Fréttablaðið - 26.05.2006, Síða 35
FÖSTUDAGUR 26. maí 2006 3
Frábær köld með kjúklingi og lambakjöti og út á pizzuna.
Góð á saltkexið með rifsberjahlaupi og sem ídýfa.
Íslandsmeistari
kaffibarþjóna 2006
www.kaffitar.is
IMMA
mælir með
nýrri uppskeru af
KÓLUMBÍU
SUPREMÓ
GUADALUPE
Fæst í öllum
helstu matvöru-
verslunum og
á kaffihúsum
Kaffitárs
• Kringlunni
• Bankastræti
• Þjóðminjasafni
• Stapabraut 7
• Flugstöð Leifs
Eiríkssonar
H
2
hönnun
Appelsínukrapi er viðeigandi fæði
þessa köldu vordaga þegar sumar
og vetur frjósa saman dag eftir dag.
Hægt er að búa til krapa úr flest-
um ávöxtum en það er sérstaklega
skemmtilegt að gera appelsínu- eða
sítrónukrapa og bera fram í eigin hýði
eins og hér er gert.
6 fallegar appelsínur
70g sykur
Safi af 1/2 sítrónu
50 ml vatni
1. Setjið sykur, sítrónusafa og vatn
saman í pott og leysið sykurinn
hægt upp. Látið suðuna koma upp
og sjóðið í 2-3 mínútur þar til síróp-
ið verður glært. Kælið.
2. Skerið „lok“ ofan af 4 appelsín-
unum, og hreinsið allt appelsínu-
kjötið vandlega innan úr báðum
hlutunum og með skeið. Setjið
appelsínukjötið til hliðar en tómu
appelsínurnar og „lokin“ á disk inn
í ísskáp.
3. Rífið börkinn af þeim 2 appels-
ínum sem eftir eru og setjið hann
út í sírópið. Kreistið næst safann
úr öllu appelsínukjötinu ( þrýstið
í gegnum sigti) og safann úr auka
appelsínunum líka. Safinn ætti að
verða um 4 dl. Hugsanlega þarf
að bæta við appelsínum til að ná
tilsettu magni af safa.
4. Blandið nú appelsínusafanum
saman við sírópið. Smakkið til og
bætið sykri eða sítrónusafa út í eftir
smekk. Setjið þá blönduna á stórt
fat eða í ofnskúffu (ef hún kemst
fyrir í frystihólfinu). Komið fatinu
fyrir í frysti og látið blönduna frjósa
í 3 tíma. Hrærið í blöndunni á hálf-
tíma fresti á meðan hún frýs.
5. Þegar krapinn er tilbúinn, er
honum skipt jafnt í appelsínurnar.
Setjið lokin á og skreytið þau með
laufguðum kvistum úr garðinum.
Látið standa við stofuhita í um 5
mínútur áður en rétturinn er borinn
fram.
Sveppamauk à la
Sóley
1 kassi sveppir, skornir niður í stóra
og litla bita.
1 búnt ferskt kóriander, hakkað
smátt niður
2 hvítlauksrif, söxuð smátt
1 biti engifer, saxaður smátt
sojasósa (Kikkoman)
olía
púðursykur
kirsuberjatómatar
Allt steikt á pönnu þar til að svepp-
irnir eru vel steiktir og púðursykur-
inn, olían og sojasósan eru orðin að
góðri sósu. Látið kólna, setjið í skál
og stráið kóríander og kirsuberja-
tómötum yfir. Borið fram með
baguette-brauði.
Rússahræra
1 paprika, skorin smátt
1 rauður laukur, skorinn smátt
rauður kavíar
svartur kavíar
hreinn philadelfia-ostur
pínu salt og pipar
Öllu blandað saman í eina hræru
og borið fram með baquette brauði.
Tekur enga stund og gott að narta í.
uppskrift Sóleyjar }
Kjörið í saum-
klúbbinn
PISTILLPISTILL
Til hnífs og skeiðar
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR
Appelsínukrapi
Aspasinn er stundum kallaður
konungur grænmetisins.
Aspasinn er mildur og tælandi á
bragðið og ber í sér von um bjarta
og sólríka daga. Uppskerutími hans
stendur nú yfir og nær hámarki síð-
ustu vikuna í júní.
Aspas er af lilju-
blómaætt og var
fyrst vinsæll meðal
Grikkja og Róm-
verja á fyrstu öld
eftir Krist. Hann
hefur dottið úr og í
tísku sitt á hvað, en hefur trúlega
aldrei verið vinsælli en undanfarna
áratugi. Lengi vel var aspas kallað-
ur grænmeti ríka fólksins, en nú er
hann öllum aðgengilegur á viðráð-
anlegu verði.
Aspasinn er sneisafullur af stein-
efnum og vítamínum og inniheldur
nánast ekkert af fitu og kolvetnum.
Veljið aspas sem er þéttur og ekki
farinn að opna sig, þá er hann fer-
skastur. Skerið hörðu endana af.
Aspas fer sérlega vel með smjöri,
osti og eggjum. Hann er líka ljúf-
fengur með hvers konar kryddi og
mildum mat eins og kjúklingum og
fiski. Svo er einfaldlega hægt að
snöggsjóða hann og borða með
bráðnu smjöri eða hollandaise-
sósu.
Konungur
grænmetisins
20%
afsláttur
Brauðostur
á tilboði
Nú færðu brauðost í sérmerktum
kílóastykkjum á tilboði í næstu verslun!