Fréttablaðið - 25.04.2006, Page 19
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
GÓÐAN DAG!
Í dag er þriðjudagurinn
25. apríl, 115. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 5.21 13.26 21.32
Akureyri 4.56 13.10 21.27
Margir íþróttamenn lenda í því að
bæta nokkrum kílóum á sig efir að
hafa hætt að stunda íþrótt sína. Heimir
Orri Magnússon er einn þeirra en hann
ætlar hins vegar að koma sér í sitt
fyrra form á nýjan leik.
Heimir æfði handbolta til fjölda ára en segist
hafa hætt að æfa almennilega fyrir um ári
síðan. Hann hafði á þeim tíma verið að æfa
um það bil fimm sinnum í viku og eins gefur
að skilja breytist allt lífsmynstrið við slík
umskipti. Á þessu ári segist Heimir einmitt
hafa bætt á sig hátt í tíu kílóum auk þess sem
vöðvamassi hafi slappast. Nú ætlar Heimir
hins vegar að snúa vörn í sókn. „Ég ætla að
hætta öllu nammiáti og skoða betur hvað ég
er að borða og drekka. Eftir að ég hætti byrj-
aði maður að fjölga ferðum út í sjoppu enda
var enginn þjálfari lengur til að skamma
mann. Maður hugsar meira um sjálfan sig og
ræktar sig sjálfur meðan maður er í fullri
þjálfun.“
Þrátt fyrir þessa þyngdaraukningu er
Heimir langt frá því sem venjulegt fólk
myndi kalla feitur. En fyrir mann sem hefur
æft reglulega nær allt sitt líf er slík þyngdar-
aukning nokkur viðbrigði. „Ég er alveg í kjör-
þyngd núna en maður er bara kominn með
smá bjórbumbu,“ segir Heimir og hlær.
Þegar Heimir lítur um öxl viðurkennir
hann að hafa farið vitlaust að. Hann ráðlegg-
ur einnig öðru íþróttafólki og í raun öllum
þeim sem æfa mikið en hætta svo snögglega
að passa að hætta ekki algjörlega að huga að
heilsunni. „Lykilatriði er að hætta ekki að
hreyfa sig og vara sig á snakki, kexi, nammi
og þess háttar.“
Fljótlega ætlar Heimir að byrja aftur að
sprikla og hreyfa sig. „Ég ætla að fara að
skokka og lyfta og reyna svo að koma mér
aftur inn í handboltann, sem bætir ekki ein-
ungis líkamlega heilsu heldur einnig andlega
með bættum félagsanda.“ Markmið Heimis
er þó ekki að grenna sig mikið heldur stefnir
hann að því að halda svipaðri þyngd en að
minnka fituprósentuna og auka vöðvamassa.
„Þá kannski getur maður breytt þessari litlu
vömb sem ég er kominn með í eitthvað betra
og heilsusamlegra,“ segir Heimir að lokum
með bros á vör.
steinthor@frettabladid.is
Ætlar að komast
aftur í sitt fyrra form
Heimir Orri Magnússon hætti að æfa handbolta fyrir um ári. Þá hafði hann æft að meðaltali um fimm sinnum á viku. Hann ætlar að taka sig á og reyna að losna við bumbuna sem hefur
myndast síðan þá. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hátt á þriðja hundrað
manns deyr af völdum
reykinga á ári hverju
hér á landi.
Um fimmtungur lands-
manna reykir, hátt á þriðja
hundruð manns deyr af
völdum reykinga á ári
hverju og ætla má að
fimmtungur þeirra sem
deyja fyrir áttrætt látist af
völdum reykinga. Þetta er
meðal þess sem fram kom
í svari Sivjar Friðleifsdótt-
ur, heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra, við fyr-
irspurn Valdimars L.
Friðrikssonar, þingmanns
Samfylkingarinnar.
Í svari ráðherra kemur
fram að á tímabilinu 1985
til 1994 er talið að rekja
megi eitt dauðsfall á dag
til reykinga. Heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra
var spurð um svokallaðan
reyksíma á Alþingi sem
starfræktur hefur verið af
Heilbrigðisstofnun Þing-
eyinga. Starfsemin felst í
því að veita faglega aðstoð
í síma þeim sem vilja
hætta að reykja eða hætta
að nota annað tóbak. Fólk
hringir á símatíma og
byggist ráðgjöfin á 5–30
mínútna viðtölum þar sem
áhersla er lögð á hvatn-
ingu og stuðning á ein-
staklingsbundinn hátt.
Eitt dauðsfall á dag
af völdum reykinga
BORÐTENNIS
FYRIR ALLA
Flestir þekkja Kristján Viðar
Haraldsson sem söngvara
Greifanna en færri vita að
hann er aðalþjálfari
borðtennisdeildar
KR.
HEILSA 2
EKKI LÁTA
PLATA ÞIG
Borghildur Sverrisdóttir
ræðir í dag um þær rang-
hugmyndir sem eru uppi
varðandi hreyfingu og
næringu.
HEILSA 4
Blátt áfram, samtök gegn kyn-
ferðislegri misnotkun á börnum,
halda ráðstefnu hinn 4. maí í
Kennaraháskólanum frá klukkan
9 til 17. Aðalfyrirlesari er Robert E.
Longo, MRC, LPC, sérfræðingur frá
Bandaríkjunum sem hefur unnið
í málaflokknum síðastliðin 25 ár.
Aðrir fyrirlesarar koma víða að úr
samfélaginu. Nánari upplýsingar
má finna á www.blattafram.is
Reykingar draga fimmta hvern
Íslending til dauða ár hvert.
Reykingar verða yfir 260 manns
að aldurtila árlega. Einn af
hverjum fimm Íslendingum sem
deyja fyrir áttrætt deyr af völdum
reykinga. Þriðjungur þeirra sem
deyja fyrir fertugt deyr sökum
reykinga. Fyrir tveimur áratugum
reyktu um 36 prósent lands-
manna. Fyrir tíu árum reyktu um
27 prósent þjóðarinnar en nú
reykir um fimmtungur hennar.
Áfengismeðferð á afplánun-
artíma er yfirskriftin á morgun-
verðarfundi sem haldinn verður
á Grand Hótel Reykjavík fimmtu-
daginn 27. apríl frá 8 til 10.
Fundurinn er haldinn á vegum
samráðsnefndar varðandi mál-
efni fanga. Skráning á fundinn fer
fram með því að senda tölvupóst
í netfangið halldorp@tmd.is.
ALLT HITT
[HEILSA]
Tóbak er orsök
margra dauðsfalla