Fréttablaðið - 11.04.2006, Side 18

Fréttablaðið - 11.04.2006, Side 18
 11. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR18 fréttir og fróðleikur FRÉTTASKÝRING SIGRÚN MARÍA KRISTINSDÓTTIR smk@frettabladid.is Svona erum við > Meðalfjöldi kvenna í fangelsum 1998 til 2004. Heimild: Hagstofa Íslands Spilafíkn hefur verið mikið í umræðunni á Íslandi að undanförnu. Minningarorð Gunnars Sigurjónssonar, sóknarprests í Digraneskirkju í Kópavogi, þegar ungur maður var borinn til grafar eftir að hafa svipt sig lífi vegna þessa vágests vöktu mikla athygli og þar hvatti hann til umræðu í samfélaginu sem hugsanlega gæti orðið öðrum til hjálpar. Hvað er spilafíkn? Margir Íslendingar taka þátt í happdrættum, kaupa lottó, tippa á úrslit íþróttaleikja, spila bingó, setja peninga í spilakassa eða stunda fjárhættuspil. Þessir leikir heita einu nafni veðleikir. Flest fólk hefur gaman af veðleikjum og finnst þeir spennandi enda ber það ekki skaða af þeim. Aðrir eru þannig gerðir að þeir hafa ekki stjórn á spilamennsku sinni, þeir eru kallaðir spilafíklar. Spilafíkn er sjúkdómur sem ágerist með tímanum. Spilafíkn getur valdið stórkostlegum andlegum, fjárhagslegum og samfélagslegum vandamálum. Það er skoðun meðferð- araðila um allan heim að spilafíklar geti náð mjög góðum bata. Spilafíkn er vandamál af tilfinningalegum toga sem hefur fjárhagslegar afleiðingar. Þótt allar skuldir spilafíkils séu greiddar fyrir hann, verður hann eftir sem áður spilafíkill. Hið raunveru- lega vandamál er að hann hefur óstjórnlega löngun til að spila upp á peninga. Valda peningaspil spilafíkn? Það er algengur misskilningur að spilakassar, happdrættisvélar eða fjárhættuspil valdi spilaf- íkn. Orsök spilafíknar er skortur á getu einstaklings til að hafa hemil á spilahegð- un sinni. Talið er að fíkn geti að hluta til stafað af erfðum, úrræðaleysi gagnvart gráma hversdagsins og jafnvel uppeldi. Spilafíklar hafa óendanleg tækifæri til að taka þátt í fjárhættuspilum og happdrættum af ýmsu tagi. Reynsla fjölmargra spilafíkla sýnir svo að ekki verður um villst að auðvelt er að tapa miklu fé í verðbréfaviðskiptum. Veð- leikir gera menn ekki að spilafíklum, ekki frekar en áfengi geri menn að alkóhólistum eða hnífur geri mann að morðingja. Heimild: spilafikn.is FBL-GREINING: SPILAFÍKN Tilfinningalegt vandamál 2 5 5Fj öl di k ve nn a 5 1998 2000 2002 2004 George W. Bush Banda- ríkjaforseti og ríkisstjórn hans virðast alveg hafa gleymt að sinna Rómönsku- Ameríku á seinustu árum, og gæti þessi yfirsjón þeirra valdið Bandaríkjun- um miklum vandræðum. Útgönguspár kosninganna í Perú benda til þess að halda verði seinni umferð kosninga þar í landi, þar sem kosið yrði milli herforingjans Ollenta Hum- ala og þeim mótframbjóðanda sem næstur honum kemur. Vinni Hum- ala, verður hann enn einn leið- toginn í Rómönsku-Ameríku sem er yfirlýstur andstæðingur George W. Bush og Bandaríkjastjórnar. Bush virðist hafa látið þróun- ina í þessum heimshluta fram hjá sér fara. Þó hann hafi hafið starf sitt sem forseti Bandaríkjanna með þeim orðum að samskipti Bandaríkjanna við Rómönsku- Ameríku sætu í