Fréttablaðið - 20.04.2006, Side 43
FIMMTUDAGUR 20. apríl 2006
Í dag er sumardagurinn fyrsti
og til að taka vel á móti sumr-
inu er ekki úr vegi að hreinsa
aðeins til heima fyrir og setja
heimilið í sumarfötin.
Sumarlegur
borðbúnaður
dregur fram
rétta sumar-
skapið. Fallega
litaðar könnur,
kaffibollar með blómamynstri, lit-
ríkir diskar og sumarmynstraðar
diskamottur og dúkar draga fram
réttu stemninguna.
Afskorin blóm ilma vel og eru
falleg fyrir augun.
Blómin má hafa hvar
sem er á heimilinu,
á náttborðinu,
við baðkarið,
eldhús-
borðinu
eða þar
sem þeirra
er notið
best.
Kuldaskórnir
eiga að fara aft-
ast í skápinn og
sumarsandalarnir skipa
sæti fremst. Einnig er gott að fara
í gegnum fataskápinn og hreinsa
til fyrir sumarið.
Háir eða hálflokaðir kertastjakar
gefa góða stemningu úti í kvöld-
skímunni. Einnig gefur stemningu
að hafa kyndla eða standandi
kertastjaka úti við.
Á sumrin er gott að eiga nóg af
skordýraeitri og flugnaspöðum.
Einnig er gott að muna að loka
gluggum í herbergjum þar sem
ljós skín á kvöldin, ljósið laðar að
flugur og geitunga- og hunangs-
flugudrottningar.
Teppi og púðar í þungum litum
eiga að vera uppi í skáp yfir sum-
arið. Með því að hafa sumarleg
teppi eða púða í léttum litum er
heimilið gætt lit. Einnig er ekki úr
vegi að setja upp þykkar gardínur
í svefnherberginu til að fá dimmu
en á öðrum
stöðum má
hengja
upp léttari
gardínur
svo birt-
an nái
inn.
Grillið
er farið
að þrá
að komast í notkun og því
ekki úr vegi að finna til öll áhöld,
kol og olíu svo allt sé tilbúið þegar
sumarsvengdin kallar.
Sumar í bæ
Dagana 21. til 23. apríl stendur
yfir sýningin Sumar 2006 í Laug-
ardalshöll. Á sýningunni má finna
allt milli himins og jarðar sem
tengist sumrinu, sumarhúsinu,
heimilinu, garðinum, umhverfi og
einnig ferðalögum, heilsu og
ýmissi afþreyingu.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir
alla þá sem vilja finna sniðugar
hugmyndir fyrir heimilið eða
sumarhúsið fyrir þessa skemmti-
legu árstíð sem nú var að ganga í
garð.
Sýningin verður opin föstudag-
inn 21. apríl frá klukkan 16 til 19.
Á laugardaginn verður opið frá
frá 11 til 19 og á sunnudeginum
verður opið frá 11 til 18. Sýningin
er haldin í nýju höll Laugardals-
hallarinnar.
Sumar 2006
Sýningin sumar 2006 stendur yfir um helgina og þar mun kenna
ýmissa grasa.
Þeir sem vilja leita góðra hugmynda fyrir
heimilið, garðinn og sumarhúsið ættu að
líta við á sýningunni Sumar 2006.