Fréttablaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 6
6 11. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR
www.urvalutsyn.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
3
22
04
04
/2
00
6
49.240*kr.
Verð frá:
Netverð í tvíbýli á Hótel Burlington.
29.900 kr.
Verð á flugsæti:
Tryggðu þér bestu
kjörin og bókaðu strax.
Páskaferð
13.- 16. apríl
Innifalið: Flug, flugvallarskattur, gisting með
morgunverði í 3 nætur og íslensk fararstjórn.
*
Aðeins 2 klst. flug í beinu leiguflugi með Loftleiðum Icelandic.
Ekta kráarstemmning, freyðandi Guinnes og frábærar verslanir.
Spáð er mildu og björtu veðri í Dublin um páskana.
Beint leiguflug
Allra sí
ðustu
sætin í
páskaf
erðir!
Örfá sæ
ti laus!
Dublin
Gistiheimili / Hótel
á höfuðborgarsvæðinu óskast !
- Allt að 30 herbergi
- Allar hugmyndir skoðaðar
Upplýsingar gefur Gunnar
hjá REMAX Heimili og Skip
Sími: 4-200-800
Gsm: 844-0040
Gunnar Björn
Sölufulltrúi
Anna Linda Bjarnadóttir
hdl.lögg.fasteignasali
550 5000
Hringdu ef blaðið berst ekki
- mest lesið
KJÖRKASSINN
Þekkirðu einhvern sem þú telur
að eigi við spilafíkn að stríða?
Já 46,1%
Nei 53,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ætlarðu að sækja kirkju um
páskana?
Segðu þína skoðun á Vísir.is.
UNGVERJALAND, AP Lítill hægri-
flokkur, sem rétt svo fékk nægt
fylgi til að fá úthlutað þingsætum
í fyrri umferð þingkosninga í Ung-
verjalandi á sunnudag, kann að
hafa það í hendi sér hvort miðju-
vinstristjórnin sem haldið hefur
um stjórntaumana undanfarið
kjörtímabil geri það einnig á því
sem nú er að hefjast.
Ungverski lýðræðisvettvang-
urinn, MDF, hefur neitað að heita
miðju-hægriflokknum Fidesz, for-
ystuflokki núverandi stjórnarand-
stöðu, stuðningi ef flokkarnir tveir
skyldu geta myndað meirihluta
eftir síðari umferð kosninganna.
Þetta eykur líkurnar á að sósíalist-
ar haldi völdum.
Kjörstjórn greindi frá því í gær
að sósíalistar og samstarfsflokk-
urinn Bandalag frjálsra demó-
krata hefðu samtals fengið 113
þingmenn kjörna í fyrri umferð-
inni en Fidesz 97 og MDF tvo.
Þar sem 174 þingsæti eru enn
til skiptanna í síðari umferð kosn-
inganna, sem fram fer 23. apríl,
virðast úrslitin hvergi nærri ráðin
enn. En þar sem forystumenn
MDF hafa neitað að eiga samvinnu
við Fidesz í síðari umferðinni,
ólíkt sósíalistum og samstarfs-
flokki þeirra, eykur það líkurnar á
að miðju-vinstristjórnin haldi
velli. Ibolya David, leiðtogi MDF,
sagði að flokkur hennar vildi ekki
aðstoða Viktor Orban, leiðtoga
Fidesz, að komast aftur í forsætis-
ráðherrastól. Það gerði hann á
tímabilinu 1998-2002. - aa
GYURCZANY FAGNAR Ferenc Gyurcsany
forsætisráðherra (í miðju) fagnar úrslitun-
um ásamt eiginkonunni Klöru Dobrev og
flokksleiðtoganum Istvan Hiller í höfuð-
stöðvum sósíalistaflokksins í Búdapest.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Fyrri umferð þingkosninga í Ungverjalandi:
Stjórnin virðist halda velli
FÍKNIEFNI Lögreglan í Borgarnesi
lagði hald á 228 kannabisplöntur á
sveitabæ á Mýrum í Borgarbyggð
um helgina. Einn maður var hand-
tekinn og færður til yfirheyrslu.
Honum var sleppt að þeim lokn-
um. Málið telst upplýst.
Theodór Þórðarson, varðstjóri
í lögreglunni í Borgarnesi, segir
vísbendingar um kannabisrækt-
unina hafa borist lögreglu frá fólki
sem leið átti fram hjá bænum.
„Okkur bárust ábendingar um að
það væri kannabisræktun á þess-
um slóðum. Sem betur fer berast
okkur oft ábendingar um fíkni-
efnamál og í þetta skiptið leiddu
þær til þess að við létum til skarar
skríða.“
Auk kannabisplantnanna var
lagt hald á þurrkuð kannabislauf
og stöngla og ýmsan búnað til
ræktunarinnar, svo sem lampa,
hitagjafa, viftur og loftræstibún-
að. Var ræktunin á ýmsum stigum
en samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Borgarnesi þykir
ljóst að hún hafi staðið yfir í
nokkurn tíma.
