Fréttablaðið - 20.04.2006, Qupperneq 2
2 20. apríl 2006 FIMMTUDAGUR
EFNAHAGSMÁL Launavísitala hefur
hækkað um 0,3 prósent milli mán-
aða febrúar og mars og mælist því
285,4 stig í mars. Launavísitalan
hefur hækkað um 8,6 prósent á árs-
grundvelli. Kaupmáttur launa
hefur vaxið um 3,9 prósent að
meðal tali síðustu tólf mánuði.
Ólafur Darri Andrason, hag-
fræðingur ASÍ, segir að helstu
skýringar á hækkuninni séu launa-
breytingar hjá sveitarfélögunum í
kjölfar samninga Reykjavíkur-
borgar við ófaglært starfsfólk auk
þess sem nokkurt launaskrið sé á
almennum vinnumarkaði, sérstak-
lega í verslun og byggingariðnaði,
þeim greinum þar sem þenslan er
mest.
Ólafur Darri bendir á að hag-
vöxtur sé meiri hér en í flestum
nágrannalöndum og ekki sé undar-
legt að launafólk njóti þess í formi
hærri launa. Verðlag hafi nú hækk-
að um 1,1 prósent og laun um 0,3
prósent. Nokkrar líkur séu á því að
hratt dragi úr kaupmætti.
„Kaupmáttur launa á Íslandi er
hærri en samrýmist jafnvægi í
efnahagslífinu,“ segir Hannes G.
Sigurðsson, hagfræðingur Samtaka
atvinnulífsins. „Kaupmátturinn
hlýtur því að dragast saman. Sá
samdráttur er að byrja. Kaupmátt-
ur gagnvart erlendum vörum hefur
til dæmis minnkað mikið eftir geng-
ið breyttist. Ég tel að það sé óhjá-
kvæmilegt og eðlilegt að það dragi
úr kaupmætti launa.“
- ghs / sjá síðu 24
Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
�����������������������������
�������������������
Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur Samtaka atvinnulífsins:
Kaupmáttur dregst saman
LÖGREGLUMÁL Kveikt var í tveimur
bílum í fyrrinótt en slökkvilið höf-
uðborgarsvæðisins slökkti eldinn
í báðum tilfellum. Engin meiðsl
urðu á fólki þar sem bílarnir voru
mannlausir.
Bílarnir eru ónýtir eftir eldinn
en lögreglan í Reykjavík leitar
þeirra sem kveiktu í bílunum.
Slökkviliðið fékk tilkynningu
klukkan tíu mínútur yfir fjögur í
fyrri nótt vegna elds í bíl við Torfu-
fell. Slökkvistarf gekk hratt og vel
fyrir sig. Tuttugu mínútum seinna
var aftur tilkynnt um eld í bíl við
Selás í Víðidal. Þar gekk slökkvi-
starf sömuleiðis vel.
Þeir sem telja sig geta veitt ein-
hverjar upplýsingar um þessar
tvær íkveikjur eru beðnir að snúa
sér til lögreglunnar í Reykjavík.
- mh
Kveikt í tveimur bílum:
Bílar ónýtir
eftir íkveikjur
ÓLAFUR DARRI
ANDRASON
HANNES G.
SIGURÐSSON
Maðurinn sem
lést á páskadag
af slysförum á
gönguferðalagi
á portúgölsku
eynni Madeira
hét Árni G. Stef-
ánsson.
Árni var sjö-
tugur að aldri,
fæddur 3. nóv-
ember 1932. Hann lætur eftir sig
eiginkonu og fjögur börn. Árni var
búsettur í Reykjavík. ■
Slys á Madeira í Portúgal:
Nafn mannsins
sem lést
SPURNING DAGSINS
Eggert, fer ekki fækkandi
í vinahópnum?
„Vinir einkabílsins hafa aldrei verið
fleiri. Vinum bensínstöðva fer hins
vegar fækkandi.“
Skóinn kreppir hjá bíleigendum með síhækk-
andi olíuverði. Eggert Páll Ólason er formaður
samtakanna Vinir einkabílsins sem stofnuð
voru á síðasta ári.
