Fréttablaðið - 10.04.2006, Page 13
MÁNUDAGUR 10. apríl 2006 13
Iðnaðarmenn á Húsavík halda til
Reyðarfjarðar um næstu helgi til
að kynna sér störf starfsbræðra
sinna við byggingu álversins í
bænum. Bandaríska stórfyrirtækið
Alcoa, sem er að láta reisa álver í
Reyðarfirði, hefur til skoðunar að
reisa annað álver við Húsavík.
Húsvískir iðnaðarmenn ætla að
hafa vaðið fyrir neðan sig, ef og
þegar kemur til framkvæmda hjá
þeim.
Fréttamiðillinn skarpur.is greinir
frá þessu.
Kynna sér
smíði álvers
ÁLVER BYGGT Iðnaðarmenn á Reyðarfirði
eiga von á heimsókn frá húsvískum starfs-
bræðrum um næstu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nautalund var í aðalrétt á árshátíð
Landssambands kúabænda sem
haldin var á Broadway á laugar-
dag. Var hún borin fram á kartöflu-
mósaíki með rauðvínsgljáa.
Sjávarréttasúpa með tígrisrækju
og risahörpuskel á spjóti var í
forrétt og á eftir var boðið upp á
súkkulaðibananaís í sykurkörfu
með ferskum ávöxtum og sósu-
tvennu.
Fordrykkur var í boði KB banka
og VÍS bauð upp á kaffi og koníak.
Davíð Oddsson seðlabanka-
stjóri og Guðni Ágústsson land-
búnaðarráðherra voru sérstakir
gestir árshátíðarinnar en veislu-
stjórn var í höndum Gísla Einars-
sonar frétta- og dagskrárgerðar-
manns. ■
Naut á borðum
kúabænda
NAUTIÐ ELDUR Kúabændur gerðu sér glað-
an dag á árshátíð á Broadway um helgina.
„Á áramótum var ákveðið að rækju-
vinnslan hætti, ég var verkstjóri
þar og eitthvað varð að gera. Ég sá
ekki margt sem féll að mínum
áhuga. Ég var búinn að vinna í mörg
ár við bílasprautun og taldi svona
þjónustu vanta hérna á svæðið,
þannig að ég lét mig bara hafa það
og skellti mér í þetta,“ segir Jónas
Skúlason, sem hefur opnað
bílamálunina Minney á Langeyri í
Súðavík.
Opnunarveislan var á föstudags-
kvöldið. Forsvarsmenn trygginga-
félaga, velunnarar fyrirtækisins og
væntanlegir viðskiptavinir mættu
á svæðið. Þar sýndi Jónas þeim
meðal annars fullkominn sprautu-
klefa, sérpantaðan frá Ítalíu.
„Ég hefði aldrei farið út í þetta
verkefni nema af því að hreppur-
inn bauð húsnæðið. Mér hefði bara
ekki komið það til hugar. Þetta er
frábær framkvæmd hjá hreppnum
og sveitarstjórinn á hrós skilið,“
segir Jónas um þá ákvörðun Súða-
víkurhrepps að stofna félag um
byggingu tveggja atvinnuhúsnæða
á Langeyri. Hann hafi náð góðum
samningum um leigu á húsnæðinu:
„Þeir gefa mér aðlögunartíma áður
en ég greiði leigu.“
Ómar Már Jónsson sveitarstjóri
segir hreppinn hafa farið út í
byggingarframkvæmdina til að
auðga atvinnulífið í Súðavík.
Hugmyndin sé að reka fyrirtækið
um nýju atvinnuhúsin tvö á núlli á
tveimur árum. Hann segir marg-
þætta starfsemi rúmast í húsunum
og nefnir að núna sé verið að koma
upp aðstöðu fyrir skrifstofur. Í öðru
húsinu fari einnig fram smíða-
kennsla og slökkviliðið hafi þar
aðstöðu.
Jónas segir keppinauta í bíla-
sprautun fyrir vestan taka fyrir-
tæki hans fagnandi, því þeir anni
ekki eftirspurninni í bílamáluninni.
„Það er alveg upp í þriggja mánaða
bið eftir viðgerð, þannig að full
þörf var á þjónustunni.“ Viðskipta-
vinirnir geti einnig kæst því sam-
keppnin muni væntanlega hafa
einhver áhrif á verðið: „Menn þurfa
samt sitt til að lifa.“ Jónas er fullur
tilhlökkunar að takast á við verk-
efnið. „Mig vantar bara réttinga-
mann og ég hvet áhugasama að
hafa samband.“ - gag
Óskar eftir réttingamanni í Súðavík
JÓNAS VIÐ NÝJA MÁLNINGARKLEFANN Þriggja mánaða bið hefur verið eftir bílamálun í
Ísafjarðarbæ. Súðvíkingurinn Jónas Skúlason ætlar að breyta því. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN