Fréttablaðið - 20.04.2006, Síða 24

Fréttablaðið - 20.04.2006, Síða 24
 20. apríl 2006 FIMMTUDAGUR24 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.397 -2,5% Fjöldi viðskipta: 1.065 Velta: 10.408 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 57,10 -2,89% ... Alfesca 4,02 -0,25%... Atorka 5,50 -1,79% ... Bakkavör 47,50 -3,85% ... Dagsbrún 6,18 -2,06% ... FL Group 18,80 -5,05% ... Flaga 3,25 -1,22% ... Glitnir 16,40 -1,21% ... Kaupþing banki 728,00 -3,32% ... Kögun 74,40 -0,40% ... Landsbankinn 21,30 -5,33% ... Marel 72,60 -0,82% ... Mosaic Fashions 17,90 -0,56% ... Straumur-Burðarás 16,20 -2,41% ... Össur 111,00 -0,45% MESTA HÆKKUN Icelandic Group +0,56% MESTA LÆKKUN Landsbankinn -5,33% FL Group -5,05% Bakkavör -3,85% Launavísitala í mars 2006 er 285,4 stig og hækkaði um 0,3 prósent frá fyrri mánuði, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Á sama tímabili jókst verðbólga um 1,1 prósent. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,6 prósent. Vísitalan tók nokkurn kipp upp á við í janúar, en þá tóku gildi samningsbundnar launahækkanir. „Launavísitala fyrir helstu launþegahópa á fyrsta ársfjórð- ungi 2006 er 150,8 stig og hækkaði um 4,4 prósent frá fyrri ársfjórð- ungi. Sambærileg vísitala fyrir opinbera starfsmenn og banka- menn er 153,7 stig og hækkaði um 4,2 prósent. Vísitala fyrir almenn- an markað er 148,8 stig og hækk- aði um 4,5 prósent,“ segir Hag- stofan. Tryggvi Þór Herbertsson, for- stöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, segir nokkuð koma á óvart að ekki skuli vera meiri hækkun á vísitölunni vegna launaskriðs. „En það er hins vegar alveg ljóst að kaupmáttur fer minnkandi, um það er engum blöð- um að fletta. Við sjáum nú byrjun- ina á kaupmáttarrýrnuninni sem þetta verðbólguskot leiðir til,“ segir hann. Launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fast- eignaveðlána í maí 2006 er 6.243 stig. - óká IÐNAÐARMAÐUR Í BANKAHVERFI Verð- bólga eykst nú hraðar en launavísitala hækkar þannig að kaupmáttur minnkar. Kaupmáttur launa fer minnkandi ÞRÓUN LAUNAVÍSITÖLUNNAR Breyting Mánuður Vísitala 3 mán 12 mán 2005 Mars 262,9 12,1% 6,5% Apríl 264,2 4,8% 6,7% Maí 265,9 6,3% 6,6% Júní 267,0 6,4% 6,3% Júlí 268,0 5,9% 6,6% Ágúst 268,9 4,6% 6,7% September 269,8 4,3% 6,9% Október 270,6 3,9% 6,9% Nóvember 272,3 5,2% 7,3% Desember 273,9 6,2% 7,2% 2006 Janúar 282,8 19,3% 8,3% Febrúar 284,4 19,0% 8,6% Mars 285,4 17,9% 8,6% Heimild: Hagstofa Íslands � � � � � � � � � � � � � ���������� ���������������������� �������������� ������������� � � � � � � � � � � � � � � ��������� ������������������������ ��������� ��������������������������������������������� ��������� � � � � � � � � � � � � � �� � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � ��������� ���������������������� � ������������������������������� � ������������������� ������������������������ � ������������������������������������������� � �������������������������������������������������������� �� � ������� � ������������������������������������������ � ��� ������������������������������������ � ����������������������������������������������������������� � ���������������������������������������������������������� ��������� ��������� ��������������� ������������������������������������������������� � � � � � � ������������������������������� � � ������ ������� ����� � � �� � �� � ��� �� � �� � � � �� � � � � � Landsvirkjun hefur óskað eftir til- boðum í IP-símstöðvar og tilheyr- andi símabúnað fyrir skrifstofu fyrirtækisins á Akureyri, í Laxár- stöð og í Kárahnjúkastöð. Verkefnið er nokkuð stórt á sviði upplýsingatækni, en í því felst meðal annars útvegun, for- ritun, uppsetning, gangsetning, prófunir og kennsla á símstöðv- arnar og fylgjandi símabúnað. Tilboðum í verkið á að skila á skrifstofu Landsvirkjunar fyrir klukkan tvö, miðvikudaginn 17. maí, en þar verða þau opnuð og lesin upp að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. - óká Tilboða óskað í IP-símstöð Nýjasta tölublaði Iceland Review fylgir 24 síðna blaðauki um íslenskt efnahagslíf og banka undir yfirskriftinni „Icelandic banking on solid ground.“ Að sögn útgáfufélagsins er ritið gefið út í samvinnu við bankana og Kauphöll Íslands til að bregðast við umkvörtun- um erlendis frá um að Íslendingar geri ekki nóg til þess að kynna fyrir- tæki sín og sjónarmið. Iceland Review kemur út í lið- lega 10.000 eintökum en blað- aukinn er líka prentaður sérstak- lega í 6.000 eintökum og verður notaður til kynningar meðal erlendra fjölmiðla, banka- og verð- bréfafyrirtækja og annarra sem viðskipti eiga við Ísland. - óká ÚR BLAÐAUKANUM Bankablaðauka dreift erlendis MARKAÐSPUNKTAR... Olíuverð rauf 73 dollara múrinn á helstu mörkuðum í gær m.a vegna auk- innar spennu vegna kjarnorkuáætlunar Írana og minni olíubirgða í Bandaríkjun- um en talið var. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,4 prósent í Bandaríkjunum í marsmánuði en það nemur 3,4 prósenta hækkun á ársgrundvelli. Atvinnuleysi var minna, laun hærri og vinnudagurinn lengri á fyrsta ársfjórð- ungi í ár en á sama ársfjórðungi í fyrra. Í Morgunkorni Glitnis banka í gær kom meðal annars fram að laun hækkuðu um 8,5 prósent á tímabilinu, atvinnu- leysi fór úr 3,0 prósentum í 2,4 prósent og meðalvinnuvikan fór úr 40,7 stund- um í 41,2 stundir. Úrvalsvísitalan er komin undir það gildi sem hún stóð í um áramótin. Þá stóð hún í 5.534 stigum en loka- gildi hennar í gær var 5.397 stig eftir 2,5 prósenta dagslækkun. Gengi krónunnar féll jafnframt um 3,5 prósent í gær sem er ein mesta lækkun hennar í fimm ár. Mikið fall hefur verið á hluta- bréfamarkaði eftir páska. Þannig hafa hlutabréf allra félaga í Úrvalsvísitöllunni lækkað, mest bréfa í FL Group og Landsbankan- um eða um tíu prósent. Nú er svo komið að gengi bank- anna er lægra en það var um ára- mótin. Landsbankinn hefur til að mynda lækkað um 15,8 prósent frá áramótum, Glitnir um 4,6 prósent og KB banki um 1,7 prósent. Straumur-Burðarás hefur hins vegar hækkað lítillega á árinu. „Það ríkir sú skoðun að botnin- um sé ekki náð. Þá fara margir á hliðarlínuna og setja peningana í áhættulausa fjárfestingu,“ segir Jónas Gauti Friðþjófsson, sér- fræðingur hjá Glitni. Fjárfestar