Um helgina komu upp þrjú
önnur smærri fíkniefnamál hjá
lögreglunni í Borgarnesi sem
tengjast ekki ræktunarmálinu.
Þau eru öll að fullu upplýst. - mh
Lögreglan í Borgarnesi lagði hald á mikið magn fíkniefna:
228 kannabisplöntur fundust
PLÖNTURNAR SEM FUNDUST Hér sjást
plönturnar sem lögreglan lagði hald á við
húsleit á bæ í Borgarbyggð.
FRÉTTABLAÐIÐ/THEODÓR
KJARAMÁL Vikulangt setuverkfall
verður næsta skref í kjarabaráttu
sérhæfðs starfsfólks á dvalar- og
hjúkrunarheimilum og hefst eftir
sumardaginn fyrsta. Að setuverk-
fallinu loknu munu fylgja fjölda-
uppsagnir 1. maí ef kröfum um
launajöfnuð við starfsmenn sveitar-
félaganna verður ekki mætt.
Þetta er niðurstaða baráttufund-
ar sem haldinn var í gær til að und-
irbúa næstu skref í kjarabaráttu
sem hófst með sólarhrings setu-
verkfalli í mars. Nýlokið er tveggja
sólarhringa setuverkfalli þessa
hóps sem nær til á annað þúsund
starfsmanna á tíu stofnunum. Verk-
fallið verður með sama sniði og
fyrr og aðeins brýnustu þörfum
vistmanna sinnt.
Samninganefndir Samtaka fyr-
irtækja í heilbrigðisþjónustu og
Eflingar hittust einnig í gær og var
því fagnað á starfsmannafundinum
að samráð væri hafið á milli þeirra
sem að kjarasamningum þeirra
koma. Það var þó engan veginn
talin næg ástæða til að hætta
aðgerðum og voru sumir fundar-
menn á því að fjöldauppsagnir
væru besta vopnið og þeim ætti að
beita strax.
Á Alþingi í gær lýsti Siv Frið-
leifsdóttir heilbrigðisráðherra
miklum áhyggjum af deilunni og
kvaðst vonast til að fulltrúar hjúkr-
unarstofnana og Eflingar gætu
leyst deiluna á fundum sínum á
næstunni, þrátt fyrir að deilan væri
mjög snúin.
Guðjón A. Kristjánsson, Frjáls-
lynda flokknum, benti á að stjórn-
völd hefðu ekki tekið mið af vand-
anum þótt þeim hefði verið bent
þráfaldlega á hann við gerð fjárlag-
anna. Hann vísaði til álits minni-
hluta fjárlaganefndar í desember
og þar hefði beinlínis verið lögð
fram tillaga um viðbótarfé en henni
verið hafnað af stjórnvöldum.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt-
ir, Samfylkingunni, sagði frammi-
stöðu ríkisstjórnarinnar vanvirð-
ingu við aldraða og laun eitt þúsund
kvenna með 100 til 120 þúsund
krónur á mánuði væri þjóðar-
skömm.
Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra lagði áherslu á að samninga-
fundir væru hafnir; það hlyti að
vera fyrsta skref. Hann sagði að
erfitt hefði reynst að leiðrétta
lægstu launin þar sem aðrir hópar
hneigðust til að koma í kjölfar
þeirra og gera aðrar eins kröfur.
svavar@frettabladid.is /johannh@frettabladid.is
Setuverkfall í viku
er næsta aðgerð
Starfsfólk boðar fjöldauppsagnir 1. maí ef kröfum þeirra verður ekki mætt. Guð-
jón A. Kristjánsson segir að ríkisstjórninni hafi þráfaldlega verið bent á vanda
hjúkrunarheimila við fjárlagagerð en fellt tillögur til lausnar á vandanum.
FRÁ BARÁTTUFUNDI Á annað hundrað konur mættu á fundinn í gær og baráttuandi þeirra duldist engum. Þær ætla að halda aðgerðum
sínum áfram þangað til árangur næst. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
SLYS Maður slasaðist á öxl þegar
hann keyrði snjósleða sínum
ofan í fjögurra metra djúpa
sprungu norðan við Gæsafjöll í
gær. Betur fór en á horfðist að
sögn lögreglunnar á Húsavík þar
sem ökumaður sleðans hafnaði á
sprungubarminum og féll ekki
með sleðanum niður í sprung-
una.
Tilkynnt var um slysið rétt
um klukkan þrjú í gær og voru
björgunarsveitarmenn á jeppa
frá Húsavík og vélsleðum frá
Aðaldal komnir á staðinn um hálf
fimm. Komið var með hinn slas-
aða á sjúkrahúsið á Húsavík á
sjötta tímanum. - shá
Slys norðan við Gæsafjöll:
Ók vélsleða
ofan í sprungu