Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.04.2006, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 25.04.2006, Qupperneq 36
 25. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR24 menning@frettabladid.is Ljóðs manns æði, ljóða- skemmtun fræðsludeildar Þjóðleikhússins, verður haldin í fjórða og síðasta sinn í Þjóðleikhúskjall- aranum í kvöld undir yfirskriftinni Sótt og dauði íslenskunnar. Þar verður meðal annars spurt hvort hægt sé að forða tungu- málinu frá margboðuðum dauða og hvernig ljóðið tekur á tungumálinu? „Íslensk skáld hafa frá upphafi ort um tungu- málið,“ segir í tilkynningu frá fræðsludeild Þjóðleik- hússins, „um viðhorf sín til móðurmálsins og um viðskipti sín við það, um ást sína á því, um örðugleikana þegar klæða skal hugsanir í búning þess. Málið hefur birst í ljóðum skálda í öllum sínum margbreytileika, oft í hátíðlegu orðalagi en stundum í uppreisn gegn viðtekinni kveðskaparvenju.“ Eysteinn Þorvaldsson þýðandi hefur valið efni sem verða notuð sem dæmi um kvæði skálda um tungu- málið og málnotkun þeirra og nýtur fulltingis leikara Þjóðleikhússins við flutn- inginn. Sérstakur gestur er Þórarinn Eldjárn, sem les úr eigin verkum og spjallar við Eystein um leikinn að orðum. Húsið verður opnað kl. 20.30 og dagskráin hefst kl. 21.00. Aðgangseyrir er 500 krónur. Sótt og dauði íslenskunnar ÞÓRARINN ELDJÁRN Ræðir við Eystein Þorvalds- son um kúnstina að yrkja. FRÉTTABLAÐIÐ/ HARI Kl. 12.05 Bruce Clunies Ross ræðir um tónskáldið og píanóleikarann Percy Graingers sem var frumkvöðull í þjóðernistónlistarfræði. Hann áleit meðal annars að íslenskar fornbók- menntir væru hið fullkomna form lista og þróaði tungumálið „blue- eyed English“. Fyrirlesturinn er fluttur á ensku, í stofu 101 í Odda á vegum Stofnunar Vigdísar Finnboga- dóttur. ! > Ekki missa af... Hláturtíð í Borgarleik- húsinu, fjölbreytt og sprenghlægileg dagskrá framundan. Síðkjólaballi í Íslensku óperunni á sunnudag- inn, einvala lið tónlist- arfólks skemmtir og dansað verður um allt hús að erlendum sið. Málþinginu List án landamæra sem verður haldið í ráðstefnusal Orkuveitunnar á morgun milli kl. 13-18. Rúnar Helgi Vignisson hlaut Íslensku þýðingaverð- launin 2006 fyrir þýðingu á skáldsögunni Barndómi eftir J.M. Coetzee en hann hefur á undanförnum árum gert metnaðarfullar þýð- ingar á verkum margra af merkustu höfundum sam- tímans. Rúnar Helgi leggur líf sitt og sál í þýðingarnar og grínast með að vita ekki hversu lengi hann muni tóra ef hann heldur áfram að þýða stórvirki bókmenntanna. „Ég set svo mikið af sjálfum mér í þessa vinnu,“ útskýrir hann, starf þýð- andans er gjöfult en krefjandi og slítandi. Þýðingar eru ástríða og hann binst höfundunum sínum sérstökum böndum, kynnir sér ævi þeirra og önnur störf og les jafnvel heildarverk þeirra. „Þessu fylgir líka mikil kynningarstarfs- semi, greinaskrif og slíkt - sumir segja að þetta jaðri við kristniboð hjá mér,“ segir hann kíminn en lík- lega tengist það líka kennaranum sem blundar í þýðandanum, útgef- andum og rithöfundinum Rúnari Helga. Hann segist ekki þýða bækur nema hann finni ástríðu í sögun- um. „Ekki nema maður sé þeim mun blankari,“ bætir hann við hlæjandi. Þegar litið er á afreks- listann hans kemur samt í ljós að þar eru engar blankheitabækur heldur þýðingar á verkum ekki minni spámanna en Williams Faulkner, Philips Roth og Ians McEwan. Honum þykir sjálfum vænst um þýðinguna á Ljósi í ágúst eftir Faulkner, skáldsögu sem átti hug hans allan og starfs- krafta í tvö ár. Græna húsið Á síðasta ári stofnaði Rúnar Helgi útgáfufyrirtækið Græna húsið ásamt eiginkonu sinni, Guðrúnu Guðmundsdóttur. Ástæðan var sú að að starf útgáfustjórans eða rit- stjórans var eitt af fáum ritstörf- um sem Rúnar hafði ekki sinnt en vildi prófa. „Hugsunin var einnig að losna undan kvöðum einhverra ósýnilegra ritstjóra sem ég bjó mér til í huganum,“ segir Rúnar Helgi. Framtakið varð að sönnu frelsandi fyrir rithöfundinn og fyrir síðustu jól gaf Rúnar Helgi út skáldsöguna Feigðarflan hjá sínu Græna húsi, bók sem af sumum er talin hans besta frum- samda verk til þessa. Áður hefur Rúnar Helgi gefið út fjórar skáld- sögur og smásagnasafn auk fjöl- margra þýðinga. Smásögur heimsins Á borðinu er líka stórt verkefni sem Rúnar Helgi starfar að fyrir annað hús en verkefnið, sem ber vinnuheitið Smásögur heimsins, er í bígerð fyrir útgáfufyrirtækið Bjart. Rúnar Helgi ritstýrir verk- efninu og mun einnig þýða tals- vert af þeim sögum sem ritaðar eru á ensku. „Þetta verður bók sem mun innihalda rjómann af smásögum heimsins,“ útskýrir hann en safnið verður bæði sögu- legt og alþjóðlegt yfirlit með 30-50 smásögum. „Svona bók gæti auð- veldlega orðið tvö þúsund síður og mér myndi ekki endast aldur til þess að lesa allar góðu smásögurn- ar sem hafa verið skrifaðar,“ segir Rúnar Helgi, sem á augljóslega mikið verk fyrir höndum að velja sögur í slíkt rit. Þýðing verðlauna Íslensku þýðingaverðlaunin eru kærkominn hvatning fyrir Rúnar Helga. „Það er gott að fá stimpil frá viðurkenndum aðilum,“ segir hann og bætir við að ritstörfin séu ekki alltaf dans á rósum, tískan sé breytileg og því séu þýðendur og höfundar ef til vill ekki vissir um ágæti og viðtökur verka sinna. „Svona viðurkenning hefur jafn- mikla þýðingu fyrir fólkið í kring- um mann,“ áréttar hann. Bókaútgáfa Græna hússins mun halda áfram að blómstra. Rúnar Helgi er að þýða söguna um Sólvæng, framhald barnabókar- innar Silfurvængur eftir Kenneth Oppel sem kom út fyrir síðustu jól og vakti mikla lukku barna og ann- arra gagnrýnenda. „Ferðaskrif- stofa íslenskrar tungu“ eins og fyrirtækið er kallað á heimasíðu þess er í stöðugri þróun og Rúnar Helgi segir það munu koma í ljós hvort þau hjónin víkki út starf- semina eða hvort hún muni halda áfram að snúast að mestu um höf- undarverk hans. Í kvöld gefst lesendum og öðrum áhugasömum kostur á að kynnast verkum Rúnars Helga betur því hann verður gestur á Skáldspírukvöldi Lafleur- útgáfunnar í Iðuhúsinu við Lækj- argötu og hefst dagskráin kl. 20. kristrun@frettabladid.is VERÐLAUNAHAFAR ÁSAMT FORSETA Rúnar Helgi ásamt hr. Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands. og Sigurði A. Magnússyni, handhafa fyrstu heiðursverðlauna Banda- lags þýðenda og túlka. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Af tilgerðarlausri ástríðu RÚNAR HELGI VIGNISSON Binst höfundum sínum sterkum böndum. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI ��������������������������������� ����������������������������������������������������� �� ����������������������������������������� ���������� ������������������������������ ������������ �������������� �� ����������� ���������������� ��� ��������������������� �������������� ��������� ��������������������� ��������� ��������� ��������������������������������� ������������������������������������ ��� ������� ������ ������������� ��������������������� ������������������������ ����������������� ���������������������������������������������� ���������������������������������������

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.