Fréttablaðið - 10.04.2006, Side 27
MÁNUDAGUR 10. apríl 2006 7
Bekkur við fótgafl er til ýmissa
hluta nytsamlegur.
Tilvalið er að koma bekk fyrir við
fótgaflinn á rúminu, til að leggja
rúmteppið á yfir nóttina. Bekkur-
inn nýtist einnig sem sæti þegar
maður þarf að tylla sér til að taka
af sér skóna eða klæða sig í sokka.
Þar að auki getur mikil prýði verið
af fallegum bekk í svefnherberg-
inu. Bekkir fást víða og er jafnvel
hægt að notast við garðbekki með
því að setja á þá bólstraða sessu.
Einnig er hægt að sérsmíða bekk
og láta bólstra hann í stíl.
Bekkur í stíl við rúmið
Gott er að tylla sér á bekkinn til að taka af
sér skóna eða klæða sig í sokka.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
IKEA INNKALLAR GALLAÐA TASSA
OG SNIGLAR BARNARÚMBOTNA
SEM SELDIR VORU Í ÁGÚST 2005 OG
SÍÐAR.
IKEA innkallar rúmbotna í TASSA og
SNIGLAR barnarúmum af stærðinni 55
sentimetrar sinnum 112 sentimetrar
sem keypt hafa verið í ágúst 2005 eða
síðar.
Þeir viðskiptavinir sem keypt hafa
TASSA eða SNIGLAR barnarúm sem
hafa merkinguna „ID NO 15333“ og
„Made in Poland“ á rúmbotninum eru
beðnir um að skila rúmbotninum til
IKEA og fá afhentan nýjan. Mistök voru
gerð í framleiðslu rúmbotnanna hjá
einum birgja IKEA og eru botnarnir því
ekki límdir saman á réttan máta. Því
gætu þeir ekki fullnægt þeim álags-
prófunar kröfum sem gerðar eru.
Vitað er að sex þessara rúma voru
seld á Íslandi á umræddu tímabili en
engar kvartanir hafa þó borist vegna
þeirra.
Frekari upplýsingar gefur
þjónustudeild IKEA.
Gölluð barnarúm
Nokkur rúm frá TASSA og
SNIGLAR hafa verið seld á Íslandi
en rúmbotnar í þeim gætu verið
gallaðir og ekki staðist álagspróf-
unarkröfur.
Amerock höldurnar fást í
versluninni Brynju.
Amerísku höldurnar frá Amerock
voru mjög vinsælar á sínum tíma
og vegna mikillar eftirspurnar eru
þær nú aftur fáanlegar á Íslandi.
Amerísku höldurnar eru með
þriggja tommu bili milli gata eða
76 mm og því hefur verið erfitt
fyrir þá sem hafa ætlað að skipta
út gömlum höldum að fá nýjar
sem passa, þar sem evrópskar
höldur eru með öðru bili. Amerock
höldurnar koma sér því vel fyrir
þá sem þurfa að skipta út amerísk-
um höldum og úrvalið af þeim er
mikið í Brynju.
Amerískar
höldur
Mikið úrval er af Amerock höldum í verslun-
inni Brynju.
Vextir af lánum Íbúðalánasjóðs
hækkuðu 1. apríl 2006 og nema nú
4,60 prósentum af lánum með upp-
greiðsluþóknun og 4,85 prósentum
af lánum án uppgreiðsluþókn-
unar.
Hækkunin er niðurstaða útboðs
frá 30. mars. Alls bárust tilboð að
nafnverði 8,4 milljarðar króna.
Ákveðið var að taka tilboðum í
íbúðabréf HFF150644 að nafnvirði
2,2 milljarðar króna og í
HFF1560914 að nafnverði.
Vextir hærri
Vextir af lánum Íbúðalána-
sjóðs hækkuðu 1. apríl.
Vextir af lánum Íbúðalánasjóðs nema nú
4,60 og 4,85 prósentum. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4