Fréttablaðið - 20.04.2006, Side 32
20. apríl 2006 FIMMTUDAGUR32
Vinstri græn hafa lagt ríka áherslu
á það undanfarnar vikur að skipu-
leggja þurfi góðan miðbæ á Sel-
fossi. Miðbæ eins og þekkist víða
með áherslu á verslun, þjónustu,
menningarstarfsemi og veitinga-
hús. Í honum þarf að vera stórt
torg þar sem fólk getur safnast
saman á góðviðrisdögum eða
þegar einhver tilefni eru til.
Þau merku tíðindi áttu sér stað
í síðustu viku að Sveitarfélagið
Árborg eignaðist land Miðjunnar.
Með því voru hugmyndir dönsku
arkitektastofunnar 3XNielsen um
háhýsi lagðar til hliðar. Þar með
voru einnig fyrri hugmyndir
meirihluta Framsóknarflokks og
Samfylkingar um uppbyggingu
svæðisins lagðar til hliðar. Vinstri
græn eru mjög ánægð með þessa
kúvendingu meirihlutans. Það
stefndi í það að þetta yrði eitt af
stóru kosningamálunum í vor og
þá hefðu meirihlutaflokkarnir átt
erfitt með að mæta ferskum hug-
myndum Vinstri grænna. Það er
vel skiljanlegt að meirihlutinn
hafi ekki treyst sér í þá baráttu.
Vinstri græn eru undrandi á því að
bæjaryfirvöld hafi ætlað að afsala
sér þá ábyrgð að eiga frumkvæði
að því að byggja hér upp miðbæ.
Þessa stefnu átti hins vegar meiri-
hlutinn að vera búinn að taka fyrir
löngu síðan áður en Miðjumenn
létu vinna hugmyndir sínar með
ærnum tilkostnaði. Þessi klaufa-
legu vinnubrögð meirihlutans
hljóta einnig að auka kostnað
sveitarfélagsins, því það hefði
verið ódýrara að kaupa lóðirnar á
miðbæjarsvæðinu fyrr.
Greinilegt er að þessi breyting
meirihlutans veldur Sjálfstæðis-
flokknum nokkrum vandræðum.
Það er greinilegt að á þeim bænum
eru menn ekki sammála um mið-
bæjarmálið. Þeir hafa sent frá sér
yfirlýsingar um að þeir undrist
stefnubreytingu meirihlutans,
sem hlýtur þó að vera fagnaðar-
efni fyrir formann Miðbæjar-
félagsins sem er á lista Sjálfstæð-
isflokksins.
Vinstri græn hafa bent á það að
eðlilegast sé að efna til hugmynda-
samkeppni um miðbæjarskipulag.
Ýmsum aðilum gæfist þar kostur
á að taka þátt í spennandi verkefni
í ungu sveitarfélagi sem ekki
hefur eiginlegan miðbæ í dag. Slík
hugmyndasamkeppni myndi án
efa verða eftirsóknarverð, ein-
stakt tækifæri fyrir arkitekta og
fyrir Árborgarbúa. Það eru spenn-
andi tímar framundan í skipulags-
málum Árborgar.
Vinstri græn – hreinar línur.
Höfundur skipar 2. sæti á lista
VG í Árborg við komandi sveitar-
stjórnarkosningar.
SENDIÐ OKKUR LÍNU
Við hvetjum lesendur til að senda okk-
ur línu og leggja orð í belg um málefni
líðandi stundar. Greinar og bréf skulu
vera stutt og gagnorð. Eingöngu er
tekið á móti efni sem sent er frá Skoð-
anasíðunni á visir.is. Þar eru nánari
leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort
efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í
báðum miðlunum að hluta eða í heild.
Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til
að stytta efni.
Oft hafa menn amast við athuga-
semdum útvarpsráðs gagnvart
rekstri Ríkisútvarpsins. Sem
starfsmaður RÚV í áratug var ég
oft gagnrýninn á ýmislegt sem frá
því ráði kom. En það var ég líka
gagnvart stjórn stofnunarinnar.
Ekki voru starfsmenn alltaf sáttir
við hana. Við vildum láta taka
meira tillit til Starfsmannafélags
Útvarpsins og Starfsmannafélags
Sjónvarpsins sem síðan voru sam-
einuð í Starfsmannafélag RÚV.
En þegar allt kom til alls sætti ég
mig við þessa togstreitu. Hún var
ekki með öllu slæm. Hún endur-
speglaði þá staðreynd að Ríkisút-
varpið er almannastofnun, í
almannaeign, sem engu að síður
nýtur sjálfstæðis og byggir á tilliti
til starfsmanna. Vilja til þess að
koma til móts við starfsmenn sýndu
stjórnendur RÚV í verki þegar
samið var um aðkomu fulltrúa
starfsmanna að framkvæmdastjórn
Ríkisútvarpsins í byrjun níunda
áratugarins. Þetta byggðist reynd-
ar á samningsbundnu ákvæði í
kjarasamningum árið 1980 en í
mörgum ríkisstofnunum var
ákvæðið hins vegar virt að vettugi.
Ofurtrú á hinum sterka manni
Með hlutafélagavæðingu Ríkisút-
varpsins er þetta sambýli fulltrúa
eigenda, stjórnar stofnunarinnar
og starfsmanna sett í uppnám;
sambýli sem í senn hefur byggt á
togstreitu og samvinnu. Með háeff-
væðingu RÚV fengi útvarpsstjóri
nánast alræðisvald við fram-
kvæmd dagskrár og við allt manna-
hald. Páll Magnússon, útvarps-
stjóri, hefur farið mikinn til þess
að ná til sín þessum völdum. Í grein
í Morgunblaðinu 19. janúar sl. segir
hann að færa megi fyrir því „gild
rök að óbreytt rekstrarfyrirkomu-
lag beri í sér dauðann sjálfan fyrir
þessa merku stofnun“. Útvarps-
stjóri telur að með því að losa
stofnunina undan reglum sem gilda
um opinberan rekstur, og þá vænt-
anlega styrkja hann í sessi sem
stjórnanda, muni gerast krafta-
verk: „Núverandi rekstrarform
kemur beinlínis í veg fyrir að Rík-
isútvarpið verði rekið með skil-
virkum og árangursríkum hætti.
