Fréttablaðið - 27.04.2006, Blaðsíða 76
27. apríl 2006 FIMMTUDAGUR40
Þórdís Aðalsteinsdóttir
myndlistarkona opnar
sína þriðju einkasýningu í
New York í dag. Þótt lítið
hafi farið fyrir henni hér á
landi hingað til er óhætt að
fullyrða að Þórdís sé einn af
athyglisverðustu listamönn-
um þjóðarinnar.
Þórdís hefur búið og starfað síð-
ustu ár í New York en hún útskrif-
aðist frá School of Visual Arts
vorið 2003. Listaheimurinn í New
York er harður heimur, færri
komast að en vilja og samkeppn-
in er mikil. Það er ekki sjálfgefið
að komast að hjá stórum gallerí-
um en Þórdís var strax farin að
vekja athygli í skólanum og hefur
verið á samningi hjá Stux-gallerí-
inu í Chelsea frá því hún útskrif-
aðist.
Auk þess að halda einkasýn-
ingar í New York og Íslandi hefur
hún víða tekið þátt í samsýning-
um og ferðast um. Hún kom
aðeins heim síðastliðið vor og
hélt sýningu í Gallerí 101. Þórdís
kann mjög vel við lífið í New
York og þegar Fréttablaðið sló á
þráðinn til hennar var hún í stúd-
íóinu sínu í Brooklyn að leggja
lokahönd á málverk fyrir þriðju
einkasýninguna sem hún opnar í
Stux-galleríinu næsta fimmtu-
dag.
Hlutir sem aldrei breytast
„Sýningin sem ég er núna að und-
irbúa heitir A Cheerful Reminder
of our Lives and Loves. Titillinn
kemur úr texta sem ég skrifaði í
myndbandsverkinu „Opið bréf til
Botnu“ sem ég vann með Oddnýju
Eir Ævarsdóttir í Apaflösu-gall-
eríinu í Brooklyn og sýndi þar fyrr
í vor. Virkjanastefna stjórnvalda
kemur ekki beint við sögu þar en
það vottar samt fyrir örlítilli gagn-
rýni á þá stefnu og ég ætla að sýna
myndbandsverkið aftur núna.
Þessi sýning er um ástina og
lífið, eins og nafnið gefur til kynna.
Það sem við fólkið eigum sameig-
inlegt. Hlutir sem aldrei breytast,
eins og til dæmis ástin. Ég vinn oft
með innviði sálarinnar, undirstrik-
að með innviðum húsnæðis. Hið
rómantíska og viðkvæma deilir
rými með sjúkustu grimmdinni í
okkur, en þessi innri tilvera á sér
varla stað án árekstra og sam-
skipta við umheiminn eins og vitað
er og er orsakavaldurinn í mann-
heimum.“
Stuttur líftími verkanna
Þórdís verður líka með veggverk
á sýningunni hjá Stux. „Þannig
tengi ég saman málverkin og sal-
inn, ég verð því meira og minna í
galleríinu að setja þetta allt saman
fram að opnun, það ætti að vera
gaman.“
Hvað er svo gert við veggverk-
ið þegar sýningin er búin?
„Það er bara komið með máln-
ingarrúllu og málað yfir það.
Alveg eins og með útiverkin mín,
þau eru bara brotin niður.“
Þórdís hefur tekið þátt í tveim-
ur sýningum í skúlptúrlistagörð-
um, annar er í New York-fylki og
hinn í St. Louis. Þar hefur hún
verið með innsetningar sem eru
risa útimálverk máluð undir
berum himni.
„Finnst þér ekkert sárt að verk-
in þín séu eyðilögð?“
„Nei, mér finnst mjög fínt að
vinna þannig að ég viti að það sem
ég er að gera verður eyðilagt. Í St.
Louis bað ég um að kveikt yrði í
verkinu, bara upp á auka dramatík.
Auðvitað er gott að vita af verki
sem einhver á og þykir vænt um,
en stundum er fínt að gefa verk-
um bara stuttan líftíma.“
Kjarvalsstaðir í haust
Þórdís kemur heim í lok júlí til að
undirbúa einkasýningu á Kjar-
valsstöðum 30. september. „Þetta
er mjög stór salur þannig að ég
hlakka til að vinna á þeim skala,
ég á ábyggilega eftir að senda
nokkur verk héðan og svo kem ég
heim í sumar. Það verður yndis-
legt að vinna að þessari sýningu
um íslenskt sumar.“
Það er nóg að gera fram undan
hjá Þórdísi og hún er með verk-
efni langt fram á næsta ár.
„Eftir Kjarvalsstaði fer ég að
vinna að hópsýningu í París sem
ég verð með á í haust og svo verð
ég með einkasýningu í Los Angel-
es næsta vor.
Fyrir þá sem eiga leið til New
York þá opnar sýning Þórdísar í
Stefan Stux-galleríinu í Chelsea
27. apríl og stendur yfir til 27.
Sjúklegt samlífi í sálarkytrunni
ALMOST HUMAN. Útilistaverk eftir Þórdísi í Laumeier-skúlptúrgarðinum í St. Louis í
Missouri-ríki.
MAN DRINK DOG, 2005 Þórdís vinnur oft
með innviði sálarinnar í verkum sínum.
ÞÓRDÍS AÐALSTEINSDÓTTIR Útskrifaðist frá School of Visual Arts árið 2003. Hún var þegar
farin að vekja athygli stóru galleríanna í New York þegar hún var í námi.