fyrirrúmi, þá virðast stríðin í Írak og Afgan- istan hafa tekið allan hans tíma og athygli, og á síðustu sex árunum hefur hvert landið á fætur öðru í Rómönsku-Ameríku kosið sér vinstrisinnaða ríkis- stjórn og þjóðarleiðtoga. Sívaxandi andstaða Í tæp 200 ár hafa langflestir for- setar Bandaríkjanna sagt Róm- önsku-Ameríku vera í forgangi, líkt og Bush gerði, og á 20. öldinni átti Bandaríkjastjórn þátt í falli fjörutíu ríkisstjórna í Rómönsku- Ameríku. Gavin Esler, fréttamaður breska ríkisútvarpsins BBC sem sinnt hefur suður-amerískum fréttum áratugum saman, hefur hafið þáttaröð um þessi mál sem ber yfirskriftina „Hvernig Banda- ríkin „töpuðu“ Rómönsku-Amer- íku.“ Esler bendir á að undanfarið hefur hvert rómansk-ameríska landið á fætur öðru orðið sífellt vinstrisinnaðra, en í þessari álfu er bilið milli ríkra og fátækra breiðara en annars staðar í heim- inum. Þar með hefur Bush, á örfáum árum, tapað stuðningi þessara landa. Þeir sem fylgjast með fréttum frá Venesúela og Níkaragva í norðri og Perú og Bólivíu í suðri, sem og í Mexíkó, Argentínu og Brasilíu, komast endanlega á þá skoðun að andstaða við Bandarík- in ríkir frá landamærum Texas og allt til suðurheimskautsins, að sögn Eslers. Og þessi andstaða fer sívax- andi. Rauður þráður Liti maður á landakort af Róm- önsku-Ameríku með rauðum lit eftir stefnu ríkisstjórna landanna og afstöðu þeirra til Bandaríkj- anna, þá sést vel hversu rauði lit- urinn er áberandi. Kúba yrði auðvitað eldrauð, að sögn Eslers, sem og Venesúela og Bólivía, en best þróuðu lönd álf- unnar, Brasilía, Chile og Argent- ína, yrðu öll í mismunandi bleik- um litum. Sigri Humala, yrði Perú jafnframt eldrautt og líklegt þykir að úrslit yfirvofandi kosninga í Mexíkó og Níkaragva verði til þess að lita megi þau lönd rauð. Leiðtogarnir eru jafnframt afar litríkir í fleiri en einum skiln- ingi. Fidel Castró, leiðtogi Kúbu, er sennilega einna best þekktur meðal þessara leiðtoga sem opin- berlega lýsa yfir andstöðu sinni við Bandaríkin. En þeim fer fjölg- andi sem skipa má í röð með Castró og ekki væri úr vegi fyrir Bush og stuðningsmenn hans að huga frekar að nokkrum öðrum leiðtogum álfunnar. Hugo Chavez, forseti Venesú- ela, hefur verið ákaflega opinskár um skoðanir sínar á Bandaríkjun- um, og hefur sagt Hitler vera „pelabarn“ við hlið Bush, sem hann segir vera heimsvaldasinn- aðan fasista sem hikar ekki við þjóðarmorð til að ná sínum tak- mörkum. Evo Morales er fyrsti forseti Bólivíu af indjánaættum, og er hann afar opinskár um fyrirætlan- ir sínar um að bæta hag hinna fátæku, skattleggja hina ríku og minnka þar með hið gríðarbreiða bil milli fátækustu og ríkustu þegnanna. Þegar rúmur helmingur atkvæða hafði verið talinn í Perú í gærmorgun, hélt Humala forystu með 27,8 prósentum atkvæða, og tveir helstu mótframbjóðendur hans voru með 26,3 og 25,6 pró- sent svo ljóst þótti að seinni umferð kosninganna, þar sem kosið verður á milli efstu tveggja frambjóðendanna, verði haldnar í maí. Líkurnar á því að Humala sigri eru töluverðar, en hann nýtur stuðnings fátækustu þegna lands- ins enda hefur hann lofað að minnka bilið milli