Fréttablaðið - 20.04.2006, Page 54
54 20. apríl 2005 FIMMTUDAGUR
Sumardeginum fyrsta er best lýst sem umhleypingatíma enda kemur hann upp á miðju
vori og mikill munur er á veðurfari
sunnanlands og norðanlands,“
segir Páll Bergþórsson, veður-
fræðingur. Þrátt fyrir að þessi
tímamót gefi fögur fyrirheit hefur
reyndin verið sú undanfarin ár að
veðurguðirnir hafa kært sig koll-
ótta og menn og skepnur um landið
allt oftar upplifað rigningu, golu
eða slyddu þennan dag en sól og
hlýindi. Spár dagsins eru á svipuð-
um nótum. Víða verður skýjað og
hitastig fer vart yfir fimm stigin
hvort heldur er sunnan- eða norð-
anlands.
Sumardagurinn fyrsti er tákn-
rænn í hugum margra landsmanna
en hann ber ávallt upp fyrsta
fimmtudag eftir átjánda apríl og
getur því verið breytilegt hvaða
vikudag hann ber upp á. Segja má
að vart geti tímasetningin verið
betri því hann ber upp á þeim tíma
sem vetri sleppir og sumarið tekur
við en eðli málsins samkvæmt er
sá tími umhleypingasamur þó mjög
dragi úr afli veðurkerfa í háloftun-
um. Um þetta leyti er norðaustan-
átt ríkjandi og tíðust á landinu öllu
og loftþrýstingur jafnan hvað
hæstur.
Reykvíkingar hafa aldrei upp-
lifað þennan dag heitari en árið
1998 þegar hitastigið mældist 13,5
gráður og skein sól skært mestall-
an þann dag. Sólríkastur var hann
þó upp úr síðustu aldamótum þegar
sól vermdi vanga borgarbúa í 14,6
klukkustundir. Þurrt er yfirleitt í
veðri suðvestanlands og sjaldan
rignir. Lágmarkshiti umrædds
dags var árið 1949 þegar hitastigið
var -8,9 gráður og fjórum sinnum
frá þeim tíma hefur hitastig ekki
farið upp fyrir frostmark þennan
dag. Tvisvar sinnum síðustu 50 ár
hefur jörð verið alhvít sumardag-
inn fyrsta í höfuðborginni.
Hæsti hiti þennan daginn á
landsvísu mældist á Akureyri árið
1976 þegar hitinn fór í 19,8 stig.
Lægst fór það árið 1988 í Miðfirði
þegar frostið náði 18,2 gráðum.
Þórólfur Jónsson, forsvarsmað-
ur Veðurklúbbsins á Dalvík, segir
engar sérstakar spár gerðar vegna
sumardagsins fyrsta. Aðeins sé
spáð í lok hvers mánaðar fyrir
þann næsta. „Við spáum að það
verði áframhaldandi norðanáttir
að mestu í veðrinu fram eftir apríl
mánuði. Því ljúki þó þann 27. apríl
og þá taki við hlýindi og sumarið
fari að ganga í garð fyrir alvöru.“
Hjá Vegagerðinni fengust þær
upplýsingar að ástand vega væri í
meðallagi miðað við árstíma. Lang-
flestir fjallvegir landsins eru færir
þó enn séu hálkublettir á stöku
stað. Allir hálendisvegir eru lokað-
ir venju samkvæmt og ástands-
kannanir gefa ekki tilefni til ann-
ars en að þeir verði væntanlega
opnaðir í júní eins og undanfarin
ár.
albert@frettabladid.is
Sumarið er ekki komið þrátt fyrir að sumardagurinn fyrsti sé genginn í garð.
Þessi tími er jafnan umhleypingasamur og svo mun einnig nú. Spámenn
Veðurklúbbsins á Dalvík segja landsmenn þurfa að bíða í tvær vikur enn.
TÆPLEGA FJÓRTÁN GRÁÐU HITI Einn heitasti sumardagurinn fyrsti sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa upplifað var árið 1998 þegar sól skein á háa sem lága og hitastigið náði 13,5 gráðum. Í dag fer hitinn samkvæmt spám vart yfir
fimm gráður og lítið mun sjást til sólar. FRÉTTABLAÐIÐ/HILMAR Þ. GUÐMUNDSSON
Bið eftir sumrinu
SUMARDAGURINN FYRSTI
6°
1950 1970 1990 2000 2005
1° 1° 0°
3°
1°
1°
-1°
8°
10°
Reykjavík
Akureyri
PÁLL BERGÞÓRSSON