HEILBRIGÐISMÁL Lyfjastofnun hefur
til athugunar mál sem varðar inni-
haldslýsingar á einni tegund vin-
sæls fæðubótarefnis, Lið-Aktíns,
sem seld er hér á landi. Stofnunin
gekkst fyrir því að innihald fæðu-
bótarefnisins var rannsakað á
erlendri rannsóknarstofu. Niður-
stöður benda til þess að efnisinni-
haldið sé ekki í samræmi við þær
upplýsingar sem gefnar eru á
umbúðum þess, heldur sé um mun
minna magn að ræða.
Fæðubótarefnið Lið-Aktín, sem
er til skoðunar hjá Lyfjastofnun
er eitt þeirra efna sem innihalda
svokallað glúkósamín. Það er
mjög vinsælt hér og kynnt sem
tæki til að byggja upp brjósk í
beinum sem hefur eyðst með aldr-
inum. Einnig er sagt að það eyði
bólgum og rannsóknir bendi til
yfirburða þess yfir bólgueyðandi
gigtarlyf hvað verkun varði.
Þannig hafi einstaklingar sem
þjást vegna slits eða skemmda á
brjóski fengið bata með því að
nota glúkósamínblandaða vöru.
Efnið gagnist bæði gegn liðagigt
og slitgigt.
Hafdís Þorsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heilsu hf. sagði í
gær, eftir að hún hafði fengið bréf
um niðurstöður rannsóknarinnar
frá Lyfjastofnun, að allt Lið-Aktín
sem hér væri í verslunum yrði
innkallað.
„Ég ætla að láta rannsaka þetta
betur með hraði til að vita hvað
kemur út úr því,“ sagði Hafdís.
„Þetta fer ekki á markað aftur
fyrr en ég er hundrað prósent viss
um að það sé í lagi með það. Þetta
er alls ekkert hættulegt, en þetta
á að vera í lagi og verður það.“
Lið-Aktínið er framleitt í Kan-
ada fyrir markaðinn hér og hefur
þegar verið haft samband við
verksmiðjuna þar vegna málsins.
Hafdís sagði að of mikill munur
hefði verið á innihaldi glúkósam-
ínsins sem rannsókn á vegum
Lyfjastofnunar sýndi og magns-
ins sem gefið væri upp á umbúð-
unum. Að vísu væri um að ræða
sendingu frá apríl 2004, en allar
sendingar yrðu nú athugaðar.
„Að selja fólki vöru sem er
undir styrkleika er eitthvað sem
Heilsa hf. vill ekki gera. Því
munum við láta gera stikkprufur
úr fleiri efnum og hafa skemmra
á milli þeirra prófana. Það er
vinnuregla sem verður komið á
hér eftir.“
jss@frettabladid.is
FÆÐUBÓTAREFNI Fjölmargar tegundir fæðubótarefna eru fáanlegar hér á landi og eru mikið notaðar.
Fæðubótarefnið
Lið-Aktín innkallað
Rannsókn á innihaldi vinsæls fæðubótarefnis, Lið-Aktíns, sem Lyfjastofnun lét
gera leiddi í ljós að efnisinnihald var ekki í samræmi við upplýsingar á umbúð-
um. Of lítið var af glúkosamíni, efni sem veitir bót á slitgigt og liðagigt.
MOSKVA, AP „Næstum því öll ríkin
eru að íhuga einhvers konar
refsiaðgerðir, og það er nýtt,“
sagði Nicholas Burns, aðstoðar-
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, í Moskvu í gær að loknum
tveggja daga fundarhöldum
fastaveldanna fimm í Öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna með
fulltrúum átta ríkja iðnvelda-
hópsins.
„Við trúum því að friðsamleg
lausn sé möguleg,“ sagði Burns í
gær, þegar fundarhöldunum var
lokið, en tók jafnframt undir orð
Bush Bandaríkjaforseta, sem
vildi ekki útiloka að kjarnorku-
árás verði gerð á Íran. „Auðvitað
halda Bandaríkin alltaf öllum
möguleikum opnum,“ sagði
Burns, „en við einbeitum okkur
að friðsamlegum viðræðum.“
Fastaveldin fimm, sem hafa
neitunarvald í Öryggisráðinu,
eru Bandaríkin, Bretland, Frakk-
land, Kína og Rússland. Bæði
Rússar og Kínverjar hafa ítrek-
að lýst andstöðu sinni við að
Öryggisráðið grípi til refsiað-
gerða gegn Íran.
