Fréttablaðið - 20.04.2006, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 20.04.2006, Blaðsíða 8
8 20. apríl 2006 FIMMTUDAGUR BÆJARMÁL Leikskólagjöld í Hafn- arfirði lækka verulega um næstu mánaðamót og mun þá dvalar- kostnaður á hvert barn á almenn- um gjöldum lækka um rúmar 70 þúsund krónur á ársgrundvelli. Ákvörðun um þetta var tekin í bæjarráði í vikunni en aukinn kostnaður vegna þessa er áætlað- ur um 80 milljónir króna árlega. Að sögn Lúðvíks Geirssonar bæj- arstjóra er ákvörðunin tekin vegna góðrar afkomu bæjarsjóðs en niðurgreiðslur til dagforeldra voru hækkaðar nýverið. - aöe Leikskólabörn í Hafnarfirði: Gjöld lækka um 70 þúsund VEISTU SVARIÐ 1 Hvað ætlar Landhelgisgæslan að leigja margar þyrlur? 2 Hvaða bandaríska dagblað fjallaði ítarlega um íslensk efnahagsmál í vikunni? 3 Hvað eru mörg ár síðan kjarnorku-slysið í Tsjernóbyl varð? SVÖR Á BLS. 70 OLÍUVERÐ, AP Olíuverð náði nýju hámarki í viðskiptum gærdagsins á markaði í New York, 71,79 Bandaríkjadali fatið, en lækkaði síðan fyrir lok viðskipta niður í 71,25 dali eftir að Bandaríkja- stjórn birti tölur sem sýndu minni aukningu á eftirspurn eftir bif- reiðaeldsneyti þar í landi á þessu ári en reiknað hafði verið með. Olíuverð á New York-markaði fór upp fyrir 70 dali á mánudag og hefur haldist yfir því alla vikuna. Aðalorsakavaldur hækkunar- innar var rakinn til ótta um að deilan um kjarnorkuáætlun Írana muni trufla olíusölu þaðan, auk þeirra truflana sem þegar hafa orðið á olíuútflutningi frá Nígeríu vegna aðgerða uppreisnarmanna þar í landi, svo og minni olíufram- leiðslu við Mexíkóflóa og Írak en reiknað var með. Þessir þættir reyndust vega þyngra en ný skýrsla frá OPEC, samtökum olíuútflutningsríkja, þar sem er spáð minni eftirspurn eftir olíu í heiminum á árinu en vænst var. Verðið á hráolíu til afgreiðslu í Bandaríkjunum í maí fór á þriðju- dag hæst í 71,15 dali fatið. Það er 75 sentum hærra en þegar við- skiptum lauk daginn áður, sem var nýtt met. Það lækkaði í 70,90 dali í gær. Verðið var reyndar enn hærra á Norðursjávarolíu á Lundúna- markaði. Það fór í 72,42 dali á fatið í viðskiptum gærdagsins. - aa Olíuverð á heimsmarkaði aldrei hærra: Íran og Nígería valda spennu © GRAPHIC NEWS Olíuverð nær nýjum hæðum Olíuverð á heimsmarkaði náði nýjum hæðum í gær, meðal annars vegna ótta um hugsanlegar hernaðaraðgerðir gegn Íran og truflanir á olíuútflutningi frá Nígeríu. 30. ágúst 2005: Fellibylurinn Katrín ýtir olíuverði á Banda- ríkjamarkaði í $70,85 5. janúar 2004: $33,7830 2004 2005 2006 40 50 60 70 Heimild: UPI $ á fatið 18. apríl 2006: Verð á hráolíu fer í $70,86 BRETLAND, AP Tala landflótta manna í heiminum hefur ekki verið lægri í aldarfjórðung og situr nú í 9,2 milljónum, samkvæmt tölum flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Á sama tíma verður framtíð 25 milljóna upp- flosnaðra manna sem enn eru í heimalöndum sínum sífellt svart- ari, að því er fram kemur í skýrslu sem stofnunin gaf út í Bretlandi í gær. Jafnframt sæta flóttamenn æ strangari hömlum á griðastöðum sínum og þjást vegna vaxandi ótta í heiminum við hryðjuverk. Skilgreiningin milli flótta- manna og annarra sem flýja heim- ili sín sjálfviljugir er afar óljós. Í skýrslunni kemur fram að fólk sem hefur flosnað upp frá heimil- um sínum vegna hernaðarátaka er ekki skilgreint sem flóttamenn fyrr en það flýr til annarra landa. Telja höfundar skýrslunnar að alls séu um 175 milljónir manna upp- flosnaðar af einni eða annarri ástæðu í heiminum, og árétta að nauðsynlegt sé að endurskoða hugtökin. Árið 1994 töldust 18 milljónir manna flóttamenn í heiminum, og hefur sú tala því minnkað um 50 prósent á áratug, aðallega vegna færri vopnaðra