Fréttablaðið - 26.05.2006, Síða 30
ALLT SEM fiIG VANTAR ER Á VISIR.IS/ALLT
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á visir.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
30 28. janúar 2005 FÖSTUDAGUR
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
3
28
64
05
/2
00
6
Jamis Dakar
Stell: 7005 álstell, m/ 2 ára ábyrgð.
Bremsur: TekTro diskabremsur m/vír.
Gírskiptir: Shimano Deore, 24 gíra.
Framdempari: Manitou Splice Comp, 100 mm slaglengd.
Stillanlegt bakslag og stífleiki.
Afturdempari: Fox Vanilla gormadempari m/ 90 mm slaglengd.
Helstu kostir: Það er unun að hjóla á þessu hjóli í hvaða landslagi sem er.
Dempararnir eru stillanlegir eftir aðstæðum og lætur hjólið
einstaklega vel að stjórn, enda hlaut það verðlaun í flokki
fjallhjóla í Ameríku nýverið sem fjallahjól ársins undir
1000 dollurum hjá Bicycling Magazine.
Verð: 89.990 kr.
Jamis Cross Country 1.0
Stell: 6061 álstell, m/ eilífðarábyrgð.
Bremsur: TekTro V-bremsur.
Gírskiptir: Shimano Acera, 24 gíra.
Dempari: SR Suntour gorma dempari 50 mm slaglengd
og stillanlegur stífleiki.
Helstu kostir: Frábært alhliða fjallahjól.
Hvort sem farið er í lengri ferðir um bratta stíga eða mjóar
gönguleiðir þá býr Cross Country fjallahjólið yfir styrk
og hönnun til að koma þér á leiðarenda.
Svo er auðvitað lítið mál að skjótast á því út í sjoppu.
Verð: 32.990 kr.
Jamis Explorer 2.0
Stell: 6061 álstell, m/ eilífðarábyrgð.
Bremsur: TekTro V-bremsur.
Gírskiptir: Shimano Acera, 21 gíra.
Dempari: SR Suntour M3070.
Einnig dempari í sætispósti fyrir aukin þægindi.
Helstu kostir: Fínmynstruð dekk henta vel innanbæjar en halda nægri
breidd til að þau nýtist á malarvegunum uppí sumarbústað.
Breiður hnakkur, dempari í sætispósti og hátt stillanlegt
stýri fyrir upprétta setstöðu.
Tilheyrir Street/Comfort línunni hjá Jamis.
Sumartilboð: 29.990 kr. verð áður 32.990 kr.
HJÓLAÐU INN Í SUMARIÐ
HJÓL
ÁRSIN
S
2006
Æfirðu boltaíþróttir, sund, fim-
leika, listhlaup á skautum eða
íshokkí? Stundarðu líkamsrækt?
Iðkarðu sjálfsvarnaríþróttir?
Gengurðu? Skokkarðu? Hleyp-
urðu? Syndirðu? Skautarðu? Hjól-
arðu?
Stórfelld uppbygging
Frá árinu 1994 hefur grettistaki
verið lyft í uppbyggingu aðstöðu til
íþróttaiðkunar og útivistar í
Reykjavík. Dæmi um það eru:
Laugardalshöll með stækkun,
Skautahöllin í Laugardal, Egilshöll,
Grafarvogslaug, Félagsheimili
Þróttar í Laugardal, 50 m innisund-
laug í Laugardal, íþróttamiðstöð
við Laugardalslaug í samstarfi við
WC, frjálsíþróttahús við hlið Laug-
ardalshallar og uppbygging á Blá-
fjallasvæðinu. Einnig hafa verið
byggðir brettagarðar, fjöldi nýrra
gervigrasvalla og sparkvalla fyrir
börn, og ráðnir íþróttafulltrúar til
að skipuleggja íþróttastarf í félög-
unum. Við höfum eflt hreyfingu og
útivist sem hluta af daglegu lífi
Reykvíkinga með:
Uppbyggingu göngu- og hjóla-
stíga inni í hverfum og frá Úlfarsá
meðfram strandlengjunni vestur
að Seltjarnarnesi og þaðan um
Fossvog, Elliðaárdal og upp í Heið-
mörk að sunnarverðu.
Göngubrúm yfir Miklubraut við
Rauðagerði og við Skeifuna, yfir
Miklubraut við Hvassaleiti, yfir
Kringlumýrarbraut í Fossvogi og
milli Teiga og Túna, yfir Hring-
braut við Hljómskálagarð og við
Landspítalann og yfir Reykjanes-
braut við Stekkjarbakka. Auk þess
höfum við byggt fjölda undirganga
undir stórar umferðaræðar.
Uppbyggingu Ylstrandarinnar í
Nauthólsvík og mikilli uppbygg-
ingu í Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inum.
Hreinsun strandlengjunnar,
stærsta umhverfisverndarátaki
sem ráðist hefur verið í á Íslandi.
Framtíðin er hér!
Við viljum hins vegar gera enn
betur og því gera áætlanir okkar
m.a. ráð fyrir: Fjölda nýrra spark-
valla og gervigrasvalla. Átaki í
skólalóðum og opnum útivistar-
svæðum. Fimleikahúsi í Laugar-
dal. Uppbyggingu íþróttamann-
virkja og aðstöðu hjá fjölda
íþróttafélaga í borginni. Viðbygg-
inu við Sundhöllina með mögu-
leika á sambyggðri líkamsrækt.
Sundlaug fyrir Grafarholt og Úlf-
arsárdal. Uppbyggingu opinna
svæða um alla borg með hreyfi-
hvetjandi aðstöðu fyrir börn.
Lagningu sérstakra hjólabrauta
meðfram fjölförnum götum. Fjölg-
un á göngubrúm yfir fjölfarnar
umferðaræðar.
Framtíðin í Reykjavík er björt
og við höldum ótrauð áfram að
efla aðstöðu fyrir borgarbúa,
hvort sem þeir vilja stunda
almenna holla hreyfingu eða
keppnisíþróttir. Þegar kemur að
hreyfingu og útivist eiga allir að
geta verið með.
Stefán Jón skipar 3. sæti og
Dofri 7. sæti á lista Samfylkingar-
innar í Reykjavík.
Íþróttir og útivist
– allir með!
UMRÆÐAN
KOSNINGAR
STEFÁN JÓN HAFSTEIN OG
DOFRI HERMANNSSON
FRAMBJÓÐENDUR