Fréttablaðið - 26.05.2006, Síða 32

Fréttablaðið - 26.05.2006, Síða 32
 26. maí 2006 FÖSTUDAGUR � �������� ��������������� ��������� ��������� ��� ������������ ��������� ����������� �������������� ��������������� ������ ����� �� �������� �������������������� ���������� ������������� ������������������������ ������������������� ���������������������������  ������ ���������  ������� �� �� ����� ������������ ��� ���� ��������� � ��� ��� ��� �� ��� �� � � ����������������� ������������ ������ ������������������ ��������������� ����� ������������������ ������������������� ������������������ ������������������� ������������������� ���������� ���� ������������������� �������������������� ������������������� ����������������� ������������������ ��������������� ���� ��� ����� ������ ����� � ���������� ����� �������������������� ����������� ���������� ���� ���� ��� ���� �������������������� ������������� ������ �������� �������� ���������� ����������� ����������� ����������� ����������� Afrakstur verkefnisins Akureyri í öndvegi er margþættur og á eftir að hafa víðtæk áhrif á þróun og frekari uppbyggingu bæjar- ins. Undanfarið hefur umræðan einkum snúist um hvort ein meg- inniðurstaða verkefnisins, að gera sjávarsíkið, sé snjöll lausn eða hreinlega slæm. Ekki er ætlun mín í þessum fáu línum að ræða einstaka þætti málsins en vísa á vandað kynningarrit sem dreift var í allar íbúðir á Akur- eyri í gær – fimmtudag. Þar kemur skýrt fram að sú villu- kenning sem haldið hefur verið fram, að kostnaður við gerð sjáv- arsíkisins muni leggjast á bæjar- sjóð og taka fé frá öðrum þörfum verkefnum, á ekki við nokkur rök að styðjast. Þvert á móti bendir allt til þess að sá mikli áhugi sem sterkir fjárfestar sýna að byggja við sjávarsíkið verði til þess að bæj- arsjóður fái mun meira í sinn hlut en nemur kostnaði við gerð þess. Þá fjármuni má nýta til margra góðra verka sem allir eru sam- mála um að sinna. Að auki fá bæj- arbúar nýjan, bjartan og skjól- góðan miðbæ sem laðar til sín viðskipti og ferðamenn. Þannig hefur þetta starf fætt af sér nýja möguleika til að fjármagna fram- kvæmdir við uppbyggingu bæj- arins. Mér er það því með öllu óskilj- anlegt hvernig tilteknir talsmenn framboðslista fyrir bæjarstjórn- arkosningarnar á Akureyri leggj- ast gegn þessum framkvæmdum. Fjármögnun er tryggð og snjöll lausn liggur á borðinu, sem hefur vakið mikla athygli og verið lofuð víða um heim. Þá er allt í einu skorin upp herör gegn gerð sjáv- arsíkisins og talað um að fresta, skoða og spjalla um þetta allt fram og aftur næstu árin enda þótt vönduð og víðtæk vinna hafi nú þegar farið fram við undir- búning með færustu sérfræðing- um landsins. Ég vil bara segja við þetta góða fólk: Það er ekki eftir neinu að bíða. Látum nú verkin tala og hefjumst handa. Hik er sama og tap. Það er búið að vera nóg af þess konar vingulshætti í okkar bæ undanfarna áratugi og tími til að bretta upp ermarnar. Nú er tækifæri til að brjóta blað og gera stórátak til að efla bæinn og byrja á því að taka myndarlega til hendi í miðbæn- um. Þess vegna er mikilvægt að treysta þau pólitísku öfl í bæjar- stjórn í sessi sem hafa komið þessum málum áfram af festu og fimi í framhaldi af íbúaþingi og verðlaunasamkeppninni. Því hvet ég bæjarbúa til að styðja fram- boðslista þeirra sem