Fréttablaðið - 25.04.2006, Page 20
[ ]
Kristján Viðar Haraldsson er
flestum kunnur sem söngvari
hljómsveitarinnar Greifanna.
Færri vita að hann er aðal-
þjálfari borðtennisdeildar KR.
Kristján byrjaði að spila borðtenn-
is þrettán ára gamall þegar pabbi
hans og bróðir smíðuðu borðtenn-
isborð í bílskúrinn. Hann fór svo á
fyrsta þjálfaranámskeið sitt
fimmtán ára gamall og hóf strax
að þjálfa á Húsavík þar sem hann
bjó. „Ég álpaðist út í þetta vegna
þess að ég var sá eini sem hafði
löngunina og nennti að þjálfa
aðra,“ segir Kristján.
Sautján ára flutti Kristján
suður til Reykjavíkur þar sem
hann fór að æfa af kappi, auk þess
að taka fleiri þjálfaranámskeið.
„Ég hef verið í þessu í að verða 25
ár enda finnst mér þetta svo
skemmtilegt,“ segir Kristján. „Ég
hef tekið mér frí nokkrum sinnum
vegna Greifanna og það má
kannski segja að þegar þau ævin-
týri stóðu sem hæst hafi borðtenn-
is haldið mér á jörðinni.“
Kristján á glæsilegan feril að
baki. Hann hefur spilað með lands-
liðinu og þjálfað unglingalandsliðið
auk þess sem hann hefur fært fyrst
Víkingi og nú KR fjölmarga titla
bæði sem spilari og ekki síður sem
þjálfari. „Það er eins og ég segi,
þetta er bara svo skemmtilegt,“
segir Kristján. „Borðtennis er
íþrótt sem allir geta spilað allt frá
sjö ára aldri, um leið og fínhreyf-
ingarnar eru nægilega þroskaðar.
Það er gríðarleg tækni sem spilar-
ar þurfa að ráða yfir og hraðinn
getur orðið mikill. Ég upplifi stund-
um borðtennis sem nokkuð á mörk-
um þess að vera íþrótt og töfra-
brögð. Það geta gerst svo ótrúlegir
hlutir, hlutir sem ekki ætti að vera
hægt að framkvæma.“
Borðtennis hefur lengi haft það
orð á sér að vera nær svitalaus
íþrótt stunduð í félagsmiðstöðvum
og bílskúrum sem tómstundagam-
an. Þetta er langt frá sannleikan-
um. Til dæmis er löglegur keppn-
isvöllur í borðtennis stærri en
badmintonvöllur. Leikir verða
afskaplega hraðir og snerpan sem
til þarf er ótrúleg. Einn af kostum
borðtennis er hins vegar sá að
iðkandi ræður því hversu mikið
hann leggur í íþróttina. Bæði er
hægt að æfa öll kvöld og setja
stefnuna á Íslandsmeistaratitil og
einnig að hittast einu sinni til
tvisvar í viku og spila rólega við
félagana.
Ekki hafa allir getuna eða vilj-
ann í að æfa stíft. Borðtennisdeild
KR gerir sér grein fyrir þessu og
býður því áhugamönnum að mæta
eitt eða tvö kvöld í viku og spila sín
á milli. „Ég persónulega hef reynt
að fara í líkamsrækt og lyfta en
mér finnst það svo leiðinlegt. Ég
verð að hafa einhvern bolta að
elta,“ segir Kristján. „Fyrir menn
eins og mig er borðtennis því tilval-
ið sport.“ Til gamans má geta þess
að engin aldurstakmörk eru í byrj-
endaflokki í borðtennis. Þar ræður
einungis geta en ekki hrukkufjöldi
ríkjum svo vilji menn reyna fyrir
sér er það aldrei of seint.
Nóg er að gera hjá Kristjáni í
þjálfuninni en auk hennar eru
Greifarnir tuttugu ára og af því
tilefni munu þeir gefa út nýja
plötu. „Við erum að fara í hljóðver
um helgina að taka upp nýtt efni
þannig að við erum hvergi nærri
hættir,“ segir Kristján.
Þeir sem vilja koma og spila
borðtennis ánægjunnar vegna geta
gert svo á mánudögum og fimmtu-
dögum frá 19:35 til 21:05 í KR heim-
ilinu. Allar nánari upplýsingar er
að finna á www.kr.is/bordtennis.
tryggvi@frettabladid.is
Borðtennis fyrir alla
Kristján Viðar Haraldsson segir borðtennis á mörkum þess að vera íþrótt og töfrabrögð.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fita er nauðsynleg líkamanum
en í of miklu magni getur hún
orsakað þyngdaraukningu. Því
skal reyna að borða sem mest
af réttri fitu.
