Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.04.2006, Qupperneq 78

Fréttablaðið - 20.04.2006, Qupperneq 78
62 20. apríl 2006 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? APRÍL 17 18 19 20 21 22 23 Fimmtudagur ■ ■ SJÓNVARP  17.05 US PGA í nærmynd á Sýn. Fréttaþáttur um bandarísku mótaröðina í golfi.  18.35 Evrópukeppni félagsliða á Sýn. Bein útsending frá leik í keppn- inni.  20.35 Leiðin á HM á Sýn. FÓTBOLTI Hermann Hreiðarsson, leikmaður Charlton og íslenska landsliðsins, var í gær úrskurðað- ur í þriggja leikja keppnisbann af enska knattspyrnusambandinu fyrir að hafa gefið hinum portú- galska Luis Boa Morte, leikmanni Fulham, olnbogaskot í andlitið í viðureign liðanna sl. mánudag. Dómari leiksins sá ekki ástæðu til að gera neitt úr atvikinu á meðan leiknum stóð en dómur FA byggist á myndbandsupptökum frá leiknum sem sýna glögglega að olnbogi Hermanns fer í andlit Boa Morte. „Þetta var alls ekki með vilja gert. Hann var hangandi í mér þegar ég var að hlaupa inn í teig- inn og ég var bara að reyna að hrista hann af mér,“ sagði Her- mann við Fréttablaðið í gær og bætti því við að hann væri að líða fyrir smæð Boa Morte. „Hann er nú ekki hár í loftinu og því miður fór olnboginn í andlitið á honum. Hefði þetta verið stærri leikmað- ur hefði höndin líklega farið í bringuna á honum. Þetta var algjört slys.“ Hermann kveðst hafa beðist Boa Morte afsökunar og allir hafi skilið sáttir. „Við töluðum saman eftir leikinn og tókumst í hendur. Þess vegna skil ég ekki af hverju FA sé að skipta sér að þessu,“ segir Hermann, en þess má geta að Boamorte skoraði bæði mörk Ful- ham í 2-1 sigri liðsins og fór illa með varnarmenn Charlton í ófá skiptin í leiknum. „Ég hef leikið fjölmarga leiki í úrvalsdeildinni og aldrei fengið rautt spjald. Þetta tilvik var ein- faldlega stíf barátta inni á vellin- um sem var gleymd og grafin eftir leikinn. Þess vegna er leiðinlegt að svona skuli fara,“ segir hann, en leikbannið þýðir að Hermann mun ekki spila meira á þessari leiktíð, enda á Charlton aðeins þrjá leiki eftir af deildarkeppn- inni. Charlton er í 11. sæti ensku deildarinnar og á neinast enga möguleika á Evrópusæti. „Við hefðum getað áfrýjað en það er ekki áhættunar virði þar sem þá ætti ég á hættu að missa af upphafi næstu leiktíðar. Það eru þrír leikir eftir og við siglum lygnan sjó um miðja deild svo að það er líklega besti kosturinn að taka út þetta bann núna.“ vignir@frettabladid.is Hermann í þriggja leikja bann fyrir olnbogaskot Landsliðsmaðurinn Hermann Hreiðarsson hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann af enska knattspyrnusambandinu fyrir að hafa veitt Luis Boa Morte oln- bogaskot í leik Charlton og Fulham á mánudaginn. Óviljaverk, segir Hermann. BARÁTTA UM BOLTANN Hermann Hreiðarsson sést hér í baráttu við Luis Boa Morte í leik Charlton og Fulham í ensku úrvalsdeildinni sem fram fór í október á síðasta ári. Þá gerðu liðin 1-1 jafntefli og náði Hermann að hafa góðar gætur á Boa Morte. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES KÖRFUBOLTI Leikmenn og stjórn körfuknattleiksdeildar Snæfells var enn að jafna sig á því að Bárður Eyþórsson hefði ákveðið að yfirgefa félagið þegar Frétta- blaðið heyrði hljóðið í Hólmurum í gær. „Þetta er að sjálfsögðu mikið áfall enda áttum við von á því að halda Bárði,“ sagði Gissur Tryggvason, formaður körfuknatt- leiksdeildar Snæfells, sleginn í gær. „Við erum engu að síður vanir því að fá kjaftshögg hér á hverju ári og það þýðir ekki að gráta Björn bónda heldur safna liði.“ Einn besti leikmaður félagsins, Magni Hafsteinsson, var einnig í áfalli yfir fréttunum af brott- hvarfi Bárðar en hans framtíð er í kjölfar þessara fregna í nokkurri óvissu. Magni segist vilja vera áfram í Hólminum en auðvitað skipti máli hver verði þjálfari og hvernig umgjörðin verði næsta vetur. Hann muni því bíða eftir næstu skrefum stjórnarinnar áður en hann taki ákvörðun um fram- haldið en stjórnin fundaði með leikmönnum seinni partinn í gær. - hbg Snæfell enn að jafna sig á brotthvarfi Bárðar: Óvissa með framhaldið MAGNI HAFSTEINSSON Mörg lið myndu vilja næla í kappann en hann vill helst vera áfram í Hólminum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Körfuboltamaðurinn Jón Arnór Stefáns- son segist ekki líta á sig sem kyntákn í einkar skemmtilegu og áhugaverðu viðtali við opinbera heimasíðu Alþjóða körfuboltasambandsins sem birtist í gær. Um er að ræða vikulegan dálk á heimasíðunni þar sem tekið er viðtal við einhvern þjálfara eða leikmann í Evrópu, en Jón Arnór hefur skapað sér nokkuð stórt nafn í Evrópuboltanum eftir að hafa leikið í Þýskalandi, Rússlandi og nú með Carpisa Napoli á Ítalíu með góðum árangri. Mikið er gert úr meintum kynþokka Jóns Arnórs í viðtalinu og er meðal annars haft eftir Mario Maione, forseta Carpisa, að koma íslenska leikmannsins til liðsins valdið aukinni aðsókn kvenna á leiki liðsins. Jón Arnór segir kvenhyll- ina ekki hafa áhrif á sig. „Ég lít ekki mig sem kyntákn, jafnvel þrátt fyrir að ég hafi nýlega farið á sjúkrahús í rannsókn og hjúkrunarkonurnar vildu ekki að ég færi,“ segir Jón Arnór í viðtalinu en einnig er minnst á að hann sé hávaxinn, ljóshærður og með blá augu. Hann greinir sömuleiðis frá því að hann hafi hlotið hinar ýmsu gjafir frá stuðningsmönnum sínum sem hann fer ekki með heim til sín af ótta við að kærastan verði afbrýðisöm, en sú er Embla Grétarsdóttir, knattspyrnukona úr KR, sem býr með Jóni Arnóri í Napolí. Í viðtalinu segir að hún hafi flutt út til að hafa auga með manninum sínum. „Hvort sem það er á Íslandi eða á Ítalíu, þá vilja konur vera við stjórnvölinn.“ Í viðtalinu er farið yfir stuttan en viðburðaríkan feril Jóns Arnórs og segir hann meðal annars frá ævintýrum sínum með Dallas í NBA-deildinni. Þá segir hann að margir ungir leikmenn með mikla hæfileika séu að koma upp á Íslandi og eftir 10 ár verði landsliðið hugsanlega orðið sam- keppnishæft á alþjóðavísu. JÓN ARNÓR STEFÁNSSON: Í VIÐTALI VIÐ HEIMASÍÐU ALÞJÓÐA KÖRFUBOLTASAMBANDSINS Hjúkkurnar vildu ekki að ég færi Ísland stendur í stað Íslenska karlalandsliðið stendur í stað á nýútgefnum styrkleikalista FIFA og er áfram í 97. sæti listans. Íslenska liðið hefur fallið um tvö sæti