Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.04.2006, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 25.04.2006, Qupperneq 18
 25. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Pétur Gunnarsson og Trausti Hafliðason. RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Mest lesna viðskiptablaðið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj ö lm ið la kö n n u n G al lu p o kt ó b er 2 00 5. Evrópuvextir Kristinn H. Gunnarsson, Framsóknar- flokki, rekur enn einn naglann í líkkistu íslensku krónunnar þegar hann stað- hæfir að húsnæðisvextir almennings hækki um eitt til tvö prósentustig þegar og ef bankarnir gleypa Íbúðalánasjóð. „Það er raunhæft að bjóða almenningi húsnæðislán með 2,15 prósenta vöxtum í núverandi verðtryggingu lánsfjár,“ segir Kristinn á vefsíðu sinni. Mismunurinn í vaxtabyrði af sextán milljóna króna láni nemi hvorki meira né minna en fimm ára meðaltekjum á fjörutíu ára lánstíma miðað við íslenska húsnæðisvexti. Hér liggur beint við að álykta að Kristinn telji að lítið vit sé í því lengur að halda krónunni. Einboðið sé að taka upp evru og leyfa lántakendum að njóta Evrópuvaxta án gengisáhættu. Handaflið Farnar eru að renna tvær grímur á menn með bestu yfirsýn um gildi þess að hækka stýrivexti Seðlabankans, jafnvel upp í svimandi hæðir fimmtán prósenta. Davíð Oddsson seðlabankastjóri hefur lengi haft áhrif á vexti út yfir lögmál frjálsa markaðarins. Sem forsætisráð- herra skrifaði hann snemma árs 1996 Sverri Hermannssyni, þáverandi Landsbankastjóra, bréf eftir vaxta- hækkun bankans og sagði: „...ef þið lagið ekki þvæluna, sem þið gerðuð í síðasta vaxtaóðagoti, er það endanlegt dæmi þess að þíð vitið ekki hvað þið eruð að gera og þá mun ég sjá til þess fyrr en nokkurn grunar að menn komi að bank- anum sem viti hvað þeir eru að gera.“ (Sverrir - Pálmi Jónasson 2003) Bleikt og blátt „Tími til að lifa“ er slagorð Sjálfstæðis- flokksins á nýjum bleikum kosninga- bæklingi í höfuðborginni. Liturinn vekur athygli, en bleikur textinn fjallar um börn, foreldra, fæðingarorlof, leikskóla, gæsluvelli, frístundir, skólastaf, fagurt umhverfi og löggæslu í hverfum. Litur- inn er tákn kvenkyns, femínisma, stúlku- barna og kvenleika. Þetta er dæmi um þaulhugsaða auglýsingu með skýran markhóp en konur í röðum kjósenda hafa til þessa hallað sér meira til vinstri en karlar. Nú er beðið eftir ljósbláum bæklingi frá Samfylkingunni sem höfðar til karla með hægrihneigð. johannh@frettabladid.is Ríkisstjórnin hefur gert úr garði frumvarp til laga um fjölmiðla. Tilraun fyrri ríkisstjórnar til þess að koma fram slíkum lögum leiddi til einhverra hatrömmustu pólitísku deilna í þjóðfélaginu um langan tíma. Nýja frumvarpið hefur allt annað yfirbragð og er bæði hóf- samara og málefnalegra en það fyrra. Það er ávöxtur nefndar- starfs fulltrúa allra þingflokka. En af sjálfu leiðir að í því má glöggt sjá ummerki málamiðlana. Líklegt er að það skýri að sum ákvæði eru ekki jafn ljós og glögg um efni og markmið eins og æskilegt er að góður lagatexti sé. Ýmislegt í frumvarp- inu þarfnast því nánari skoðunar og umhugsunar. Kjarnaatriði frumvarpsins snýr hins vegar að takmörkun á eignarhaldi fjölmiðla. Takmarkanir af þessu tagi geta eðli máls samkvæmt verið umdeilanlegar. Fjölmiðlar sem náð hafa til- tekinni stærð gegna ríku almannaþjónustuhlutverki. Rökin fyrir takmörkun á eignarhaldi sýnast vera þau helst að dreifa fjármálaábyrgðinni að baki þeim skyldum sem þessari almannaþjónustu fylgja. Ráð er fyrir því gert að takmarka við fjórðungshlut eign einstaks aðila í fjölmiðlum sem náð hafa ákveðinni stærð á markaði. Það þarf í sjálfu sér ekki að vera óeðlilegt með skír- skotun til almannaþjónustunnar. Flest bendir til að slík regla samrýmist bæði atvinnufrelsis- og tjáningarfrelsisákvæðum stjórnarskrárinnar. Líklegt er að reglur af þessu tagi geti leitt til þess að sæmilegri pólitískur friður megi ríkja um almenn starfsskilyrði fjölmiðla en verið hefur. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að Ríkisútvarpið í núverandi mynd verði undanþegið meginreglunni um takmörkun eignar- halds. Að auki eru nokkrar aðrar sérreglur um Ríkisútvarpið. Ljóst er að þessi ákvæði verða gildislaus þegar samþykkt hafa verið lög um nýtt hlutafélag sem annast á útvarpsrekstur fyrir ríkisvaldið. Spurning er hvort unnt er að láta sams konar undanþáguákvæði koma í staðinn er taki til Ríkisútvarpsins hf. Ríkisútvarpið hf. verður slitið úr öllum tengslum við almenn- ar réttarreglur um opinberan rekstur. Yfirlýst markmið með stofnun hlutafélagsins er að gera það samkeppnisfært á almennum fjölmiðlamarkaði. Fyrir þá sök verður trauðla séð að önnur rök geti gilt um handhafa hlutabréfs í því félagi en handhafa hlutabréfa í öðrum sambærilegum félögum. þegar Ríkisútvarpið hf. hefur verið aftengt almennum stjórnsýslureglum standa rök til þess að sömu takmarkanir gildi um stærð eignarhluta í því og öðrum sem sinna almanna- þjónustu með áþekkum hætti. Verulegt álitamál hlýtur að minnsta kosti að vera hvort önnur skipan stæðist jafnréttis- ákvæði stjórnarskrárinnar. Ekki er því óhugsandi að ríkisvaldinu gæti einfaldlega orðið skylt með hliðsjón af jafnréttisákvæði stjórnarskrárinnar að selja þrjá fjórðunga af hlut sínum í nýja hlutafélaginu. Mönnum getur sýnst sitthvað um ágæti þess en þetta álita- efni eitt og sér ætti þó ekki að trufla framgang fjölmiðlafrum- varpsins. Það verður aðeins eitt af fjölmörgum óljósum lög- fræðilegum álitaefnum varðandi stofnun Ríkisútvarpsins hf. sem dómstólar en ekki Alþingi munu ráða til lykta á næstu misserum. SJÓNARMIÐ ÞORSTEINN PÁLSSON Nýtt lagafrumvarp um fjölmiðla: Ný stjórnarskrár- spurning Þegar Glitnir byrjaði auglýsinga- herferðina miklu fyrir nokkrum vikum þá velti ég því svolítið fyrir mér hvað vitlausu reikningsdæm- in á strætóskýlunum ættu eigin- lega að þýða. Hafði svo sem ekki miklar áhyggjur af því þar til barnabörnin blessuð, sem eru á frumstigum reikningslistar- kúnstarinnar, fóru að spyrja mig út í þetta. Ömmur eiga nefnilega að kunna svör við hlutunum, og þó það sé vissulega stundum þannig að þær, eða að minnsta kosti þessi amma, nenni ekki alltaf að útskýra alla hluti þá er það allt annað en að kunna ekki skil á því af hverju einn plús fjórir séu allt í einu orðn- ir sjö eða eitthvað í þá áttina. Þá verður svarið óneitanlega „þetta er bara eitthvað bull“. Þegar þessum kafla lauk í aug- lýsingabrillíansinum tók við ein- hver lengsta og leiðinlegasta sjón- varpsauglýsing sem ég hef horft á, gæti þó kannski verið að kynn- ingin að Kastljósinu skáki henni í þeim efnum. Auglýsingin var ekki bara leiðinleg, hún var líka ósmekkleg, og hefði ég verið í við- skiptum við gamla Íslandsbanka þá hugsa ég, svei mér þá, að ég hefði hætt þeim hennar vegna. Ekki tók svo betra við. Allt í einu barst okkur virðulegum hjón- um á sextugsaldri ávísun í póstin- um undirrituð af bankastjóra Glitnis upp á eitt eða tvö þúsund krónur, ég var svo æst að ég lagði upphæðina ekki nákvæmlega á minnið áður en ég henti