Fréttablaðið - 25.04.2006, Side 17
Yfirstígum óttann
… stefnan tekin á forvarnir, fræðslu og heilbrigði!
Dagskrá
Markmið ráðstefnunnar er að skoða allar þær leiðir sem samfélagið getur farið
í að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Fordómar gagnvart fólki sem
lifir af ofbeldi eru einn stærsti hluti vandans og hluti af forvörnum er að takast á við
fordóma með fræðslu. Fólk sem tekst á við afleiðingar ofbeldis er sterkt og hugrakkt
fólk sem sýnir að hægt sé að horfast í augu við og yfirstíga óttann.
Kynferðisafbrotamenn og -konur þurfa hjálp, hvert geta þau leitað? Við þurfum
að taka ábyrgð á veiku fólki (gerendum) og koma með skýr skilaboð um hvernig við
ætlum að stöðva þennan vítahring sem kynferðislegt ofbeldi er.
Ráðstefnan er ætluð öllum sem vilja fræðast um málaflokkinn og leggja sitt af
mörkum við að breyta íslensku samfélagi.
Ráðstefnugjald 9.000 kr. /5.000 kr. fyrir nema.
Innifalið í ráðstefnugjaldi er kaffi og léttur hádegisverður.
Fundarstjóri Guðrún Ebba ólafsdóttir
Ráðstefnan fer fram á ensku og íslensku.
Skráning á ráðstefnuna: www.blattafram.is
Samstarfsaðili: Barnaverndarstofa
Kl: 9:05 Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu.
Kl: 9:15 – 10:00 Robert E. Longo, MRC, LPC. Að fyrirbyggja
kynferðislega misnotkun á börnum
Kl: 10:00 – 10:15 Kaffihlé
Kl: 10:15 – 12:00 Robert E. Longo, MRC, LPC. Börn sem hafa verið misnotuð kynferðislega.
Áhrif og bataferli.
Kl: 12:00 – 13:00 Hádegishlé
Kl: 13:00 – 14:00 Robert E. Longo, MRC, LPC. Ungmenni sem gera sig sek um kynferðislega
misnotkun. Tíðni, tafarlaus íhlutun og meðferð.
Kl: 14:00 – 15:00 Robert E. Longo, MRC, LPC. Fullorðnir sem gera sig seka um kynferðislega
misnotkun. Íhlutun og meðferð.
Kl 15:00 – 15:15 Kaffihlé
Kl 15:15 – 15:45 Þorbjörg Sveinsdóttir verkefnastjóri á geðsviði Landspítala
Háskólasjúkrahúss. Hvenær verður kynferðisleg hegðun barna áhyggjuefni og viðbrögð
við frásögnum barna og ungmenna um kynferðislega misnotkun.
Kl 15:45 – 16:05 Kristín Berta Guðnadóttir félagsráðgjafanemi á fjórða ári í HÍ.
Áhrif fjölmiðlaumfjöllunar um kynferðislega misnotkun á málafjölda í Barnahúsi.
Kl 16:05 – 16:35 Jón Friðrik Sigurðsson forstöðusálfræðingur á geðsviði Landspítala
Háskólasjúkrahúss. Ungmenni sem misnota aðra kynferðislega, staðan á Íslandi
og úrræði.
Kl: 16:35 – 16:50 Opnar umræður og spurningar frá gestum til fyrirlesara.
Kl: 16:50 – 17:00 Ráðstefnulok.
4. maí
í Kennaraháskólanum.
Ráðstefna á vegum Blátt áfram um kynferðisofbeldi
gegn börnum verður haldin 4. maí í Kennaraháskólanum.
Nánari upplýsingar um Robert E. Longo er að finna á www.blattafram.is