flýja í öruggt skjól með því að leggja peningana sína inn á ellefu prósenta markaðsreikninga. Óvíst er um að þriggja mánaða uppgjör stóru félaganna, sem lofa góðu, hafi nokkur áhrif. Greinilegt er að margir fjárfest- ar, sem hafa verið fjármagnaðir í erlendum lánum, eru að taka á sig tvöfalt tap með falli hlutabréfa og veikingu krónunnar og geta því ef til vill ekki, eða vilja ekki, koma á ný inn á hlutabréfamarkaðinn. Jónas bendir á að rekstrargrund- völlur flestra fyrirtækja í Kauphöll Íslands sé traustur og horfur góðar, meðal annars hjá fjármálafyrir- tækjunum sem hafa lækkað ört. Hins vegar er stemningin fyrir hlutabréfum neikvæð og mótlætið mikið: „Þegar koma fram þekktar fjármálastofnanir og lýsa því yfir í fyrirsagnastíl að ástandið hér sé slæmt og samdráttur framundan, þá hljómar það illa í eyrum hins almenna fjárfestis.“ Ekki bæti úr skák að framundan eru verðbólgu- skot og vaxtahækkanir. Ekki er talið ólíklegt að stærri fjárfestar séu farnir að finna fyrir lækkunum á markaði, enda hafa margir þeirra tekið þátt í hluta- fjáraukningum með erlendri fjár- mögnun. Margir eru þó enn í mikl- um plús þar sem hlutabréfaverð hefur hækkað um 36 prósent á síð- ustu tólf mánuðum. eggert@frettabladis.is Botnlaus hlutabréfamarkaður Úrvalsvísitalan lækkar niður fyrir áramótagildið í mikilli lækkun annan daginn í röð. Neikvæð stemning ríkir á hlutabréfamarkaði og fáir vilja taka þá áhættu að kaupa hlutabréf. MESTU LÆKKANIR EFTIR PÁSKA Félag Breyting FL Group -10,1% Landsbankinn -9,4% Dagsbrún -5,2% Bakkavör -5,0% KB banki -4,8% Straumur -3,6% Glitnir -3,5% Atorka Group -3,5% Flaga Group -2,4% Mosaic Fashions -1,7% Actavis -1,5% Alfesca -1,0% Marel -0,8% Össur -0,5% Kögun -0,4% Skriðið á hjánum Mikil samkeppni hefur verið milli banka um viðskiptavini, hvort sem um einstaklinga eða fyrirtæki hefur verið að ræða, þar til nú. Heyrast sögur af því að bankarnir hafi nánast skrúfað fyrir öll útlán vegna þeirrar stöðu sem upp er komin að þeir þurfi að endurfjármagna sig. Líkir einn bankamaður því þannig að bankarnir hafi nánast kropið fyrir framan kúnnann og beðið hann um að taka lán. Í einni svipan hafi þetta hins vegar snúist við og nú eru það lántak- endur sem fari á hnén til að biðja um lán. Einhvern tíma hefði nú þetta þótt óskastaða fyrir bankana. Newcastle tapar Enska úrvalsdeildarliðið Newcastle Utd. tapaði 6,3 miljónum punda fyrir skatta á sex mánaða tímabili frá ágúst til janúar. Þetta samsvarar 800 milljónum króna. Til samanburðar hagnaðist félagið um 9,7 milljónir punda fyrir skatta á sama tímabili í fyrra. Tekjur félagsins drógust saman um þrettán prósent vegna færri leikja í öllum mótum og voru 43 milljónir punda. Hagnaður félagsins að frátöldum leikmannaviðskiptum var um 2,7 milljónir punda og féll um 68 prósent á milli ára. Mestu munaði að metfjárhæð var reidd af hendi fyrir framherjann Michael Owen. Stjórnarformaðurinn Freddy Shepherd segir að árangur félagsins á keppnisíma- bilinu valdi sér vonbrigðum, enda hafi miklar væntingar verið um góðan árangur. Peningaskápurinn...
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.