Fréttablaðið - 25.04.2006, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 25.04.2006, Blaðsíða 17
Yfirstígum óttann … stefnan tekin á forvarnir, fræðslu og heilbrigði! Dagskrá Markmið ráðstefnunnar er að skoða allar þær leiðir sem samfélagið getur farið í að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Fordómar gagnvart fólki sem lifir af ofbeldi eru einn stærsti hluti vandans og hluti af forvörnum er að takast á við fordóma með fræðslu. Fólk sem tekst á við afleiðingar ofbeldis er sterkt og hugrakkt fólk sem sýnir að hægt sé að horfast í augu við og yfirstíga óttann. Kynferðisafbrotamenn og -konur þurfa hjálp, hvert geta þau leitað? Við þurfum að taka ábyrgð á veiku fólki (gerendum) og koma með skýr skilaboð um hvernig við ætlum að stöðva þennan vítahring sem kynferðislegt ofbeldi er. Ráðstefnan er ætluð öllum sem vilja fræðast um málaflokkinn og leggja sitt af mörkum við að breyta íslensku samfélagi. Ráðstefnugjald 9.000 kr. /5.000 kr. fyrir nema. Innifalið í ráðstefnugjaldi er kaffi og léttur hádegisverður. Fundarstjóri Guðrún Ebba ólafsdóttir Ráðstefnan fer fram á ensku og íslensku. Skráning á ráðstefnuna: www.blattafram.is Samstarfsaðili: Barnaverndarstofa Kl: 9:05 Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu. Kl: 9:15 – 10:00 Robert E. Longo, MRC, LPC. Að fyrirbyggja kynferðislega misnotkun á börnum Kl: 10:00 – 10:15 Kaffihlé Kl: 10:15 – 12:00 Robert E. Longo, MRC, LPC. Börn sem hafa verið misnotuð kynferðislega. Áhrif og bataferli. Kl: 12:00 – 13:00 Hádegishlé Kl: 13:00 – 14:00 Robert E. Longo, MRC, LPC. Ungmenni sem gera sig sek um kynferðislega misnotkun. Tíðni, tafarlaus íhlutun og meðferð. Kl: 14:00 – 15:00 Robert E. Longo, MRC, LPC. Fullorðnir sem gera sig seka um kynferðislega misnotkun. Íhlutun og meðferð. Kl 15:00 – 15:15 Kaffihlé Kl 15:15 – 15:45 Þorbjörg Sveinsdóttir verkefnastjóri á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss. Hvenær verður kynferðisleg hegðun barna áhyggjuefni og viðbrögð við frásögnum barna og ungmenna um kynferðislega misnotkun. Kl 15:45 – 16:05 Kristín Berta Guðnadóttir félagsráðgjafanemi á fjórða ári í HÍ. Áhrif fjölmiðlaumfjöllunar um kynferðislega misnotkun á málafjölda í Barnahúsi. Kl 16:05 – 16:35 Jón Friðrik Sigurðsson forstöðusálfræðingur á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss. Ungmenni sem misnota aðra kynferðislega, staðan á Íslandi og úrræði. Kl: 16:35 – 16:50 Opnar umræður og spurningar frá gestum til fyrirlesara. Kl: 16:50 – 17:00 Ráðstefnulok. 4. maí í Kennaraháskólanum. Ráðstefna á vegum Blátt áfram um kynferðisofbeldi gegn börnum verður haldin 4. maí í Kennaraháskólanum. Nánari upplýsingar um Robert E. Longo er að finna á www.blattafram.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.