sem vilja flytja starfsemi
sína til Akureyrar standa nú þegar
til boða ýmsar ívilnanir. Slíkan
stuðning við nýsköpun atvinnulífs
bæjarins þarf að kynna með mark-
vissum hætti og það á að vera eitt
af verkefnum Akureyrarstofu.“
Iceland Express hóf í vetur
beint millilandaflug til og frá
Akureyri og Hermann segir flugið
opna ýmsa möguleika varðandi
fjölgun ferðamanna. „Bæjarfélag-
ið á að koma með beinum hætti að
markaðssetningu Akureyrar á
erlendri grundu og styðja þannig
við ferðaþjónustuna í bænum,“
segir Hermann. - kk
Markaðssetning Akureyrar innan lands og utan:
Styrkir atvinnulífið í bænum
HERMANN JÓN TÓMASSON Hermann segir
að huga þurfi betur að markaðssetningu
Akureyrar á fyrirtækjamarkaði.
KAÍRÓ, AP Íraskir mannræningjar
hóta að myrða tvo þýska verk-
fræðinga sem þeir tóku í gíslingu
fyrir rúmum tveimur mánuðum,
sleppi Bandaríkjamenn ekki föng-
um úr haldi. Mannræningjarnir
gáfu út myndband á netinu þar
sem Þjóðverjarnir eru sýndir og
biðja sér griða.
„Okkur hefur verið haldið hér
í meira en sextíu daga og taug-
arnar þola þetta ekki lengur,“
segir annar mannanna. „Hjálpið
okkur, við biðjum ykkur.“ Mynd-
bandinu fylgdu skilaboð sem
sögðu þetta vera síðasta tækifæri
Þjóðverjanna, en enginn frestur
var gefinn. Fram til þessa hafði
ekkert spurst til mannanna síðan
í lok janúar, rétt eftir að þeim var
rænt. Þá var þýskum yfirvöldum
gefinn 72 stunda frestur til að
loka sendiráði sínu í Bagdad,
draga öll sín fyrirtæki úr landinu
og hætta öllu samstarfi við ríkis-
stjórn Íraks, ella yrðu mennirnir
teknir af lífi.
Fjórum gíslum frá Vesturlönd-
um var sleppt úr haldi mannræn-
ingja í Írak í mars, en einn var tek-
inn af lífi. Talið er að um fjörutíu
útlenskir gíslar séu í haldi mann-
ræningja í Írak. - bs
Tugir erlendra gísla í haldi íraskra mannræningja:
Hóta þýskum gíslum lífláti
ÞÝSKU GÍSLARNIR Ekkert hafði spurst til þeirra síðan í janúar, rétt eftir að þeim var rænt.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP