Fréttablaðið - 26.05.2006, Page 30

Fréttablaðið - 26.05.2006, Page 30
ALLT SEM fiIG VANTAR ER Á VISIR.IS/ALLT n‡ vöru- & fljónustu- skrá á visir.is 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI 30 28. janúar 2005 FÖSTUDAGUR SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 3 28 64 05 /2 00 6 Jamis Dakar Stell: 7005 álstell, m/ 2 ára ábyrgð. Bremsur: TekTro diskabremsur m/vír. Gírskiptir: Shimano Deore, 24 gíra. Framdempari: Manitou Splice Comp, 100 mm slaglengd. Stillanlegt bakslag og stífleiki. Afturdempari: Fox Vanilla gormadempari m/ 90 mm slaglengd. Helstu kostir: Það er unun að hjóla á þessu hjóli í hvaða landslagi sem er. Dempararnir eru stillanlegir eftir aðstæðum og lætur hjólið einstaklega vel að stjórn, enda hlaut það verðlaun í flokki fjallhjóla í Ameríku nýverið sem fjallahjól ársins undir 1000 dollurum hjá Bicycling Magazine. Verð: 89.990 kr. Jamis Cross Country 1.0 Stell: 6061 álstell, m/ eilífðarábyrgð. Bremsur: TekTro V-bremsur. Gírskiptir: Shimano Acera, 24 gíra. Dempari: SR Suntour gorma dempari 50 mm slaglengd og stillanlegur stífleiki. Helstu kostir: Frábært alhliða fjallahjól. Hvort sem farið er í lengri ferðir um bratta stíga eða mjóar gönguleiðir þá býr Cross Country fjallahjólið yfir styrk og hönnun til að koma þér á leiðarenda. Svo er auðvitað lítið mál að skjótast á því út í sjoppu. Verð: 32.990 kr. Jamis Explorer 2.0 Stell: 6061 álstell, m/ eilífðarábyrgð. Bremsur: TekTro V-bremsur. Gírskiptir: Shimano Acera, 21 gíra. Dempari: SR Suntour M3070. Einnig dempari í sætispósti fyrir aukin þægindi. Helstu kostir: Fínmynstruð dekk henta vel innanbæjar en halda nægri breidd til að þau nýtist á malarvegunum uppí sumarbústað. Breiður hnakkur, dempari í sætispósti og hátt stillanlegt stýri fyrir upprétta setstöðu. Tilheyrir Street/Comfort línunni hjá Jamis. Sumartilboð: 29.990 kr. verð áður 32.990 kr. HJÓLAÐU INN Í SUMARIÐ HJÓL ÁRSIN S 2006 Æfirðu boltaíþróttir, sund, fim- leika, listhlaup á skautum eða íshokkí? Stundarðu líkamsrækt? Iðkarðu sjálfsvarnaríþróttir? Gengurðu? Skokkarðu? Hleyp- urðu? Syndirðu? Skautarðu? Hjól- arðu? Stórfelld uppbygging Frá árinu 1994 hefur grettistaki verið lyft í uppbyggingu aðstöðu til íþróttaiðkunar og útivistar í Reykjavík. Dæmi um það eru: Laugardalshöll með stækkun, Skautahöllin í Laugardal, Egilshöll, Grafarvogslaug, Félagsheimili Þróttar í Laugardal, 50 m innisund- laug í Laugardal, íþróttamiðstöð við Laugardalslaug í samstarfi við WC, frjálsíþróttahús við hlið Laug- ardalshallar og uppbygging á Blá- fjallasvæðinu. Einnig hafa verið byggðir brettagarðar, fjöldi nýrra gervigrasvalla og sparkvalla fyrir börn, og ráðnir íþróttafulltrúar til að skipuleggja íþróttastarf í félög- unum. Við höfum eflt hreyfingu og útivist sem hluta af daglegu lífi Reykvíkinga með: Uppbyggingu göngu- og hjóla- stíga inni í hverfum og frá Úlfarsá meðfram strandlengjunni vestur að Seltjarnarnesi og þaðan um Fossvog, Elliðaárdal og upp í Heið- mörk að sunnarverðu. Göngubrúm yfir Miklubraut við Rauðagerði og við Skeifuna, yfir Miklubraut við Hvassaleiti, yfir Kringlumýrarbraut í Fossvogi og milli Teiga og Túna, yfir Hring- braut við Hljómskálagarð og við Landspítalann og yfir Reykjanes- braut við Stekkjarbakka. Auk þess höfum við byggt fjölda undirganga undir stórar umferðaræðar. Uppbyggingu Ylstrandarinnar í Nauthólsvík og mikilli uppbygg- ingu í Fjölskyldu- og húsdýragarð- inum. Hreinsun strandlengjunnar, stærsta umhverfisverndarátaki sem ráðist hefur verið í á Íslandi. Framtíðin er hér! Við viljum hins vegar gera enn betur og því gera áætlanir okkar m.a. ráð fyrir: Fjölda nýrra spark- valla og gervigrasvalla. Átaki í skólalóðum og opnum útivistar- svæðum. Fimleikahúsi í Laugar- dal. Uppbyggingu íþróttamann- virkja og aðstöðu hjá fjölda íþróttafélaga í borginni. Viðbygg- inu við Sundhöllina með mögu- leika á sambyggðri líkamsrækt. Sundlaug fyrir Grafarholt og Úlf- arsárdal. Uppbyggingu opinna svæða um alla borg með hreyfi- hvetjandi aðstöðu fyrir börn. Lagningu sérstakra hjólabrauta meðfram fjölförnum götum. Fjölg- un á göngubrúm yfir fjölfarnar umferðaræðar. Framtíðin í Reykjavík er björt og við höldum ótrauð áfram að efla aðstöðu fyrir borgarbúa, hvort sem þeir vilja stunda almenna holla hreyfingu eða keppnisíþróttir. Þegar kemur að hreyfingu og útivist eiga allir að geta verið með. Stefán Jón skipar 3. sæti og Dofri 7. sæti á lista Samfylkingar- innar í Reykjavík. Íþróttir og útivist – allir með! UMRÆÐAN KOSNINGAR STEFÁN JÓN HAFSTEIN OG DOFRI HERMANNSSON FRAMBJÓÐENDUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.