Fréttablaðið - 20.04.2006, Qupperneq 4
4 20. apríl 2006 FIMMTUDAGUR
SUÐUR-KÓREA, AP Fyrrum andófs-
kona, sem á áttunda áratugnum
var fangelsuð fyrir pólitískar
skoðanir sínar,
var í gær skip-
uð forsætisráð-
herra Suður-
Kóreu. Han
Myung-sook er
fyrsta konan
sem gegnir því
embætti þar í
landi.
Roh Moo-
hyun, forseti
landsins, skipaði Han í embætti í
síðasta mánuði, eftir að Lee Hae-
chan, fyrrum forsætisráðherra
landsins, sagði af sér vegna ásak-
ana um að spila golf frekar en að
sinna skyldum sínum, en þingið
þurfti að kjósa um embættið. Kusu
þingmenn hana í gær með 182
atkvæðum gegn 77.
Han, sem berst mikið fyrir rétt-
indum kvenna, tekur formlega við
embætti í dag.
- smk
Suðurkóreska þingið:
Kona kjörin for-
sætisráðherra
HAN MYUNG-SOOK
DANMÖRK Boðuð stofnun fríblaðs
að fyrirmynd Fréttablaðsins í
Danmörku hefur nú orðið til þess
að útgefendur vikublaðsins Søn-
dagsavisen hafa ákveðið að dreifa
blaðinu ókeypis inn á flest dönsk
heimili á tólf völdum helgum á
þessu ári. Tilgangurinn er að
hámarka auglýsingatekjur, en
þess er vænst að samkeppnin um
þær muni aukast til muna með til-
komu nýja blaðsins.
Að því er fréttavefur Politiken
hefur eftir framkvæmdastjóra
Søndagsavisen, dregur hann enga
dul á að hin áformaða frídreifing
séu viðbrögð við hinu væntanlega
fríblaði Dagsbrúnar. - aa
Danski dagblaðamarkaðurinn:
Søndagsavisen
í frídreifinguKAUP SALA
Bandaríkjadalur 77,36 77,72
Sterlingspund 138,1 138,78
Evra 95,46 96,95
Dönsk króna 12,794 12,868
Norsk króna 12,206 12,278
Sænsk króna 10,249 10,309
Japansk jen 0,6612 0,665
SDR 112,62 113,3
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 19.4.2006
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
Gengisvísitala krónunnar
133,012
WASHINGTON, AP Scott McClellan,
talsmaður Hvíta hússins, tilkynnti
afsögn sína í gær og Karl Rove,
nánasti stjórnmálaráðgjafi George
W. Bush forseta, mun að sögn hátt-
setts talsmanns Bandaríkjastjórn-
ar víkja úr embætti sínu í Hvíta
húsinu. Þessar mannabreytingar
bætast við aðrar sem boðaðar hafa
verið í vikunni, en þær eru róttæk-
asta uppstokkunin á stjórnarliði
Bush frá því hann flutti fyrst í
Hvíta húsið fyrir fimm árum.
Rove, sem hefur verið einn nán-
asti ráðgjafi Bush frá upphafi pólit-
ísks ferils hans í Texas snemma á
tíunda áratugnum, tók fyrir ári við
sem varastarfsmannastjóri Hvíta
hússins en sem slíkur hefur hann
verið ábyrgur fyrir samhæfingu
mestallrar stefnumótunar forseta-
embættisins. Hann hefur verið nán-
asti ráðgjafi forsetans.
Háttsettur fulltrúi stjórnarinn-
ar, sem ekki vildi láta nafns síns
getið vegna þess að Bush hefur ekki
enn tilkynnt opinberlega um breyt-
inguna á högum Rove, sagði að
Rove myndi nú snúa sér að því að
stýra skipulagningu kosningabar-
áttu Repúblikanaflokksins fyrir
þingkosningarnar í nóvember.
Nýr varastarfsmannastjóri kvað
verða Joel Kaplan, sem nú er vara-
fjárlagaráðherra. Áður hafði Bush
skipað Joshua Bolten nýjan starfs-
mannastjóra Hvíta hússins, en hann
var áður fjárlagaráðherra.
Á þriðjudag tilkynnti Bush að
Rob Portman, sem verið hefur utan-
ríkisviðskiptaráðherra, tæki við
fjárlagaráðherraembættinu. Nýr
utanríkisviðskiptaráðherra verður
Susan Schwab.
Vinsældir Bush hafa aldrei verið
minni í skoðanakönnunum vestra.
Aðeins um 35 prósent aðspurðra í
skoðanakönnunum segjast nú sátt
við frammistöðu Bush í embætti.
