Fréttablaðið - 25.04.2006, Page 46

Fréttablaðið - 25.04.2006, Page 46
 25. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR34 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á síðu 8 1 Kári, Logi og Máni Halldórssynir. 2 Áttatíu ára. 3 Gyanendra. LÁRÉTT 2 eyja 6 löng og lág hæð 8 X 9 umrót 11 sem 12 hald 14 dýrahljóð 16 í röð 17 mas 18 utan 20 skóli 21 faðm- lag. LÓÐRÉTT 1 líkamshluti 3 bardagi 4 land 5 drulla 7 farinn á kaf 10 planta 13 fát 15 útungun eggja 16 töf 19 á líðandi stundu. LAUSN LÁRÉTT: 2 java, 6 ás, 8 tíu, 9 los, 11 er, 12 skaft, 14 krunk, 16 hi, 17 mal, 18 inn, 20 ma, 21 knús. LÓÐRÉTT: 1 háls, 3 at, 4 víetnam, 5 aur, 7 sokkinn, 10 sar, 13 fum, 15 klak, 16 hik, 19 nú. HRÓSIÐ ...fær Andri Snær Magnason en leikverk hans, Blái hnötturinn, var nýlega sett upp í alþjóðlegum skóla í Islamabad í Pakistan. Vegfarendur sem átt hafa leið um Bankastrætið að undanförnu hafa rekið upp stór augu yfir graffíti- verki sem hylur útstillingarglugga hjá Sævari Karli. Að sögn verslun- arstjórans, Axels Gomez, hefur fjöldi fólks haft samband við versl- unina og talið að um skemmdar- verk sé að ræða en það er síður en svo raunin. „Á sumardaginn fyrsta vorum við með mikla vorhátíð hér í versluninni. Þá var opnuð sýning í galleríinu á verkum Ástralans Graeme Finn og Sævar Karl fékk ungan graffítímann, Karl Kr. Davíðsson, til þess að skreyta gluggann,“ segir Axel. Hann segir að lögreglan hafi margoft stoppað fyrir framan verslunargluggann á meðan verið var að skreyta glugg- ann og krafið listamanninn skýr- ingar á athæfinu enda sjaldan sem graffitílistamenn fá að munda brúsann við Laugaveg með góðfús- legu leyfi verslunareiganda. „Sævar var meira að segja vakinn um miðja nótt af einhverjum sem vildi láta hann vita af þessu skemmdarverki,“segir Axel. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem útstillingarglugginn í Gallerí Sævars Karls vekur athygli þar sem Sævar Karl er afar duglegur við að brydda upp á nýjungum í versluninni og óhræddur við að prófa nýja hluti. Þess má geta að hið glæsilega graffitíverk mun prýða gluggann út þessa viku en eftir það ættu viðskiptavinir aftur að fara að sjá inn í verslunina. - snæ Misskilin list hjá Sævari Karli EKKI SKEMMDARVERK Útstillingarglugginn hjá Sævari Karli hefur ekki orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum eins og margir halda heldur er þarna um list að ræða. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Næsta föstudagskvöld verður síð- asti dansinn stiginn í Danshúsinu Glæsibæ en þar hefur dansinn dunað síðan 1970. Húsið hefur verið eitt helsta athvarf dansunn- enda síðastliðin 35 ár og hafa margar hljómsveitir stigið þar á stokk. Fyrsta árið lék hljómsveit Hauks Morthens fyrir dansi og tóku Ásar við af henni. Hljómsveit Gissurar Geirs, Hafrót, Upplyft- ing, og Hljómsveit Jóns Sigurðs- sonar hafa einnig haldið fótafim- um Íslendingum við efnið undanfarna áratugi en nú er komið að kveðjustundinni. Danshúsinu á að breyta í bíla- kjallara en miklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar á lóðinni sem fel- ast meðal annars í því að Glæsi- bær verður tengdur nýju háhýsi. „Það verður mikill missir af hús- inu fyrir dansunnendur,” segir Hjördís Geirsdóttir, sem mun sjá um lokaballið ásamt hljómsveit sinni sem er skipuð harmónikku- leikaranum Sigurgeiri Björgvins- syni, Birgi Ottóssyni á bassa og trommaranum Trausta Jónssyni. Hjördís hefur mikla reynslu af því að koma fram í Glæsibæ en húsið hefur hýst margs konar uppákomur í gegnum tíðina „Ég á mjög góðar minningar úr þessu húsi sem var mjög vinsæll staður á árunum 1970 til 1985. Þetta er afar glæsilegt húsnæði, huggu- legt, rúmgott og skemmtilegt,” segir Hjördís og bætir við að dans- gólf staðarins sé afar stórt, líklega um 150 fermetrar, og það kunni dansglatt fólk vel að meta. Helstu söngvarar landsins hafa komið fram í Glæsibæ og nægir þar að nefna Ragnar Bjarnason, Önnu Vilhjálms og Björgvin Hall- dórsson. Félag eldri borgara átti húsið og stóð þar fyrir dansleikj- um í nokkur ár en félög harmón- ikkuunnenda hafa haldið til í hús- inu í seinni tíð. „Það er spurning hvert dansunnendur fara núna en það er ekki um svo mörg alvöru dansgólf að velja hér í höfuðborg- inni. Ætli það verði ekki bara Players eða Kringlukráin,” segir Hjördís, sem lofar miklu fjöri á föstudaginn. „Við spilum bæði gömlu og nýju dansana svo það verður bæði hægt að rokka, tjútta og svífa um í vals á lokaballinu.” Allir sem eiga góðar minningar úr Glæsibæ eru því hvattir til að mæta og dansa síðasta dansinn í húsinu en Hjördís og hljómsveit stíga á stokk um klukkan tíu. - snæ HJÖRDÍS GEIRSDÓTTIR: MIKILL MISSIR FYRIR DANSUNNENDUR Fótafimir Íslendingar kveðja Danshúsið ÞAÐ ER GAMAN AÐ DANSA Dansunnendur missa eitt besta dansgólf borgarinnar eftir helgi þegar Danshúsinu í Glæsibæ verður endanlega lokað. FRÉTTABLAÐIÐ/KAE Vagnhöfða 23 - Sími 590 2000 BFG All Terrain 33x11,5 R15 15.900,- stgr. Seltjarnarnesi 33” Gerið verðsamanburð margar stærðir KT verslun Akureyri Njarðarnesi S. 466 2111 FRÉTTIR AF FÓLKI Nýtt veitingahús verður fljótlega opnað við Hverfisgötu 4-6. Verður það í kjallara hússins en þar hafa iðnaðarmenn unnið hörðum höndum undanfarið, meðal annars við það að saga út fyrir gluggum og gefa þannig gestum kost á útsýni yfir Arnarhólinn. Framkvæmdir eru ekki langt komnar en þó er ljóst að veitingahúsið verður hið glæsilegasta enda vítt til veggja og bjart þar inni. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins stendur erlendur aðili að verkefninu en ekki hefur fengist staðfest hvort það er einhver stórstjarna. Þó er ljóst að staðsetningin er afar góð enda verður veitingahúsið mitt í hringiðu miðbæjarins með nágranna á borð við Stjórnarráðið og 101 hótel. Íslandsvinurinn Eli Roth hefur í hyggju að koma hingað til Íslands og taka upp að hluta framhald hryllingsmynd- arinnar Hostel sem sló eftirminnilega í gegn hér á landi. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru framleiðendur mynd- arinnar væntanlegir hingað til lands í júní og ættu málin að skýrast í kjölfarið. Roth situr sjálfur sveittur við að klára handritið en hann fékk einmitt hug- myndina að sinni fyrstu mynd, Cabin Fever, þegar hann vann á hestaleigu. Leikstjórinn er einn frumkvöðla hinnar nýju hryllingsmyndabylgju sem skollið hefur á í Hollywood þar sem ofbeldi, blóð og nekt eru í fyrirrúmi. Eyþór Guð- jónsson fær væntanlega ekki hlutverk í framhaldsmyndinni enda reyndist persóna hans úr fyrri myndinni ekkert sérlega langlíf á hvíta tjaldinu. -fgg/snæ TÓNLISTIN Uppáhaldstónlistarmennirnir mínir eru hinir miklu Pink Floyd kauðar og þá helst gítarhetjan David Gilmour og hans hátign Syd Barrett. Svo eru Dave Grohl (sértaklega hvað varðar trommur) og Josh Homme í Queens of the Stone Age alveg magnaðir. Ég bý í Vestmannaeyjum og er framboð á útvarpsstöðvum ekkert sérstakt í Eyjum. Það vantar alveg helstu rokk- stöðvarnar þ.e. X-in tvö. Rás 2 stendur sig þó þokkalega vel. BÓKIN Ég er að lesa Deception Point eftir Dan Brown og er nýbúinn að klára Herra Alheimur eftir Hallgrím Helgason. Besta bókin er samt Vopnin kvödd eftir Ernest Hemingway sem er svona líka skemmtilega þýdd af Halldóri Laxness. BÍÓMYNDIN Ég var bara rétt í þessu að klára Walk the Line sem fjallar um Johnny Cash eins og margir vita en þar á undan kíkti ég aðeins á Good Night And Good Luck sem fjallar um hinn skemmtilega McCarthy-tíma. Annars hef ég mjög gaman af evrópskum kvikmyndum þó að það sé reyndar til nóg af evrópsku rusli. Engin mynd hefur þó náð að halda mér jafn vel og danska myndin I Kina spiser de hunde. Þar á eftir mundi ég nefna hina mögnuðu Der Untergang sem fjallar um síðustu daga Hitlers. BORGIN Kaupmannahöfn er úr gulli að mínu mati. Mér líður einfaldlega eins og heima hjá mér þegar ég er þar. BÚÐIN Það eru ekki margar búðir sem njóta jafn góðs af laununum mínum og Skífan. Ég verð helst að eiga alla þá tónlist sem mér finnst góð á útgáfu- forminu. VERKEFNIÐ Við peyjarnir erum að vinna í meira efni. Lagabankinn er nú ekki stór enda erum við svo nýbyrjaðir. Erum bara búnir að vera til eins og við lítum út í dag í 4 mánuði. Samt eigum við nóg af hugmyndum sem á bara eftir að púsla saman. AÐ MÍNU SKAPI: GÍSLI STEFÁNSSON, GÍTARLEIKARI FOREIGN MONKEYS Pink Floyd, Dan Brown, Walk The Line og Köben 1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.