Það leiðir til verri nýtingar á fjár-
munum en ella væri, sem aftur
þýðir að minna fé verður til ráð-
stöfunar í sjálfa dagskrána...“
Um þetta leyfi ég mér að hafa
miklar efasemdir. Stjórnenda-
hyggja af þessu tagi virðist hins
vegar eiga nokkuð upp á pallborð-
ið um þessar mundir: Ofurtrú á
hinum sterka stjórnanda sem
skákar liðsmönnum sínum til í
anda skilvirkni og hagkvæmni. Ég
hef meiri trú á einstaklingnum en
svo að ég sé tilbúinn að gleypa
slíka hugmyndafræði. Hefur mér
enda sýnst kraftmestu stofnanirn-
ar og fyrirtækin vera þau sem
virkja sköpunarkraft hvers og
eins en leggja ekki allt traust sitt á
hinn alvitra ofurlaunaforstjóra.
Þá vil ég minna á að um árabil
hefur Ríkisútvarpið verið fjár-
hagslega svelt og er þar komin
helsta skýringin á vandræðum
stofnunarinnar.
Að ráða og reka skýringarlaust
Undir hitt vil ég taka með Páli
Magnússyni, útvarpsstjóra, að
sitthvað þarf að laga í stjórnsýslu
Ríkisútvarpsins og þá ekki síður í
tengslum stofnunarinnar við
stjórnvöld, þótt ekki vilji ég þær
lausnir sem honum hugnast helst.
Páll Magnússon talar um úrelt
ráðningarform og annað sem lýtur
að stjórnskipulaginu, „- t.d. sér-
kennilegu ferli þegar kemur að
ráðningum í ýmsar lykilstöður.“
Og núverandi útvarpsstjóri spyr:
„Man einhver eftir „fréttastjóra-
málinu“? Því er til að svara að ég
man það ágætlega. Reynt var að
ráða fréttastjóra sem ekki þótti
standast kröfur varðandi reynslu
og þekkingu. Úr þessu varð mikið
uppnám, innan og utan stofnunar.
Öllum kom málið við, einfaldlega
vegna þess að við eigum þessa
stofnun og samkvæmt lögum og
reglum sem um hana gilda geta
þeir sem fara með völdin í stofn-
uninni ekki farið með hana að
eigin geðþótta einsog fram-
kvæmdastjórar í fyrirtækjum eða
stofnunum sem gerðar hafa verið
að hlutafélögum. Og af tilefni
spurningar Páls Magnússonar
spyr ég á móti: Man einhver eftir
fréttastjóramálinu á Stöð tvö?
Æðstráðandi á þeim bænum, sem
einnig hét Páll Magnússon, sagði
upp fréttastjóranum – skýringar-
laust. Hann þurfti ekki að standa
almenningi skil gerða sinna. Á
Fréttablaðinu var nýlega sagt upp
ritstjórnarfulltrúa, einnig skýr-
ingarlaust – alla vega á opinber-
um vettvangi. Ritstjóri og fulltrúi
eigenda komust upp með slíkt.
Nú er ég ekki að halda því fram
að aldrei kunni að vera réttmætt
að segja starfsmanni upp starfi.
Ég er einfaldlega að halda því
fram að um fjölmiðil í eigu þjóðar-
innar gildi önnur lögmál en í fyrir-
tækjum almennt. Þetta endur-
speglast í löggjöf sem á að tryggja
gagnsæi, jafnræði og góða stjórn-
sýslu. Undan öllum þeim lögum
sem eiga að stuðla að þessu yrði
Ríkisútvarpið tekið ef það yrði
gert að hlutafélagi.
Að lokum þetta: Páll Magnús-
son, útvarpsstjóri, segist „tala þar
fyrir munn alls þorra starfsmanna
og stjórnenda stofnunarinnar“,
þegar hann fagni fyrirhuguðum
breytingum. Þetta er af og frá og
vísa ég þar í umsagnir hagsmuna-
samtaka starfsmanna og nýlega
ályktun fjölmenns starfsmanna-
fundar.
Höfundur er alþingismaður og
formaður BSRB.
Ríkisútvarp er ekki sama og RÚV HF.
UMRÆÐAN
HLUTAFÉLAGA-
VÆÐING RÍKIS-
ÚTVARPSINS
ÖGMUNDUR JÓNASSON
ALÞINGISMAÐUR
Með háeffvæðingu RÚV fengi
útvarpsstjóri nánast alræðis-
vald við framkvæmd dagskrár
og við allt mannahald. Páll
Magnússon, útvarpsstjóri,
hefur farið mikinn til þess að
ná til sín þessum völdum.
Hugmyndir Vinstri
grænna ná fram
UMRÆÐAN
SKIPULAGSMÁL Í
ÁRBORG
HILMAR BJÖRGVINSSON
Vinstri græn eru mjög ánægð
með þessa kúvendingu meiri-
hlutans. Það stefndi í það
að þetta yrði eitt af stóru
kosningamálunum í vor og þá
hefðu meirihlutaflokkarnir átt
erfitt með að mæta ferskum
hugmyndum Vinstri grænna.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI