Fréttablaðið - 20.04.2006, Síða 44

Fréttablaðið - 20.04.2006, Síða 44
 20. apríl 2006 FIMMTUDAGUR Í GARÐINUM HEIMA HAFSTEINN HAFLIÐASON SKRIFAR UM POTTAPLÖNTUR Sánktipálían, Saintpaulia ionantha, er líklega sú pottaplanta sem auðveldast er að rækta og fá til að blómgast í heimahúsum og um leið sú líklegasta til að standa vanrækt og misskilin einhversstaðar þar sem lítið ber á. En sánktipálían á alla athygli og allt gott skilið, því þegar vel tekst til getur hún staðið sem stofustáss allt árið og blómgast viðstöðulaust. Þýskur barón og nýlenduherra Hin ræktaða sánktipálía á ættir sínar að rekja til einnar tegundar sem vex í giljum og klettaskorum í hlíðum Usambarafjalla í nýlendunni sem eitt sinn hét Tanganyika en tilheyrir nú ríkjasambandinu Tanzaníu í Austur- Afríku. Þar var hún uppgötvuð af þýskum baróni sem var landstjóri í hinum þýska hluta nýlendunnar, Walter von Saint Paul, árið 1892. Baróninn sendi föður sínum nokkrar plöntur heim til Þýskalands og þar voru þær kynntar vísindunum. Í staðinn fengu þeir feðgar þessa áður óþekktu plöntuættkvísl nefnda eftir sér. Í ættkvíslinni eru um 20 tegundir, sem allar eiga sín ból í fjöllum Afríku. Vekur móðurást Upprunalega sánktipálían ber fjólublá blóm, með sérkennilega holdmiklum blómblöðum og djúpum, sindrandi gljáa. En það kom líka í ljós við rækt- unina að plönturnar vildu breyta sér og fá aðra blómliti. Annað varð líka til að auka vinsældirnar. Það var það, að afar auðvelt var að fjölga plöntunum. Það þurfti ekki annað en að halda blaðstilkunum eða bút úr blaði á rakri mold. Þá skaut það út rótum og upp óx ný planta. Þessi eiginleiki vakti móðurást og umhyggju hjá fjölda fólks og fyrr en varði var búið að stofna sánktipálíuklúbba víða um lönd og enn í dag eru þessir klúbbar í fullu fjöri, einkum í Breska Heims- veldinu og í Bandaríkjum Norður- Ameríku. Á ensku heitir sánktipálían „African violet“. Tók Ameríku með trompi En á árunum eftir fyrri Heimsstyrj- öldina, 1914-18, voru fleiri tegundir ættkvíslarinnar komnar til sögunnar, hver með sín sérkenni. Það sýndi sig að auðvelt var að æxla tegundunum saman en blendingarnir þóttu svo sem ekkert taka frumtegundinni fram, svo að lítið varð úr kynbótum af þessu tagi hér austanhafs. Þegar svo sánktipálían barst til Bandaríkjanna um 1926 tók við henni maður af þýskum ættum, Hermann Holtkamp að nafni. Hann var ófeiminn við kyn- bæturnar og hafði skýr markmið að leiðarljósi. Það má eiginlega gera ráð fyrir að allar þær sánktipálíur sem við þekkjum séu frá honum komar. Holt- kamp skapaði „sánktipálíustórveldi“ og kom sánktipálíum inn á hvert heimili í norðanverðri Norður-Amer- íku. Fjölskylda hans og afkomendur halda enn uppi merkinu og árlega koma tugir nýrra afbrigða fram og fara í sölu frá þeim. Sagt er að amerískar húsmæður séu snillingar í og setji stolt sitt á að rækta fallegar sánkti- pálíur. Hóflegur raki og víðir pottar Sánktipálían gerir ekki miklar kröfur. Henni nægir að standa á björtum stað, ekki í suðurglugga en gjarna þar sem hún nýtur síðdegissólar. Venjulegur stofuhiti á vel við hana og fá hún ögn af „blóma“-áburði af og til og ljós frá björtum lampa á veturna má búast við því að hún standi í blóma árið um kring. Dragsúgur, kalt vatn og dýblaut mold eru fljót að gera út af við hana og forðast skyldi að bleyta blöðin mikið, heldur láta hana draga upp volgt vatn neðanfrá í hvert skipti sem hún er vökvuð. Sánktipál- ían þrífst best í víðum og grunnum pottum í loftríkri, jafnrakri mold. Er illa við umpottun, en ungar plöntur blómgast meira en gamlar. Í stuttu máli: Sánktipálía - Saintpaulia ionantha hybr. Ætt: Gesneriaceae / Sumargull- sættin Uppruni: Usambarafjöll í A-Afríku. Notkun: Blómplanta. Birta: Mikil birta - milt sólskin. Kjörhiti: Stofuhiti - 18-25°C. Vökvun: Haldið moldinni rakri, vökv- ið neðanfrá og alltaf með volgu vatni. Áburður: Blanda fyrir „blómstrandi“ vikulega á sumrin. Umpottun: Getur staðið lengi í sama pottinum. Endurnýið plönt- urnar eftir þörfum. Sánktipálía - góða stelpan sem of oft er misskilin Full búð af nýjum vörum PÍANÓSTILLING.IS Kristinn Leifsson - Leifur Magnússon S. 661-7909 Bæjarlind 6, Kóp. • s. 5347470 • www.feim.is Opi› virka daga 10-18 og laugardaga 10-16 Gleðilegt sumar Verðum með Bear Chair garðhúsgögnin á sýningunni í Garðyrkjuskóla ríkisins í Hveragerði í dag, sumardaginn fyrsta. Sjón er sögu ríkari. 10% sýningarafsláttur • Skúringafatan úr sögunni • Alltaf tilbúið til notkunar • Gólfin þorna á augabragði • Fljótlegt og þægilegt Húsasmiðjan - Byko - Daggir Akureyri - Áfangar Keflavík - Brimnes Vestmannaeyjum - Fjarðarkaup - Litabúðin Ólafsvík - Parket og gólf - Rými - SR byggingavörur Siglufirði - Rafsjá Sauðárkróki - Skipavík Stykkishólmi - Nesbakki Neskaupsstað -Byggt og búið - Takk hreinlæti. Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.