ríkra og fátækra, að enda „fasistaeinræði hinna ríku“ sem hann segir hafa rænt Perú öllu lýðræði, og að skattleggja harðlega fjölþjóðafyr- irtæki sem hagnast af námugreftri í Perú. Í Níkaragva þykir líklegt að Daniel Ortega bjóði sig fram til næstu forsetakosninga, en hann er fyrrverandi byltingarsinni Sandinista sem leyniþjónusta Bandaríkjanna reyndi á sínum tíma að losna við og kom faðir Bush forseta, George Bush eldri, mikið að þeim málum undir stjórn Ronalds Reagan. Þá gáfu Banda- ríkin fé til skæruliða í Níkaragva sem bandaríska leyniþjónustan hafði þjálfað, að sögn Eslers, en þeir skæruliðar urðu til þess að Sandinistastjórnin féll. Sigri Ortega nú, verður það því óneit- anlega skammarlegur löðrungur fyrir Bush-feðgana. Litrík álfa Rómanska-Ameríka hefur verið í gífurlegri uppsveiflu undanfarið. Í flestum löndum öðrum en Kúbu og Haítí hefur lýðræði blómstrað og hafa kjósendur losað sig við ríkisstjórnir og kosið nýjar inn. Þegnar margra landanna, þar með talið Perú, hafa það betra fjár- hagslega nú en nokkurn tímann áður. Auk þess dafnar menningin í álfunni. Ný kynslóð rithöfunda hefur verið að skipa sér sess, og margt nýtt og skemmtilegt er að gerast bæði í tónlist og kvikmynd- um. Síðast en ekki síst, blómstrar lífið og vonin í hjörtum íbúa Róm- önsku-Ameríku. Tapaður bakhjarl Bandaríkjanna DANIEL ORTEGA Líklegur forsetaframbjóðandi Níkaragva. HUGO CHAVEZ Forseti Venesúela.EVO MORALES Forseti Bólivíu. GEORGE W. BUSH Bandaríkjaforseti. OLLANTA HUMALA Forsetaframbjóðandi Perú. Margir vilja á listann Tillaga að nýju aðal- skipulagi á Akureyri er í lögbundnu athuga- semda- og umsagnar- ferli. Nokkur atriði í til- lögunni þykja umdeild og Ragnar Sverrisson íhugar að bjóða fram lista í komandi sveitar- stjórnarkosningum. Hvað er það sem þú ert helst óánægður með? Ég vil halda þeim möguleika opnum að á íþróttavallarsvæðinu við miðbæinn geti risið blönduð byggð með verslunum, þjónustufyrirtækj- um, opnum svæðum ásamt íbúðar- húsnæði. Eins er ég ósáttur við að Dalsbraut skuli tekin út úr skipulaginu og svo er með öllu óforsvaranlegt að ekki sé hægt að fá einbýlishúsalóð í bæjarfélaginu. Hvenær skýrist hvort listinn komi fram? Ég hef sent formanni kjörstjórn- ar á Akureyri formlegt erindi og óskað eftir listabókstafnum A og er núna að safna meðmælendum. Hvernig listinn verður skipaður? Það hafa margir komið að máli við mig og lýst yfir áhuga og sjálfur verð ég þar á meðal. Ég gef ekki upp nein önnur nöfn en fullyrði að listinn verður mjög sterkur ef af verður. SPURT & SVARAÐ NÝTT FRAMBOÐ Á AKUREYRI RAGNAR SVERRISSON Kaupmaður í JMJ á Akureyri. 5.hver vinnur! Þú sendir SMS skeyt ið BT FBT á númerið 1900 Þú færð sp urningu. Þú svarar m eð því að senda SMS skeytið BT A, B eð a C á númerið 19 00. +DVD pakki 67. 588119. 988215. 988 Dregin út 28.apríl Dregin út 21.apríl D regin út 12.apríl 0kr0kr0kr S M S LE IK UR ! *Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum Vinningar verða afhentir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið. Þú færð 5.mín til að svara spurningu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.