Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.04.2006, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 25.04.2006, Qupperneq 4
4 25. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR ��������������������������������������������������������������������� ������������� ������������ �������������� ���� ������������������������������������������������������������������ ���� ����� ����� � SKOÐANAKÖNNUN Meirihluti Reyk- víkinga, 51,5 prósent, vill að stór- um framkvæmdum í Reykjavík verði frestað vegna stöðu efna- hagsmála í landinu. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Frétta- blaðsins. Um síðustu mánaðamót ákvað Seðlabankinn að hækka stýrivexti sína um 0,75 prósentustig til að stemma stigu við verðbólgu, sem nú mælist 5,5 prósent á ársgrund- velli. Í framhaldinu hefur verið um það rætt að til að meiri ró skapist í íslensku hagkerfi þurfi að fresta stórum framkvæmdum sem fyrir- hugaðar eru hjá ríki og sveitarfé- lögum. 48,5 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust ekki vilja að fram- kvæmdum yrði frestað í Reykja- vík. Margir þeirra tóku það fram að þeir teldu að nú væri komið að landsbyggðinni og að fyrirhuguð- um framkvæmdum þar ætti að fresta. Meðal þeirra framkvæmda á landsbyggðinni sem Reykvíking- ar töldu að ætti að fresta voru Héð- insfjarðargöng og frekari upp- bygging álvera. Konur í Reykjavík eru frekar fylgjandi því að fyrirhuguðum stórframkvæmdum verði frestað í höfuðborginni en karlar. 60,5 pró- sent kvenna sögðust telja að stór- um framkvæmdum ætti að fresta til að ná stjórn á íslenskum efna- hag. 39,5 prósent þeirra sögðust vera því andvíg. Meirihluti karla, 56,4 prósent, var því hins vegar andvígur að stórum framkvæmdum í Reykja- vík yrði frestað. 43,6 prósent karla sögðust vera því fylgjandi. Hringt var í 600 Reykvíkinga laugardag- inn 22. apríl og skiptust svarendur jafnt á milli kynja. Spurt var: Á að fresta einhverjum stórum fram- kvæmdum í Reykjavík vegna stöðu efnahagsmála í landinu? Tóku 82,8 prósent afstöðu til spurningarinnar. Þeir sem sögðust vilja að stór- um framkvæmdum yrði frestað voru jafnframt spurðir hvaða framkvæmd þeir vildu helst sjá frestað. 73,4 prósent þeirra sem sögðust vilja að einhverjum framkvæmd- um yrði frestað tóku afstöðu til þeirrar spurningar. Þar sem tæp- lega 200 svör liggja að baki þeirri spurningu eru vikmörk nokkuð stór í svörum þessarar spurningar en niðurstöðurnar gefa vísbend- ingu um hvaða framkvæmdir það eru sem Reykvíkingar vildu þá helst að yrði frestað. Flestir nefndu byggingu tón- listar- og ráðstefnuhúss við Aust- urhöfn, eða 44,1 prósent þeirra sem afstöðu tóku til þessarar spurningar. Reiknað er með að bygging tónlistarhússins muni kosta um 12,5 milljarða og það verði reist á árunum 2006 til 2008. Næstflestir nefndu lagningu Sundabrautar, eða 25,0 prósent. Samkvæmt áætlunum mun Sunda- braut kosta um átta milljarða og verða lögð á árunum 2007 til 2010. Í þriðja sæti var bygging hátækni- sjúkrahúss, en 14,9 prósent þeirra sem tóku afstöðu til spurningar- innar nefndu það. Gert er ráð fyrir að nýtt hátæknisjúkrahús muni kosta um átján milljarða og rísa á árunum 2007 til 2012. Í fjórða sæti var svo flutningur Reykjavíkur- flugvallar úr Vatnsmýrinni, sem 10,1 prósent svarenda nefndi. Ekki er til kostnaðaráætlun, né heldur tímaáætlun, þar sem ekki hefur verið tekin ákvörðun um slíka framkvæmd. Aðrar framkvæmdir voru nefndar í innan við fimm prósent- um tilvika, en þar á meðal nefndu Reykvíkingar að þeir vildu sjá frestun á öllum gatnaframkvæmd- um í Reykjavík, að ríkisvaldið frestaði öllum sínum framkvæmd- um í Reykjavík og að öllum stór- um framkvæmdum í Reykjavík yrði frestað um óákveðinn tíma. svanborg@frettabladid.is Vilja fresta framkvæmdum Rúmur helmingur Reykvíkinga vill fresta stórum framkvæmdum í Reykjavík vegna stöðu efnahagsmála í landinu. Konur vilja fremur að framkvæmdum verði frestað en karlar. Af þeim sem vilja fresta fram- kvæmdum