frá því á sama tíma á síðasta ári. Brasilía er í efsta sæti listans, þar á eftir koma Tékkar í 2. sæti, Hollendingar í því 3. og þá eru Banda- ríkin komin upp í 4. sæti listans. KÖRFUBOLTI „Það væri fásinna að ætla sér ekki að halda manni eins og Einari,“ sagði Valþór Jónsson, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, við Fréttablaðið í gær. Einar Árni Jóhannsson, þjálfari liðsins, er samningslaus en leiða má líkur að því að hann framlengi samning sinn við Njarðvíkinga. Einar stýrði liðinu til Íslands- meistaratitilsins á mánudaginn en auk þess að vonast til að fá Einar áfram til starfa, eru Njarðvíking- ar vongóðir um að halda einum af lykilmönnum liðsins, Jeb Ivey. „Við höfum enn ekki rætt málin og gerum það ekki fyrr en í næstu viku. Þá ætlum við að tryggja þá sem við viljum tryggja. Jeb Ivey er þeirra á meðal. Við ætlum að ræða við hann áður en hann fer heim í frí,“ sagði Valþór. - hþh Íslandsmeistarar Njarðvíkur: Vilja Einar og Ivey áfram JEB IVEY Gæti vel komið aftur til Njarðvíkur á næsta tímabili. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HNEFALEIKAR Meistaramót Íslands í hnefaleikum fer fram í Kapla- krika á laugardaginn en þetta er fyrsta íslandsmótið í fimmtíu ár. Sýnt verður beint frá keppninni á laugardaginn klukkan 20.00. Miðar eru til sölu hjá hnefaleikafélögun- um, sem og á undankeppninni en aðeins kostar 1.500 krónur á öll þrjú kvöldin. Undankeppni hefst í dag, í hús- næði Hnefaleikafélags Reykja- víkur í Faxafeni 8, en alls eru skráðir 45 keppendur á mótið. Á úrslitakvöldinu verða tólf bardag- ar og því kemst aðeins helmingur keppenda þangað. Keppt verður í karlaflokki, unglingaflokki drengja (16-19 ára) og kvennaflokki. Í kvennaflokki eru fjórir keppendur skráðir í tveimur þyngdarflokkum. Í ungl- ingaflokki drengja eru 19 kepp- endur skráðir í sex þyngdarflokk- um og í karlaflokki eru 22 keppendur skráðir í sex þyngdar- flokkum. Þetta er fyrsta meistaramót sem haldið hefur verið á Íslandi í ólympískum hnefaleikum og því um sögulegan viðburð að ræða. Þá eru rúmlega fimmtíu ár frá því að síðasta meistaramót í hnefaleik- um var haldið á Íslandi. Það fór fram 6. maí 1953. - hþh Hnefaleikar um helgina: Hálfrar aldar bið á enda ÁTÖK Það verður hart barist í Faxafeni næstu tvo daga og svo í Kaplakrika á laug- ardag. FRÉTTABLAÐIÐ/PALLI > Við fordæmum... ...ömurlega hegðun knattspyrnudeildar FH í garð Jónasar Grana Garðarssonar. Þessi 33 ára leikmaður hefur þjónað félaginu dyggilega í átta ár og ekki kvart- að þótt spilatíminn væri oft á tíðum lítill (86 mínútur í fyrra), heldur gefið sig alla í þær mínútur sem hann fékk að spila og oft á tíðum kom hann liðinu til bjarg- ar með mikilvægum mörkum. Í stað þess að þakka honum fyrir frábæra þjónustu á síðustu metrum fer- ilsins ákveður félagið að „binda enda“ á feril Jónasar með því að leyfa honum ekki að spreyta sig með öðru liði í Landsbankadeild- inni og vill þar að auki fá veglegu greiðslu sem fá neðrideildarlið ráða við. Þessi framkoma er flottu félagi eins og FH til háborinnar skammar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.