Óvinsældirnar eru fyrst og fremst
raktar til þess að meirihluti Banda-
ríkjamanna lítur nú svo á að Íraks-
stríðið sé klúður, en rannsókn sem
nú er í gangi á upplýsingaleka úr
Hvíta húsinu sem Rove og I. Lewis
Libby, fyrrverandi starfsmanna-
stjóri Dicks Cheneys varaforseta,
eru bendlaðir við, hefur heldur ekki
hjálpað til að bæta almenningsálit-
ið. Ýmsir forsvarsmenn Repúblik-
anaflokksins höfðu því lengi þrýst á
um að Bush stokkaði upp í ráðgjafa-
liði sínu. - aa
MCCLELLAN OG BUSH Þeir voru glað-
hlakkalegir vinirnir Scott McClellan og Bush
forseti er þeir tilkynntu fyrir utan Hvíta
húsið í gær að McClellan myndi hætta sem
blaðafulltrúi embættisins.FRÉTTABLAÐIÐ/AP
McClellan og Rove
víkja úr Hvíta húsinu
George W. Bush Bandaríkjaforseti hélt í gær áfram uppstokkun á samstarfs-
mannaliði sínu í aðdraganda þingkosninga vestra. Talið er að tilgangurinn sé
ekki síst að bregðast við dalandi vinsældum forsetans í skoðanakönnunum.
CARL ROVE Nánasti ráðgjafi Bush er sagður
munu snúa sér að skipulagningu kosninga-
baráttu repúblikana. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Einu af tuttugu úti-
listaverkum listakonunnar Stellu
Sigurgeirsdóttur var stolið nú um
páskahelgina. Það var athugull
borgarbúi sem hringdi í Stellu og
tilkynnti hvarfið. Verkið stóð á
umferðareyju á Breiðholtsbraut á
milli Fella- og Seljahverfa og stóð
fyrir hamingju, gleði og félags-
skap.
Verkið var hluti af sýningu
Stellu sem hún kallar Where Do We
Go Now But Nowhere! eða Hvert
förum við nú nema hvergi! Það var
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borg-
arstjóri sem afhjúpaði sýninguna á
Vetrarhátíð í febrúar og stendur
hún fram yfir Menningarnótt.
Sýningin er byggð upp af verk-
um sem líkjast að forminu til
umferðarskiltum en myndefnið er
þó að öllu leyti ólíkt. Verkin standa
um alla Reykjavíkurborg. Stella
segir það slæmt að vegfarendur
geti ekki notið verksins lengur.
Hún segir tjónið fyrst og fremst
tilfinningalegt fyrir sig. „Við erum
fjórir vinir á þessu skilti, þannig að
þetta eru alvöru persónur og ég er
ein þeirra. Ég skil ekki hvaða gildi
þetta verk hefur fyrir aðra.“
Hún segist vona að þeir sem
tóku verkið sjái að sér og skili
henni verkinu. „Mér þætti ósköp
vænt um það og engir eftirmálar
munu verða af því.“ - shá
Sýningu listakonunnar Stellu Sigurgeirsdóttur spillt:
Listaverki stolið af sýningu
LIST STELLU SIGURGEIRSDÓTTUR Myndin
sem hvarf er neðst í horninu til vinstri.
Hún sýnir Stellu og vini hennar hlæjandi
og listaverkið hefur mikla tilfinningalega
þýðingu fyrir listakonuna. FRÉTTABLAÐIÐ/STELLA
BANDARÍKIN, AP Hu Jintao, forseti
Kína, hélt í gær til Bandaríkjanna
í opinbera heimsókn og mun í dag
hitta að máli George W. Bush
Bandaríkjaforseta í Washington.
Í gær lét Hu Jintao það hins
vegar verða sitt fyrsta verk að
heimsækja tölvufyrirtækið
Microsoft og snæddi síðan hádegis-
verð með forstjóranum Bill
Gates.
Næst lagði Kínaforseti leið sína
í Boeing-flugvélaverksmiðjurnar
í Seattle. Boeing-verksmiðjurnar
gera sér vonir um að selja mikið
af flugvélum til Kína á næstu
árum. - gb
Forseti Kína í Bandaríkjunum:
Hitti Bill Gates
fyrstan manna
SKÁL! Bill Gates og Hu Jintao.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FISKELDI Kristján L. Möller, þing-
maður Samfylkingarinnar í Norð-
austurkjördæmi, fagnar stuðningi
ríkisstjórnarinnar við fiskeldi í
landinu með fjárframlögum til
kynbóta og rannsókna á eldisfiski.
Stórum eldisfyrirtækjum er jafn-
framt heitið raforku á þeim
afsláttarkjörum sem gilt hafa.
„Betra er seint en aldrei. Það
þurfti að vísu að reka iðnaðarráð-
herra til þess að ná áttum varð-
andi raforkuverðið. Þetta
staðfestir að ég hafði á réttu að
standa varðandi miklar hækkanir
á raforkureikningum þessara
fyrirtækja,“ segir Kristján.
- jh
Aðgerðir stjórnvalda í fiskeldi:
Höfðum rétt
fyrir okkur
BAGDAD, AP Ibrahim Al-Jaafari
sagðist í gær staðráðinn í að vera
áfram forsætisráðherra Íraks,
þrátt fyrir harða andstöðu bæði
kúrda og súnní-múslima. Al-Jaaf-
ari nýtur stuðnings sjía-múslima,
sem ráða yfir meirihluta á íraska
þinginu, en stjórnarmyndun er
ekki möguleg nema kúrdar og
súnní-múslimar veiti samþykki
sitt.
Leiðtogar þessara þriggja meg-
infylkinga á íraska þinginu eru
undir miklum þrýstingi frá Banda-
ríkjunum um að leysa sem fyrst
úr stjórnarkreppunni, sem stafar
af deilunum um Al-Jaafari. - gb
Stjórnarkreppan í Írak:
Al-Jaafari situr
sem fastast