átaka og flótta- manna sem flutt hafa heim aftur, svo sem í Afganistan og Síerra Leóne. En þeir sem ekki falla undir skilgreininguna á flóttamanni lifa í sífellt meiri hættu vegna vax- andi óöryggis og skorts á umbyrð- arlyndi, sem og minnkandi fjár- framlaga, að sögn Antonios Guterres, framkvæmdastjóra UNHCR. Hann bætti við að ástand- ið væri sérstaklega slæmt í Tsjad og Súdan. Guterres sagði jafn- framt „mesta misbrest“ alþjóða- samfélagsins liggja í því að koma aðstoð til uppflosnaðs fólks. Skýrslan var gefin út sama dag og sjö flóttamenn sem sitja í haldi í London hófu ellefta dag hungur- verkfalls sem ætlað er að mót- mæla þeim langa tíma sem bresk yfirvöld taka í að yfirfara mál þeirra. Alls eru 118 flóttamenn í búðunum, flestir af afrískum og tyrkneskum uppruna. Eftir hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin árið 2001 hafa mörg vestræn ríki hert reglur sínar um flóttamenn, sem aftur hefur leitt til þess að fleiri flóttamönnum er vísað úr landi þrátt fyrir alvarlegt ástand í heimalandinu. „Flóttamenn eru ekki hryðju- verkamenn,“ sagði Guterres. „Þeir eru oft fyrstu fórnarlömb hryðju- verka.“ Hann benti jafnframt á að þó að stofnunin hefði áhyggjur af þróun mála í Bandaríkjunum, tækju Bandaríkin samt sem áður við fleiri flóttamönnum en flest Evrópuríki, og kallaði eftir sam- eiginlegu flóttamannakerfi innan Evrópusambandsins. smk@frettabladid.is Uppflosnaðir þjást víða Þótt fjöldi flóttafólks í heiminum sé nú sá minnsti í 25 ár, þjást sífellt fleiri uppflosnaðir óbreyttir borgarar, ekki síst vegna hertra laga um flóttamenn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. SAFNAMÁL Víkin, Sjóminjasafnið í Reykjavík mun taka að sér að varðveita muni Siglingastofnunar Íslands. Samningur þessa efnis var undirritaður í gær. Auk þess að taka að sér varðveislu felur samningurinn í sér að safnið mun taka að sér skráningu safnmuna auk miðlunar og sýningarhalds eftir því sem tilefni er til. Helgi Sigurðsson, sviðsstjóri safnamála Víkurinnar, segir að minjarnar séu annars vegar hafn- armálaminjar og hins vegar vita- málaminjar því að Siglingastofn- un varð til við samruna Vita- og hafnamálastofnunar og Siglinga- málastofnunar árið 1996. Verið er að gera skrá yfir munina sem Helgi telur vera um 500 talsins. Sá fjöldi veldur safnvörðum ekki áhyggjum því safnið hefur um 2000 fermetra safnrými til umráða. Þó gæti svo farið að vandamál við varðveislu kæmu upp innan skamms tíma. „Á næstunni mun safnið taka við gripum frá Eimskip, Landhelg- isgæslu Íslands, sjómannaskólan- um og Granda. Það er allt í gangi. Þetta er uppsafnaður vandi og svona gerist þegar safn tekur til starfa tuttugu árum of seint,“ segir Helgi. - shá Sjóminjasafnið varðveitir muni Siglingamálastofnunar: Gripirnir komnir í örugga höfn FRÁ UNDIRRITUN Sigrún Magnúsdóttir, forstöðumaður sjóminjasafnsins, og Hermann Guðjónsson, siglingamálastjóri, handsala hér samninginn. FLÓTTAFÓLK FRÁ SÚDAN Þessar konur voru að ná í vatn til að fara með í flóttamannabúðir sínar í Tsjad. FRÉTTABLAÐIÐ/AP UTANRÍKISMÁL Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, situr nú fund utanríkisráðherra Norðurland- anna á Svalbarða sem lýkur í dag. Öryggismál á norðurslóðum voru til umræðu í gær og gerði utanrík- isráðherra grein fyrir stöðunni í viðræðunum við Bandaríkin um framtíð varnarsamstarfsins. Einn- ig ræddi Geir nauðsyn þess að efla samstarf og samráð um öryggi í siglinum og viðbúnað ríkja við Norður-Atlantshaf til að bregðast við aukningu sjóflutninga í tengsl- um við auðlindanýtingu á norður- slóðum. - shá Utanríkisráðherrar funda: Rætt um ör- yggi og samráð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.