Fréttablaðið - 20.04.2006, Page 88

Fréttablaðið - 20.04.2006, Page 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 27.-30. apríl Á NASA við Austurvöll. www.riteofspring.is ���������� ���������� Nú hriktir í stoðum íslensks efnahagslífs. Á hverjum degi birtast nýjar greinar og fréttir í erlendum fjölmiðlum um það hvað við séum að fara rosalega mikið á hausinn. Stjórnvöld keppast við að segja okkur að allt sé í lagi og við getum óhrædd haldið áfram að versla og taka lán fyrir kostnaðin- um. En er það svo? ÉG VEIT ekki hvað er í gangi. En mér finnst þetta mjög hentugt tækifæri til að hætta óþarfa lán- tökum. Ég held ekki að þjóðar- skútan sé að sökkva en ég er hræddur um að margir muni detta útbyrðis. Ég held að mikil fátækt sé framundan hér á landi hjá mörgu fólki. Ég held að mjög margir eigi eftir að fara mjög illa út úr lántökum síðustu ára. MARGIR hafa nefnilega lifað í tómum misskilningi. Þeir hafa haldið að þeir væru aflakóngar og yfirmenn um borð en komast brátt að því að þeir eru bara ræðarar og hafa þegar tekið út laun sín og fæði fyrirfram. Ég hef áhyggjur af lánagleði okkar. Fólk tekur lán eins og að drekka vatn. Lán eru eins og dóp. Verslanir eru hættar að auglýsa verð eins og eðlilegt væri heldur er stóra talan við hlut- in aðeins mánaðarleg afborgun. LÁN eru rugl! Þú átt ekki að taka lán. Ekki kaupa það sem þú hefur ekki efni á nema þú þurfir þess nauðsynlega. Nauðsynjar eru hlut- ir eins og bílar, þvottavélar, hús- næði og slíkt. Ekki garðhúsgögn eða heitir pottar eða fjallajeppar eða fellihýsi eða gosbrunnar! Kauptu þér svoleiðis aðeins ef þú átt fyrir því. Staðgreiddu gos- brunn. ÞVÍ EKKI að strengja sumarheit á sumardaginn fyrsta? Því ekki að sleppa því að kaupa það sem við höfum ekki efni á? Hvernig hljóm- ar það? Hvað með að taka ekki lán fyrir tjaldvagni? Hvað með að kaupa ekki garðhúsgögn á rað- greiðslum? Hvað með algjörlega raðgreiðslulaust sumar? ÞVÍ EKKI að reyna að eyða þessu sumri með fjölskyldu og vinum frekar en að vera fjarri þeim að vinna fyrir afborgunum á lánum vegna tjaldvagna sem enginn hefur tíma til að nota og garðhús- gagna sem eru auð? Íslendingar eyða um það bil þrjátíu sekúndum á dag í uppbyggilegar samræður við börn sín. Því ekki að auka það aðeins? Það dýrmætasta sem við getum gefið börnum okkar er ekki dót heldur tími okkar. GLEÐILEGT skuldlaust sumar! Sumarlán Góða skemmtun - Vodafone live! Náðu í svölustu hringitónana hvar og hvenær sem er, með Vodafone live! símanum þínum. Vodafone live! – endalaus skemmtun í símanum þínum. Heitustu hringitónarnir » Silvía Nótt » Hjálmar » Bubbi » Ampop » Black Eyed Peas » Í svörtum fötum » Eminem » Sálin » Beyonce » Madonna ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O G V 3 22 51 04 /2 00 6 Komdu í verslun Og Vodafone, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is fyrir nánari upplýsingar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.