sneplin- um. Ávísunin, eða öllu heldur blað- snepillinn, átti að breytast í pen- inga ef við gæfum fermingarbarni fimm þúsund krónur, að ég held, og legðum peningana á reikning sem stofnaður væri í Glitnisbanka. Fram að þessu hef ég í einrúmi hneykslast á alls kyns auglýsing- um tengdum fermingunum; „strákarnir“ í fermingarkyrtlum hér og þar, Össur segjandi að skátatjaldið hafi ekki enst mjög lengi og annað í þeim dúr. Ávísun- in frá Glitnisbanka finnst mér nú samt taka öðrum ósmekklegheit- um fram. Þegar blóðþrýstingurinn var rétt að komast í samt lag eftir fermingarávísunina, þá spyr dóttursonurinn: „Amma, eruð þið búin að fá þjóðargjöfina?“ Mér datt auðvitað ekkert annað í hug en landgræðsluátakið mikla sem ákveðið var á Þingvöllum, sem núna er væntanlega orðið endur fyrir löngu. Já, já, við erum náttúrlega alltaf að njóta hennar, sagði tímaskekkjan hún ég. „Amma, hvaða bók keyptuð þið?“ spurði barnið þá. Lyfjaframleið- endum sé lof og þökk fyrir Hýdr- amíl! Drengurinn var auðvitað að tala um ávísunina sem mun vera dreift inn á heimili landsins og er auglýst í samvinnu Glitnisbank- ans og ríkisstjórnarinnar, í persónugervingnum frú mennta- málaráðherra. Nú fá heimilin í landinu pappaspjald sem breytist í þúsundkall ef keyptar eru íslenskar bækur fyrir meira en þrjú þúsund krónur. Heimildar- maður minn fyrir öllu þessu, dóttursonurinn, vonar allavega að við gömlu skörin fáum líka svona ávísun, hún er að vísu til að auka áhuga ungs fólks og barna á bók- lestri, og þið eruð það nú hvorugt, segir hann, en samt... Ég held helst að drengurinn, sem er hinn mesti bókabéus, sé að vonast til að fá ávísun okkar gamlingjanna plús auðvitað þrjúþúsundkallinn í formi bókar. Það er sannarlega mikill munur til batnaðar að búa í þjóðfélagi þar sem það má, sem ekki er bannað, en í hinu þar sem það má, sem er leyft. En á þann veg lýsti fyrrver- andi ráðherra og seðlabankastjóri með meiru frjálsu og opnu hag- kerfi í í Silfri Egils á sunnudaginn, og var um leið að lýsa muninum á þjóðfélaginu hér á landi nú um stundir og áður en við tengdumst Evrópusamvinnunni með samning- um um evrópska efnahagssvæðið. Sá samningur olli vissulega straum- hvörfum fyrir okkur öll og ekki hvað síst stjórnmálamennina. Nú geta þeir ekki lengur útdeilt leyf- um til að gefa út símaskrána eða til að flytja út fisk og inn eitthvað annað, eða leyfum til ég veit ekki hvers. Stundum virðist konu að stjórnmálamenn, sumir hverjir að minnsta kosti, telji það áhugaverð- ast við starfann að vera „ofarlega í þjóðfélagsstiganum“ og þess vegna boðinn á völlinn af ríka fólkinu, út að borða með þeim og kona veit ekki hvað. Ég er þeirrar skoðunar að menntamálaráðherrann eigi að beita sér fyrir áhuga á bóklestri með því að sjá til þess að mennta- stefnan í landinu sé í lagi en ekki með því að vera í auglýsingabrölti með ríkustu mönnum landsins. Um snepla sem breytast í peninga Í DAG GLITNIR OG ÞJÓÐARGJÖFIN VALGERÐUR BJARNADÓTTIR Ég er þeirrar skoðunar að menntamálaráðherrann eigi að beita sér fyrir áhuga á bóklestri með því að sjá til þess að menntastefnan í landinu sé í lagi en ekki með því að vera í auglýsingabrölti með ríkustu mönnum landsins. Vagnhöfða 23 - Sími 590 2000 Seltjarnarnesi KT verslun Akureyri Njarðarnesi S. 466 2111 Bestu dekkin í USA 8 ár í röð Tire Review Magazine Low profile fyrir lúxusjeppa og sportbíla. Frábært veggrip. Mikil mýkt. Hágæða hönnun. Veldu TOYO PROXES og skildu hina eftir. Mikið úrval frábært verð.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.