nefna flestir byggingu tónlistarhúss, lagningu Sundabrautar og byggingu hátæknisjúkrahúss. Já 51,5%Nei 48,5% A) Á að fresta einhverjum stórum framkvæmdum í Reykjavík vegna stöðu efnahagsmála í landinu? B) Ef já, hvaða framkvæmdum á að fresta? Tónlistar- hús Sundabraut Hátækni- sjúkrahús Flytja flugvöll 25 ,0 % 14 ,9 % 44 ,1 % 10 ,1 % VILJI REYKVÍKINGA TIL AÐ FRESTA STÓRUM FRAMKVÆMDUM Í REYKJAVÍK HRAÐAKSTUR Lögreglan í Kópavogi stöðvaði bifreið sem mældist á 144 kílómetra hraða á klukkustund á leið sinni í gegnum Kópavog í fyrrinótt. Ökumaður bílsins, sem var sautján ára og hafði fengið bíl- prófið tíu dögum áður, má búast við ökuleyfissviptingu og hárri fjársekt. Samtals voru sjö ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðan akstur en flestir þeirra óku töluvert yfir leyfilegum hámarkshraða. - mh Ofsaakstur í Kópavogi: Ók á 144 kíló- metra hraða DÓMSMÁL Fimm menn, sem ákærð- ir voru vegna banaslyss sem varð í Hafrahvammsgljúfri fyrir rúmum tveimur árum, voru sýkn- aðir í Héraðsdómi Austurlands í gær. Mennirnir voru ákærðir fyrir brot á lögum um aðbúnað, holl- ustuhætti og öryggi á vinnustöð- um, vegna slyss sem varð þegar tæplega fjörutíu kílóa grjóthnull- ungur féll ofan á 25 ára gamlan mann, Árna Þór Bjarnason, sem var við vinnu í Hafrahvamms- gljúfri þegar slysið varð. Árni Þór var starfsmaður verk- takafyrirtækisins Arnarfells þegar slysið varð en framkvæmda- stjóri fyrirtækisins var einn af þeim fimm sem ákærðir voru. Tveir ákærðu voru starfsmenn ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo og tveir voru starfs- menn eftirlitsfyrirtækisins VIJV. Í dómnum segir meðal annars að engar reglur um gerð áhættu- mats hafi verið í gildi þegar slysið varð. Ekki sé því fyrir neinum leiðbeiningum í lögum að fara sem með einhverjum hætti geti varpað ljósi á það hvenær áhættumat vegna öryggis á vinnustöðum sé fullnægjandi og hvenær ekki. Sakarkostnaður, samtals um 7,5 milljónir króna, greiðist úr ríkis- sjóði. - mh Dómur fallinn í Héraðsdómi Austurlands í banaslysmáli: Allir fimm ákærðu sýknaðir ÚR HAFRAHVAMMSGLJÚFRI Banaslysið varð 15. mars 2004. Samtals hafa orðið þrjú banaslys á framkvæmdasvæðinu við Kárahnjúka. FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTÍN NEPAL, AP Gyanendra konungur Nepals lofaði að setja neðri deild þingsins á nýjan leik, í ræðu sem var útvarpað og sjónvarpað seint í gærkvöldi. Jafnframt sagðist hann harma lát þeirra sem farist hafa í langvinnum og ofbeldisfull- um mótmælum landsmanna gegn einræði hans. Gyanendra leysti þingið upp árið 2002, en endursetning þess var ein krafa sjö helstu stjórn- málaflokka landsins, sem í sam- einingu hafa staðið fyrir mótmæl- unum undanfarnar vikur. Konungur sagðist jafnframt von- ast til þess að friður kæmist fljót- lega á í landinu á nýjan leik. - smk Nepalski konungurinn: Endursetur neðri deild þingsins GYANENDRA Konungur Nepals endursetti neðri deild þingsins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DANMÖRK Tveir af hverjum þrem- um flugstjórum hjá danska flug- félaginu Sterling, sem er í eigu FL Group, felldu nýjan kjara- samning sem félagið bauð þeim fyrir helgina. Samkvæmt frétt viðskipta- blaðsins Børsen í gær eru það flugmenn sem áður störfuðu hjá Mærsk Air sem helst eru ósáttir. Talsmenn þeirra segja að samn- ingurinn hefði haft í för með sér kjaraskerðingu og verri lífeyris- réttindi fyrir þá og við það uni þeir ekki. Laun annarra flugmanna félagsins hefðu hins vegar hækk- að. - ks Flugfélagið Sterling: Flugstjórar fella samning GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 24.04.2006 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur 76,66 77,02 Sterlingspund 137,21 137,87 Evra 94,86 95,4 Dönsk króna 12,713 12,787 Norsk króna 12,107 12,179 Sænsk króna 10,157 10,217 Japanskt jen 0,6659 0,6697 SDR 111,94 112,6 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 132,1157

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.