Fréttablaðið - 20.04.2006, Side 58
20. apríl 2006 FIMMTUDAGUR42
Höskuldur Kristvinsson,
skurðlæknir og hlaupari,
vann það afrek fyrir páska
að taka þátt í þríþrautinni
Járnmanninum, Ironman, í
Arizona í Bandaríkjunum.
Höskuldur synti 3,8 kíló-
metra, hjólaði 180 kílómetra
og hljóp heilt maraþon, 42,2
kílómetra, á rúmlega sextán
klukkustundum.
Höskuldur sá sjónvarps-útsendingu frá Hawaii-þríþrautinni, sem er ein sú
frægasta af þeim öllum, fyrir
tuttugu árum og datt þá í hug að
taka þátt í þríþraut. Hugmyndin
blundaði í honum í mörg ár. Hann
byrjaði að skokka um svipað leyti
og hann sá þáttinn og hefur haldið
sínu striki. Afreka listinn er orðinn
langur. Hann hefur tekið þátt í tíu
maraþonum á Íslandi og í Banda-
ríkjunum, farið Laugaveginn
fimm sinnum og hlaupið Lappland
últra árið 2003. Árið 2004 tók
Höskuldur þátt í hlaupi kringum
Mont Blanc og hljóp þá 117 kíló-
metra. Í fyrra varð hann svo fyrst-
ur Íslendinga til að ljúka 100 mílna
hlaupi í Ohio í Bandaríkjunum.
Höskuldur ákvað fyrir tíu mán-
uðum að skrá sig í þríþrautina í
Arizona og hóf markvissan undir-
búning fyrir rúmlega hálfu ári.
Hann keypti sér bók með æfinga-
áætlunum fyrir íþróttamenn sem
eru misjafnlega langt komnir og
fór að mestu leyti eftir henni, með
aðlögun þó. Hann hefur hlaupið
um 60 kílómetra á viku og segist
ekki hafa tíma, þörf eða getu til að
hlaupa yfir 100 kílómetra eins og
sumir gera við undirbúning fyrir
svona keppni.
„Undirbúningurinn er öðruvísi
fyrir svona þríþraut en maraþon
því að maður þarf að skipta æfing-
unum milli þriggja greina. Þetta
var 30 vikna prógramm. Æfing-
arnar fara úr því að vera fimm til
sex klukkustundir á viku upp í tíu
klukkustundir á viku síðustu tvo
mánuðina, sund, hjól og hlaup,“
segir hann.
Æfði kappklæddur
Höskuldur segist aldrei hafa
hjólað mikið, rétt kannski í vinn-
una og með krökkunum sínum,
„en ekkert að ráði þannig“. Hann
kveðst ekki heldur vera mikill
sundmaður en tók sundnámskeið
til að undirbúa sig og synti meira
en venjulega enda ekkert grín að
synda tæplega fjóra kílómetra á
innan við tveimur tímum fyrir
óvanan sundmann.
„Það er að mörgu að huga í
undirbúningi fyrir svona keppni.
Maður verður til dæmis að íhuga
veðurfarið á staðnum. Ég vissi að
það gæti orðið heitt í Arizona á
þessum tíma og sú varð raunin.
Við þær aðstæður eiga hlauparar
að æfa sig í heitu umhverfi til að
venja sig við hitann og ég gerði
það. Þrjár vikur fyrir þríþrautina
æfði ég kappklæddur. Ég var til
dæmis í sjö eða átta lögum af
fötum á hjóli úti í bílskúr í klukku-
tíma í senn,“ segir hann.
Höskuldur kom til Bandaríkj-
anna í byrjun apríl. Hann hafði lítið
sem ekkert æft síðustu vikuna,
gætti þess bara að borða og drekka
vel til að hafa næga orku. Veður-
spáin hljóðaði upp á óvenjumikinn
hita, mest 31 og minnst 15 gráður
yfir daginn, og þannig reyndist það
verða. Þátttakendur, sem voru um
tvö þúsund talsins, voru ræstir
klukkan sjö að morgni.
Synti á tveimur tímum
Þríþrautin hófst með því að
synda einn hring í stöðuvatninu í
borginni Tesse. „Mér fannst ég
eitthvað þungur fyrsta hálftím-
ann, kannski vegna þess að ég
hafði borðað svo mikið dagana á
undan, en aðstæður voru ágætar,
veðrið hagstætt og vatnshitinn
alveg bærilegur. Ég kláraði sundið
á innan við tveimur tímum en við
höfðum tvo tíma og tuttugu mínút-
ur til að synda þessa vegalengd,“
segir Höskuldur.
Flestir syntu skriðsund en
Hösk uldur segist aldrei hafa náð
skriðsundstækninni nógu vel til að
synda það. Hann segir að margir
keppenda hafi synt skriðsund með
lélegri tækni og verulegri áreynslu
en sjálfur hafi hann synt bringu-
sund og baksund. „Þeir fóru ekki
hraðar yfir en ég. Ég var sáttur við
að klára sundið því að ég var ekki
viss um að ég myndi hafa það en
það hefði verið skítt að ná því
ekki.“
Höskuldur var með krampa í
kálfunum eftir sundið og tók því
góðan tíma, um 17 mínútna pásu, á
MEÐ VATNSBRÚSANN Á HLAUPUM
Miklu skiptir að gæta þess að drekka og
borða vel þegar lagt er í þríþraut á borð
við þá sem Höskuldur tók þátt í.
Á HJÓLINU Hitinn var mestur yfir daginn
meðan hjólaþrautin stóð yfir.
Járnmaðurinn
í Arizona
KOMINN Í MARK Höskuldur Kristvinsson
sést hér kominn í mark.inga til að ljúka
EFTIR AFREKIÐ Í góðu ástandi eftir þraut-
ina, aðeins ein nögl brotin eftir afrekið.
UM 2.000 ÞÁTTTAKENDUR Þríþrautin fór
fram í borginni Tempe í Arizona.