Þrátt fyrir að margir álíti fitu
slæma er hún mikilvæg fyrir lík-
amsstarfsemina. Fitan flytur fitu-
leysanleg vitmín, sem eru A, D, E
og K vítamín, um líkamann, fóðrar
innri líffæri, lætur matinn oft
bragðast betur, getur innihaldið
fitusýrur sem eru taldar hafa
góð áhrif á hjartað og ónæmis-
kerfið og er mikil uppspretta
orku.
Orkuuppsprettan er samt
það sem hefur komið óorði á
fituna. Í einu grammi af fitu
eru níu hitaeiningar, sem er
tvöfalt meira en í einu grammi
af kolvetni eða próteini. Það
skiptir því máli að borða meira
af ómettaðri fitu en mettaðri.
Mettuðu fituna má þekkja á því
að hún er í föstu formi við stofu-
hita og er vanalega að finna í dýra-
afurðum eins og smjöri, osti, mjólk
og á kjöti.
Ómettaða fitan er í vökvaformi
við stofuhita og kemur oftast úr
grænmeti og finnst í olíum unnu
úr því, eins og sesamólíu, ólífuolíu
og sojaolíu. Einnig finnst hún
í feitum fiski eins og laxi og
túnfiski.
Flest fæða inniheldur
bæði mettaða og ómettaða
fitu en þeim er skipt
niður eftir því hvor
gerðin er í meirihluta.
Því innihalda matvæli
úr holla fituflokkinum
einnig eitthvað af
óhollri fitu.
Holl og óholl fita
Ólífuolía inniheldur
ómettaðar fitusýr-
ur og er því talin
holl.
Margir átta sig ekki á því
að fari sjúkrakostnaður yfir
ákvena upphæð á viðkom-
andi rétt á afsláttakorti frá
Tryggingastofnun ríkisins.
Þessi mörk eru 18.000 kr. á ári
fyrir einstaklinga, 4.500 kr. fyrir
elli- og örorkulífeyrisþega og
6.000 kr. fyrir börn undir 18 ára
aldri í sömu fjölskyldu. Fari
sjúkrakostnaður upp fyrir þess-
ar upphæðir endurgreiðir ríkið
2/3 af öllum kostnaði eftir það.
Afsláttakortin fást afgreidd í
þjónustumiðstöð Trygginga-
stofnunar ríkisins a Laugavegi
114 eða í umboðum hennar um
land allt. Framvísa þarf kvittun-
um til að fá kortið afhent og sé
kostnaður þegar orðinn meiri en
mörkin segja til um fást 2/3 hlut-
ar hans endurgreiddir.
Munið af-
sláttarkortin
Vatnið okkar íslenska er ein af mestu auðlindunum okkar.
Drekkum meira af því og minna af sykurdrullu.
Laugavegi 2 - 101 Reykjavík - Sími 552 1103 - www.jurtaapotek.is
Við veitum faglega ráðgjöf
������������������������������ ��������������� �������
��������������������������������������������������
Næstu námskeið hjá Maður lifandi
25. apríl Er heilsan í fyrirrúmi?
kl 18-19:30. Örn Jónsson.
26. apríl Heilbrigði og hamingja.
kl 18:30-22. Benedikta Jónsdóttir.
27. apríl Rope yoga 27. - 30. apríl.
Guðni Gunnarsson
02. maí Sætuefnið Aspartam - Er Diet kók
betra en venjulegt kók?
kl 18-19:30. Haraldur Magnússon.
05. - 07. maí Lífsýn - Að lifa lífinu til fulls
Guðni Gunnarsson.
Glucosamin HCL 870 mg
Með turmeric og engifer
Bólgueyðandi og gott fyrir liðamót og bein.
Útsölustaðir m.a: Yggdrasill, Fjarðarkaup, Maður lifandi í Borgartúni og Hæðarsmára,
Lífsins Lind í Hagkaupum, Lyfjaval í Mjódd og Hæðarsmára og Lyfja á Selfossi.
S: 462-1889 • heilsuhorn@simnet.is • www.simnet.is/heilsuhorn
Póstsendum
um land allt
www.svefn.is