Í átta ríkja hópnum eiga þessi
sömu ríki fulltrúa, að undan-
skildum Kínverjum, en einnig
eiga þar Ítalía, Japan, Kanada og
Þýskaland fulltrúa.
- gb
Fundi níu ríkja um Íransmálið lokið í Moskvu:
Trúa á friðsamlega lausn
NICHOLAS BURNS Aðstoðarutanríkisráð-
herra Bandaríkjanna gerir sér vonir um að
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykki
refsiaðgerðir gegn Íran. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÞRÓUN KAUPMÁTTAR LAUNA
Á ÍSLANDI OG Í DANMÖRKU
1. ársfjórðungur 2000
2000
2006
Ísland
Danmörk
99
119
BAUGSMÁL Settur saksóknari í
Baugsmálinu leggur fram ferkari
gögn með þeim 19 ákæruliðum í
Baugsmálinu sem þingfest verður
í Héraðsdómi Reykjavíkur 27.
apríl næstkomandi. Þeirra á meðal
eru gögn sem ættuð eru frá
embætti skattrannsóknastjóra.
Jón Ásgeir Jóhannesson,
Tryggvi Jónsson og Jón Gerald
Sullenberger eru bornir sökum í
málinu, en það er reist á ákæru-
atriðum sem dómstólar höfðu áður
vísað frá. Sex ákæruliðir úr fyrra
Baugsmálinu eru enn fyrir Hæsta-
rétti og óljóst hvort dómur verður
upp kveðinn fyrr en eftir réttarhlé
í sumar. - jh
Þingfesting í næstu viku:
Enn ný gögn í
Baugsmálinu
RÍKISÚTVARPIÐ Búist er við löngum
og ströngum umræðum á Alþingi
um frumvarp til laga um hluta-
félagavæðingu Ríkisútvarpsins.
Önnur umræða stóð fram eftir í
gærkvöldi en ráðgert var að fresta
þingfundi um miðnætti og taka upp
þráðinn á morgun. Össur Skarphéð-
insson og Katrín Júlíusdóttir, Sam-
fylkingunni, héldu ræðustólnum
fram á kvöld. Þau gagnrýndu meðal
annars áform um að fjármagna
Ríkis útvarpið með nefskatti og létu
í ljósi efasemdir um heilindi Sjálf-
stæðimanna þegar þeir segðust ekki
ætla að einkavæða ríkisútvarpið.
Umræðum verður fram haldið á
morgun og laugardag. - jh
Ríkisútvarpið til umræðu:
Daglöng ræðu-
höld á þingi
Bandaríkin greiði meira Forseti
Mið-Asíulýðveldisins Kirgisistans hótaði í
gær að segja upp samningi um herstöð
Bandaríkjahers í landinu, nema Banda-
ríkjastjórn lýsi sig reiðubúna að greiða
meira fyrir aðstöðuna. Rússar hafa ekki
verið alls kostar sáttir við að hún skyldi
hafa verið veitt í þessu fyrrverandi
Sovétlýðveldi.
KIRGISISTAN
SLYS Tveir menn, annar töluvert
slasaður, voru fluttir á slysadeild
Landspítalans í Fossvogi síðdegis í
gær eftir að tveir vörubílar með
tengivagna skullu saman í Moldu-
hrauni á Reykjanesbraut. Klippa
þurfti annan ökumanninn út úr bíl
sínum. Miklar tafir urðu á Hafnar-
fjarðarvegi frá því slysið varð
klukkan 17 og þangað til bílarnir
voru dregnir á brott á áttunda tím-
anum í gærkvöldi.
Tildrög slyssins voru þau að
öðrum bílnum var ekið í veg fyrir
hinn þar sem hann var að fara út á
akbrautina þar sem breikkun
Reykjanesbrautar stendur yfir. - shá
Umferðarslys við Vífilsstaði:
Vörubílar
skullu saman
FRÁ SLYSSTAÐ Ökumenn beggja bílanna
slösuðust, annar þeirra alvarlega að talið
er. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR