Fréttablaðið - 26.05.2006, Page 4
4 26. maí 2006 FÖSTUDAGUR
SKOÐANAKÖNNUN Sjálfstæðisflokk-
urinn mælist enn stærsti flokkur-
inn í Reykjavík, samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins. 43,2
prósent segjast nú myndu kjósa
Sjálfstæðisflokkinn og hefur fylgi
flokksins dalað nokkuð frá síðustu
könnun Fréttablaðsins, 18, maí,
þegar 49,3 prósent sögðust myndu
kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Þetta
myndi þýða að flokkurinn fengi sjö
borgarfulltrúa kjörna, en ekki átta,
líkt og í síðustu könnun blaðsins.
Fylgi flokksins dalar hjá bæði körl-
um og konum frá síðustu könnun.
45,9 prósent karla segjast nú myndu
kjósa flokkinn, en 50,9 prósent karla
sögðust áður kjósa flokkinn. 40,4
prósent kvenna segjast nú myndu
kjósa Sjálfstæðisflokkinn, en í síð-
ustu könnun sögðust 47,4 prósent
kvenna styðja hann.
Samfylkingin bætir við sig
tæpum tveimur prósentustigum frá
síðustu könnun blaðsins. Nú segjast
31,7 prósent myndu kjósa flokkinn,
en fylgi við flokkinn var 29,8 pró-
sent. Fimm fulltrúar Samfylkingar-
innar yrðu því kjörnir í borgar-
stjórn, líkt og í síðustu könnun.
Flokkurinn bætir við sig heldur
meira fylgi hjá körlum en konum.
29,0 prósent karla segjast nú myndu
kjósa Samfylkinguna, en sú tala var
áður 26,4 prósent. 34,6 prósent
kvenna segjast myndu kjósa flokk-
inn, en áður sögðust 33,5 prósent
kvenna myndu kjósa Samfylking-
una.
Vinstri græn bæta við sig nægu
fylgi til að fá tvo borgarfulltrúa
kjörna nú, í stað eins áður. 13,0 pró-
sent segjast nú styðja Vinstri græn,
9,7 prósent karla og 16,5 prósent
kvenna. Í síðustu könnun blaðsins
sögðust 9,1 prósent myndu kjósa
Vinstri græn, og bætir flokkurinn
því við sig tæpum fjórum prósentu-
stigum. Fylgisaukningin kemur
nánast einvörðungu frá konum, en
í síðustu könnun sögðust 9,3 pró-
sent kvenna myndu kjósa listann.
Frjálslyndi flokkurinn stendur
nánast í stað frá síðustu könnun
blaðsins. 7,6 prósent segjast nú
myndu kjósa flokkinn, í stað 7,9
prósenta í síðustu könnun. Líkt og
áður myndi flokkurinn fá einn
mann kjörinn. 9,3 prósent karla
segjast styðja Frjálslynda flokk-
inn, en 5,8 prósent kvenna.
Framsóknarflokkurinn bætir
aðeins við sig fylgi, en ekki nóg til
að koma að manni. 4,5 prósent segj-
ast nú myndu kjósa Framsóknar-
flokkinn, en það voru 3,9 prósent í
síðustu könnun. Nú segjast 6,1 pró-
sent karla myndu kjósa flokkinn, í
stað 5,2 prósenta í síðustu könnun
blaðsins. 2,7 prósent kvenna segj-
ast nú myndu kjósa Framsóknar-
flokkinn, sem er nánast sama fylgi
kvenna og flokkurinn hafði í síð-
ustu könnun.
Hringt var í 800 Reykvíkinga
fimmtudaginn 25. maí og skiptust
svarendur jafnt milli karla og
kvenna. Spurt var; Hvaða lista
myndir þú kjósa ef gengið yrði til
borgarstjórnarkosninga í dag? 67,4
prósent tóku afstöðu til spurning-
arinnar.
Einnig var spurt hvern svarend-
ur vildu að yrði næsti borgarstjóri í
Reykjavík og tóku 69,5 prósent
svarenda afstöðu til spurningarinn-
ar. Flestir, eða 44,8 prósent, sögðust
vilja að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
yrði næsti borgarstjóri. Það er 1,6
prósentustigi meira en fylgi Sjálf-
stæðisflokksins nú. Þá segjast 35,4
prósent vilja að Dagur B. Eggerts-
son verði næsti borgarstjóri. Fylgi
Dags er því 3,7 prósentustigum
meira en fylgi Samfylkingarinnar.
7,4 prósent segjast nú myndu
vilja sjá Svandísi Svavarsdóttur
sem næsta borgarstjóra, 5,6 pró-
sentustigum minna en segjast
myndu kjósa Vinstri græna. 3,6
prósent segjast myndu vilja að
Ólafur F. Magnússon verði næsti
borgarstjóri, sem er fjórum pró-
sentustigum minna en segjast
myndu kjósa frjálslynda. 3,2 pró-
sent vilja að Björn Ingi Hrafnsson
verði næsti borgarstjóri, sem er
1,3 prósentustigum minna en segj-
ast myndu kjósa Framsóknarflokk-
inn. 5,6 prósent segjast myndu
vilja einhvern annan sem borgar-
stjóra. Af þeim var nafn Steinunn-
ar Valdísar Óskarsdóttur, núver-
andi borgarstjóra, oftast nefnt.
svanborg@frettabladid.is
10%
������������������������������������������������������������������
�������������
�������
����
�������� ��
���������
������
�����
���������
���������������
������
��������
��������
�������
����
������� ��
���������������
��������������
�������������
�������������
���������������
���������������
������������
������������
���������������
�����������
�������������
�������������
���������������
��������������
���������������
����������
�� ��������
������������� ��������
�� ����������� � �����
��������� ���������������
����������� ��� �����
�������������� �������
������������������
��������� �������������
����� � � �����������
����������������������
����������� � ����� ��
����� ������������
�� ����� �������������
��������������������
�����������������������
���������� �����������
���������� ������ ���
�� ���� � ��
�����������
�����������
����������� ������� ��� �
�������� ������� �� �
���������������������� �
����� ��
���� ��
�� ������ �� ����������
������� �� ���
��
�
�
�
�
�
�
�
��
�
�
��
��
� ��
� �
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
�
Reykjavík 2006
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga í dag?
Hver vilt þú að verði næsti borgarstjóri í Reykjavík?
Framsóknarfl. (B)
4,5%
Sjálfstæðisfl. (D)
43,2%
Frjálslyndi fl. (F)
7,6%
Samfylkingin (S)
31,7%
Vinstri græn (V)
13,0%
Skoðanakönnun Fréttablaðsins 25. maí
■ Könnun Fréttablaðsins 18. maí
■ Fylgi við oddvita framboðanna
1
7
18
. m
aí
44
,8
%
5
18
. m
aí 35
,4
%
2
18
. m
aí
7,
4%3,2%
3,6%
Vinstri flokkarnir bæta við sig
Sjálfstæðisflokkurinn tapar rúmum sex prósentustigum á milli kannana og fengi sjö menn kjörna. Samfylk-
ingin og Vinstri græn bæta við sig fylgi og fengi Samfylkingin fimm en Vinstri græn bæta við sig manni og
fengju tvo. Frjálslyndir standa í stað og fengju mann kjörinn. Framsókn bætir örlitlu við sig, en fengi engan.
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 24.05 2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 72,39 72,73
Sterlingspund 136,43 137,09
Evra 93,13 93,65
Dönsk króna 12,494 12,568
Norsk króna 11,908 11,978
Sænsk króna 9,994 10,052
Japanskt jen 0,648 0,6518
SDR 108,13 108,77
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
128,7262
Reykjavík
B
6,1%
D
43,5%
F
9,8%
S
25,3%
V
15,2%
Skipting atkvæða og
fjöldi borgarfulltrúa
Könnun Gallup fyrir Ríkisútvarpið 23.–24. maí
1
7
1
4
2
Reykjavík
B
5,0%
D
47,2%
F
8,5%
S
25,6%
V
13,7%
Skipting atkvæða og
fjöldi borgarfulltrúa
Könnun Félagsv.stofnunar fyrir NFS 22.–24. maí
1
8
4
2
KOSNINGAR Framsóknarflokkurinn
nær inn einum manni í borgarstjórn
með rúmlega sex prósenta fylgi sam-
kvæmt nýjustu könnun Gallup sem
var unnin fyrir Ríkisútvarpið. Þetta
er í fyrsta skipti sem Framsókn nær
inn manni samkvæmt Gallup en
þetta er fimmta raðkönnunin.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú
með 43,5 prósenta fylgi og nær inn
sjö mönnum. Frjálslyndir eru með
rétt tæp tíu prósenta fylgi og ná inn
einum manni. Samfylkingin mælist
með rúmlega 25 prósenta fylgi og
fær fjóra menn inn. Vinstri græn eru
með rúmlega 15 prósent og ná tveim-
ur mönnum inn. Könnunin var gerð
dagana 23. og 24. maí og svöruðu
61,6 prósent aðspurðra. - sdg
Framsóknarflokkur eykur fylgi sitt samkvæmt Gallup:
Nær inn manni nú
KOSNINGAR Sjálfstæðisflokkurinn
næði átta borgarfulltrúum og hrein-
um meirihluta í borgarstjórn sam-
kvæmt nýjustu skoðanakönnun
Félagsvísindastofnunar Háskóla
Íslands sem var unnin fyrir NFS.
Mælist flokkurinn með rúmlega 47
prósenta.
Frjálslyndir og óháðir bæta einn-
ig við sig og mælast með 8,5 prósent
sem tryggir þeim einn mann. Sam-
fylkingin er með tæplega 27 prósent
og fengi fjóra menn. Vinstri græn
eru með tæplega 14 prósent og
fengju tvo menn inn. Framsóknar-
flokkur mælist með fimm prósent
sem dugar ekki til að ná inn manni.
Könnunin fór fram 22. til 24. maí og
var svarhlutfall 64 prósent. - sdg
Sjálfstæðisflokkur fengi átta borgarfulltrúa:
Hreinn meirihluti
Ólafur F. Magnússon, Frjáls-
lyndum „Samkvæmt undanförnum
könnunum höfum við verið með ör-
uggt fylgi milli fyrsta og annars manns
á lista og þessi niðurstaða breytir engu
um þann staðfasta ásetning okkar
að ná Margréti Sverrisdóttur inn áður
en yfir lýkur. Við finnum fyrir hlýhug
borgarbúa og kosningabaráttan hefur
verið einstaklega trúverðug og mun
að lokum skila enn meiri árangri en
sést nú.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
Sjálfstæðisflokki „Það er greinilegt
að fylgið er á mikilli hreyfingu og kann-
anir sýna fylgi okkar allt frá 43 pró-
sentum og upp í 48 prósent þannig að
allt getur enn gerst. Samkvæmt þessu
missum við þann hreina meirihluta
sem aðrar kannanir hafa sýnt og það
verður að bíða eftir þeirri könnun sem
öllu máli skiptir á laugardaginn kemur
til að fá endanlega úr þessu skorið. En
ég hef sterkan grun um að við munum
bæta við okkur áður en yfir lýkur.“
Svandís Svavarsdóttir, Vinstri
grænum „Þetta eru mjög athyglis-
verðar tölur, ekki síst fyrir þá sök að
þarna er Sjálfstæðisflokkurinn búinn að
missa meirihlutann. Þarna er virkilega
kominn flötur á að stjórnarandstöðu-
flokkarnir í þinginu myndi með sér
meirihluta í borginni og ég tel að það
sé afar vænlegur kostur ekki síst þegar
við erum að fara inn í kosningavetur.“
Björn Ingi Hrafnsson, Fram-
sóknarflokki „Við erum að sækja
í okkur veðrið en eins og ég hef alltaf
sagt er flokkakönnunin á laugardag-
inn kemur. Aðrar kannanir sýna betri
stöðu en með því er ég ekki að gera
lítið úr þessari könnun. Hún sýnir samt
fylgisaukningu og endaspretturinn er
eftir. Allir geta verið sammála um að
við erum í sókn.“
Dagur B. Eggertsson, Sam-
fylkingu „Í pólitík snýst þetta um
að toppa á réttum tíma og við höfum
verið að dreifa skýrum 16 atriða
verkefnalista í öll hús og treyst á þann
breiða hóp sem að baki framboðinu
stendur. Við höfum fulla trú á að við
munum sækja fram á lokasprettin-
um til að tryggja að við verðum sterk
kjölfesta við myndun næsta meirihluta.
Valið stendur milli Samfylkingar og
Sjálfstæðisflokksins.“
VIÐBRÖGÐ ODDVITANNA