Fréttablaðið - 11.04.2006, Qupperneq 41
ÞRIÐJUDAGUR 11. apríl 2006 25
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.721 -0,55% Fjöldi viðskipta: 197
Velta: 1.061 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 59,50 -1,00% ... Alfesca 3,95 +0,00%... Atorka 5,75
-0,86% ... Bakkavör 50,30 -0,20% ... Dagsbrún 6,63 -0,60% ... FL Group 21,80 -0,46% ...
Flaga 3,27 +1,87% ... Glitnir 17,40 -0,57% ... KB banki 779,00 -0,13% ... Kögun 74,70 +0,40%
... Landsbankinn 23,50 -0,84% ... Marel 74,20 -0,14% ... Mosaic Fashions 17,70 -1,67% ...
Straumur-Burðarás 17,20 -1,15% ... Össur 111,50 -0,45%
*KLUKKAN 14.00 Í gær.
MESTA HÆKKUN
Fiskmarkaður Breiðafjarðar +6,06%
Vinnslustöðin +2,38%
Flaga +1,87%
MESTA LÆKKUN
Mosaic -1,67%
Straumur-Burðarás -1,15%
Actavis -1,00%
Umsjón: nánar á visir.is
Marel hefur fest kaup á AEW Thur-
ne og Delford Sortaweigh fyrir um
1,7 milljarða króna af AEW Delford
Group. Félögin framleiða meðal
annars háhraða skurðarvélar, tæki
til gátvigtunar og verðmerkingar
og róbóta til pökkunar matvæla.
Kaupin eru í samræmi við stefnu
Marels að verða leiðandi fyrirtæki
í þróun og framleiðslu á hátækni-
búnaði fyrir matvælaiðnaði og fell-
ur núverandi vöruframboð bresku
félaganna vel að framleiðslu Mar-
els.
Velta AEW og Delford nam 3,4
milljörðum króna á síðasta ári og
var leiðréttur rekstrarhagnaður
fyrir afskriftir (EBITDA) um 250
milljónir króna.
Marel tilkynnti fyrir síðustu
helgi að félagið hefði gefið út
skuldabréf fyrir sex milljarða
króna og fjármagnar kaupin með
eigin fé og hluta af andvirði bréf-
anna.
Helstu markaðssvæði bresku
félaganna eru í Bretlandi, Banda-
ríkjunum, Hollandi og Frakklandi.
- eþa
Marel færir út kvíarnar í Bretlandi
Excel Airways Group, dótturfélag
Avion Group, hefur keypt bresku
ferðaskrifstofuna Kosmar Villa
Holidays, sem er fremsta breska
ferðaskrifstofan í ferðalögum til
Grikklands. Excel Airways Group
á fyrir fimm ferðaskrifstofur.
Ferðaskrifstofan kemur inn í
samstæðu Avion Group í maí.
Kaupverð er trúnaðarmál en kaup-
in eru fjármögnuð með eigin fé og
lánsfé. Velta ferðaskrifstofunnar
nam 10,3 milljörðum íslenskra
króna í fyrra. Búist er við að með
kaupunum verði Excel Airways
Group 5. eða 6. stærsta félagið í
sölu pakkaferða í Bretlandi. - jab
Excel kaupir Kosmar
FLUGVÉLAR FRÁ EXCEL AIRWAYS Dóttur-
félag Avion Group hefur keypt fremstu
ferðaskrifstofu í Bretlandi sem skipuleggur
ferðir til Grikklands.
HÖRÐUR ARNARSON, FORSTJÓRI MARELS Marel hefur keypt tvö bresk fyrirtæki sem fram-
leiða tæknibúnað fyrir matvælaiðnaðinn.
FASTEIGNALÁN
Í MYNTKÖRFU
Nánari upplýsingar veita lánafulltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is
Miðað við myntkörfu 3, Libor vextir 3.4.2006
Hreinn Jakobsson var
látinn hætta sem for-
stjóri eftir að hafa tekið
afstöðu í átökum um
eignarhald á Kögun,
móðurfélagi Skýrr.
Hreinn vildi fá Símann
inn í eigendahópinn,
en á endanum kom inn
Dagsbrún.
Hreinn Jakobsson var rekinn úr
starfi forstjóra Skýrr hf., dóttur-
fyrirtækis Kögunar hf. síðdegis
síðasta föstudag. Hreinn hefur
stýrt fyrirtækinu frá því í septemb-
er 1997, eða í tæp níu ár. Ekki hefur
enn verið ráðinn eftirmaður í starf
hans, en þar til verður Örn Karls-
son starfandi stjórnarformaður.
Örn segir hafa legið fyrir á
þriðjudaginn í síðustu viku að
Hreinn myndi hætta, en í framhald-
inu hafi ekki náðst saman um
starfslok hans. „Til að höggva á
hnútinn afhenti ég honum uppsagn-
arbréf,“ segir hann og kveður þann
tíma tekinn sem þarf til að finna
eftirmann Hreins. „En hann setti
sig í dálítið erfiða aðstöðu, sem er
synd, því Hreinn er frábær rekstr-
armaður og góður liðsmaður.“
Hreinn rekur ástæðu starfslok-
anna fyrst og fremst til þess að
hann hafi viljað sjá Símann koma
inn sem kjölfestufjárfesti í Kögun
og ekki farið leynt með þá skoðun.
Hann segir Símann hafa verið mjög
áhugaverðan kost fyrir Skýrr, enda
hafi fyrirtækin verið í miklu sam-
starfi og Síminn aukið viðskipti sín
við Skýrr.
Undir lok síðasta mánaðar seldu
stjórendur Kögunar og Straumur-
Burðarás fjárfestingarbanki hins
vegar Dagsbrún meirihluta í félag-
inu eftir að Síminn, sem átti 39 pró-
sent í félaginu, hafði hafnað hug-
myndum um yfirtöku. „Ég held að
stjórnendur Kögunar hafi fyrst og
fremst verið að hugsa um bréfin
sín, en ekki langtímahagsmuni
félagsins, þegar þeir tóku afstöðu
með Straumi. Ég skildi ekki af
hverju mönnum fannst ekki áhuga-
vert að fá Símann þarna inn, enda
ljóst að Kögun yrði ekki í eigu fjár-
málafyrirtækja til lengri tíma, þau
myndu losa sig út og kjölfestufjár-
festir kæmi inn,“ segir Hreinn og
bendir á að yfirtöku Kögunar á
Opnum kerfum hafi borið að með
sambærilegum hætti og þegar Sím-
inn keypti sig inn í Kögun, auk þess
sem Síminn eigi viðskipti við Kögun
og dótturfélög fyrir hátt í milljarð
króna á ári.
Hreinn segir starfslokin svo
sem ekki koma á óvart, en telur að
farsælla hefði verið að gera sam-
komulag um þau, en í þeim efnum
verður stuðst við ákvæði í ráðning-
arsamningi hans. Hreinn segir
óráðið hvað hann tekur sér fyrir
hendur í framhaldinu, en segir hug
sinn vissulega standa til þess að
vinna áfram í upplýsingatækni-
geiranum. olikr@frettabladid.is
HREINN JAKOBSSON Hreinn fékk afhent
uppsagnarbréf síðdegis síðasta föstudag.
Forstjóri Skýrr var
rekinn á föstudag