hafa mynd- að meirihluta í bæjarstjórn síð- ustu fjögur árin – B og D lista. Með því yrði tryggt að vilji íbú- anna frá íbúaþinginginu um skjól- sælan og bjartan miðbæ verði að veruleika. Akureyringar – takið af skarið! UMRÆÐAN KOSNINGAR RAGNAR SVERRISSON KAUPMAÐUR Sveitarstjórnarkosningar nálg- ast. Stjórnmálaflokkarnir kynna áherslur sínar í aðskiljanlegum málaflokkum, skipulags- og umhverfismálum, málefnum ungra og aldinna. Fjallað er um umfang og fyrirkomulag samfé- lagsþjónustunnar, hvort hún eigi að vera félagslega rekin eða á vegum einkaaðila. Í öllum þessum málaflokkum er afstaða Vinstri hreyfingarinn- ar - græns framboðs skýr. Það er hún líka í húsnæðismálum tekju- lítils fólks. Á þessu sviði teljum við vera þörf á stórátaki. Stað- reyndin er sú að tekjulítið fólk í Reykjavík berst í bökkum á hús- næðismarkaði. Kaup á húsnæði er ekki lengur mögulegur kostur eftir að félagslega húsnæðiskerf- ið var eyðilagt með nýrri húsnæð- islöggjöf árið 1999 þvert á vilja verkalýðshreyfingar og félags- legra stjórnmálaafla. Nú er tekist á um leifarnar af þessu kerfi því Sjálfstæðisflokkurinn vill Íbúða- lánasjóð feigan og flest bendir til þess að Framsóknarflokkurinn sé að leka niður í vörn sinni fyrir sjóðinn þrátt fyrir loforð og heit- strengingar um varðstöðu um hann. Hvað er til ráða? Húsaleiga er ekki í nokkru samræmi við greiðslugetu tekjulítils fólks. Því fer fjarri að framboð á íbúðum á vegum Félagsíbúða sé nægjan- legt auk þess sem leiguverð þeirra íbúða hefur farið hækk- andi í samræmi við þá hugsun að stuðningur skuli ekki koma í gegnum leiguna sem slíka, heldur húsaleigubætur. Að okkar mati þarf stuðningurinn að vera blanda af þessu tvennu. R-listinn bryddaði upp á því nýmæli að veita tekjulitlu fólki svokallaðar viðbótarhúsaleigu- bætur til að brúa bilið á milli við- ráðanlegrar leigu og okurkjara markaðarins. Þetta fyrirkomulag hefur verið að þróast og slípast til. Sitthvað gott er um þetta fyr- irkomulag að segja. Það býður upp á sveigjanleika og valfrelsi. Hitt er augljóst, að þennan stuðn- ing þarf að stórauka og gildir hið sama um framboð á íbúðum á vegum Félagsíbúða. Hvað sem segja má um viðbótarhúsaleigu- bæturnar og sveigjanleikann sem þeim fylgja, þá er óöryggið á markaði miklu meira en í íbúðum Félagsíbúða. Ekki er það þó ein- hlítt. Einn svartasti bletturinn á borginni á undanförnum árum er útburður fátæks fólks úr félags- legu húsnæði. Á þessu hafa verið gefnar ýmsar skýringar, fólk hafi ekki borgað leiguna í langan tíma og stundum hafi verið um óreglu að ræða sem valdið hafi nágrönnum ónæði. Allt þetta kann að vera rétt. Það er hins vegar aldrei – ekki undir neinum kringumstæð- um – forsvaranlegt að henda fólki út af heimili sínu án þess að því sé tryggður samastaður. Í fyrsta lagi er það einfaldlega lagaleg kvöð, sem hvílir á sveitarstjórnum, að sjá til þess að allir íbúar sveitar- félagsins hafi húsnæði. Í öðru lagi er hér um að ræða félagslega skyldu okkar. Við getum ekki tal- ist siðað samfélag nema frum- skyldunni húsnæði fyrir alla sé fullnægt. Enda þótt R-listanum hafa tekist margt vel upp verður að horfast í augu við að borgin hefur ekki staðið sig sem skyldi hvað þetta snertir. Einu mega kjósendur treysta og það er að Vinstri hreyfingin - grænt framboð mun gera allt sem hún megnar til þess að færa hús- næðismál tekjulágs fólks til betri vegar. Þar þarf margt að koma til. Aukið framboð á leiguíbúðum, öflugra húsaleigubótakerfi og síðast en ekki síst stóraukinn stuðningur félagsþjónustunnar til aðstoðar fólki sem ekki getur séð sér farborða. Nú þegar dýrtíðar- skrúfan er farin að snúast eykst þörf á því að fylgja félagslega ábyrgri stefnu hvað þetta snertir til mikilla muna. Þorleifur er 3. maður á lista VG í Reykjavík og Ögmundur Jónas- son er þingmaður VG í Reykjavík. VG vill átak í húsnæðismálum UMRÆÐAN KOSNINGAR ÞORLEIFUR GUNNLAUGSSON FRAM- BJÓÐANDI OG ÖGMUNDUR JÓNASSON ALÞINGISMAÐUR Einu mega kjósendur treysta og það er að Vinstri hreyfingin - grænt framboð mun gera allt sem hún megnar til þess að færa húsnæðismál tekjulágs fólks til betri vegar. Síðustu áratugina hefur það nokkurn veginn nægt Akureyr- ingum að rífast um Þór og KA utan við „pólitíkina“. En núna hefur fundist nýr vettvangur til átaka, reyndar ekki alveg nýr af nálinni en hefur ágerst svo um munar núna fyrir sveitarstjórn- arkosningarnar. Málið er, á að leggja tengi- brautir hér eða þar, Dalsbraut eða ekki Dalsbraut, Miðhúsa- braut, hér eða þar eða alls ekki. Það er safnað nöfnum á undir- skriftarlista með eða á móti og pólitíkusarnir reyna að hafa alla góða, taka göturnar til skiptis út af aðalskipulagi eða inn á það aftur. Menn eru auðvitað farnir að nýta netið í þessari baráttu og undirskriftarlisti í gangi þar sem fólk er hvatt til þess fara fram á það að Dalsbrautin sé lögð strax og Miðhúsabrautinni sleppt. Er ekki ábyrgð þessara manna sem setja á stað svona undirskriftar- lista töluverð. Hvatt er til þess að láta framkvæma eitthvað, sem hefur áhrif á fjölda fólks, þó svo að þeir sem skrifa undir þetta sjái ekki annað en það að þetta gæti gagnast þeim sjálfum. Væri ekki eðlilegra, að á svona undirskriftarlista væri óskað þess, að bæjaryfirvöld væru hvött til þess að ganga í það strax að láta kanna það hvort það sé einhver möguleiki að koma þarna fyrir tengibraut sem nýttist sem slík. Og ef það fyndust raunhæf- ar leiðir til þess, að hefja þá und- irbúning strax, ef ekki þá væri hægt að fara að skipuleggja þetta svæði upp á nýtt. Það er búið að gera margar skýrslur um Dals- brautina og eðlilega verið úr vöndu að ráða því hún þarf að fara rétt framhjá barnaskóla, leiksvæði, íþróttasvæði og íbúð- um aldraðra svo eitthvað sé tínt til. Ef samt sem áður skipuleggj- endur og bæjarstjórnarfólk ákveður að þarna skuli stefnt að tengibraut þarf það væntanlega að fara í sinn lögformlega far- veg, umhverfismat o.þ.h. Það er svo þeirra sem framkvæmdin hefur bein áhrif á að koma með sínar athugasemdir og eða mót- mæli sem væntanlega eru skoðuð og athugað hvort þau séu á rökum reist og þá tillit tekið til þeirra. Það telst nú sjálfsagður hlutur í flestum bæjum og borgum að bílaumferð sé stýrt út fyrir helstu íbúðabyggðirnar, þó svo það sé eitthvað lengri leið en oftast samt fljótfarnara. Væri ekki ráð núna að fara eftir samþykkt bæjarstjórnar frá því 14.6.2005 um að taka Dals- brautina út af aðalskipulagi og skipuleggja þetta frátekna svæði upp á nýtt, þar eru margir spenn- andi kostir fyrir hendi. Akureyringar í hár saman UMRÆÐAN HALLDÓR BRYNJARSSON AKUREYRARBÚI SKRIFAR UM KOSNINGAR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.