Fréttablaðið - 26.05.2006, Síða 50
10
Verslunin DUXIANA/GEGNUM
GLERIÐ, Ármúla 10 í Reykjavík,
hefur um árabil selt gott úrval
gæðahúsgagna. Í búðinni er að
finna vörur frá heimsþekktum hús-
gagnaframleiðendum, sem taldir
eru vera fremstir á sínu sviði. Fyrst
má geta sænsku dýnanna frá DUX,
sem verslunin dregur nafn sitt að
hluta til af. Einnig ber að nefna
Molteni & Co., eitt virtasta fyrirtæki
Ítala á sviði húsgagna, þekkt fyrir
fataskápa og veggeiningar. Þá er
verslunin með umboð fyrir Boffi,
sem er frumkvöðull í bað- og eld-
húsinnréttingum. Síðast en ekki síst
fæst allt frá hnífapörum upp í sófa-
sett frá Lambert, sem er samnefnari
fyrir vandað handverk víðs vegar
að úr heiminum. Í búðinni fást ein-
mitt vörur frá Lambert sem henta
vel til útiveru á sumrin og þola vel
íslenska veðráttu. Meðfylgjandi eru
myndir sem sýna brot af því besta
af slíku í búðinni og ætti að gefa
lesendum einhverjar hugmyndir um
hvernig má gera garðinn fallegan í
sumar.
Þekkt hönnun í garðinn
Gegnum glerið selur gæðahúsgögn frá heimsþekktum framleiðendum.
Þessi fallegi tveggja sæta sófi frá Lambert
nefnist Nizza, en stærri útgáfa af honum er
einnig fáanleg í búðinni. Sófinn er gerður
úr hinu byltingarkennda Hulero efni. Án
sessu kostar sófinn 124.000 kr., en með
sessu 147.900 kr. LJÓSM/LAMBERT
Smart bekkur úr Hulero efni sem kostar
153.00 kr. án sessu. Hægt er að fá hann
með svokallaðri „futon“ sessu, en kostur
hennar er sá að þótt innvolsið þjappist
klessist það ekki saman. Ein besta sessa
sem völ er á í dag. LJÓSM/LAMBERT
Flottir „fifties“ stólar frá Lambert. Stólarnir eru bandarísk hönnun og hafa verið framleiddir síðan í seinni heimsstyrjöld. Lambert hefur selt
þá síðustu 35 ár. Þeir eru úr reyr, styrktir með járngrind og lakkaðir. Án arma kostar eitt stykki 9.860 kr., en 11.769 kr. með örmum.
LJÓSM/LAMBERT
Hlýlegur bekkur frá Lambert sem nefnist Modesto, gerður úr hnotu. Hann kostar 118.000.
Stólar og borð frá Lambert. Stólarnir kosta 59.000 kr. stykkið. Borðið fæst með glerplötu
á 196.000 kr., en án hennar á 176.000 kr. Borðið á myndinni fæst einnig kringlótt í DUXI-
ANA/GEGNUM GLERIÐ. LJÓSM/LAMBERT
Þessi fallegi útiarinn fæst í Gegnum glerið.
Þetta er níðþungt pottjárn, sem kubbum
er hent í og kveikt í. Minni gerð arinsins
kostar 56.000 kr., en sú stærri 70.000 kr.
Stanislas Bohic hefur um árabil
hannað garða fyrir Íslendinga með
glæsilegum árangri. Stanislas segist
sjálfur vilja hafa umhverfi sitt fal-
legt og því eigi starfið vel við hann.
„Ég hanna garða af öllum stærðum
og gerðum, fyrir alls konar fólk,“
segir Stanislas.
Ferlið frá því að fólk setur sig
í samband við Stanislas og biður
hann um að hanna garðinn sinn og
þangað til garðyrkjumenn, smiðir,
píparar og rafvirkjar hafa lokið sínu
verki tekur nokkra mánuði. „Fyrst
kem ég á staðinn og skoða aðstæð-
ur, síðan fer ég á skrifstofuna mína
og teikna þetta allt upp. Ég geri
gróðurkort, efnislista og margt
fleira. Síðan geri ég tilboð, þetta
ferli getur tekið allt upp í mánuð,“
segir hann og bætir því við að hann
teikni allt frá grasblettum upp í
gróðurhús.
Stanislas gerir að minnsta kosti
þrjár útfærslur af teikningum fyrir
hvern garð og svo getur fólk valið
það sem því líkar best áður en fram-
kvæmdavinnan hefst. Ef fólk kýs að
láta fagmenn sjá um framkvæmda-
vinnuna í garðinum getur Stanislas
útvegað þá.
Kostnaðurinn við að fá garða-
hönnuð í lið með sér er á bilinu
fimmtíu til fimmhundruð þúsund
krónur. „Ef ég kem, geri skýrslu og
veiti ráðgjöf þá er kostnaðurinn um
fimmtíu þúsund krónur. Meðalstórir
garðar eru í kringum þrjú hundruð
og fimmtíu þúsund krónur.“
Auk þess að hanna garða teiknar
Stanislas mikið í kringum sumar-
bústaði og segir hann að mikið sé
að gera hjá sér um þessar mundir.
Stanislas segir reyndar að mikið sé
að gera hjá sér allan ársins hring,
en auðvitað sé mesti álagstíminn á
sumrin. Stanislas verður á faralds-
fæti um þessar mundi, en hann mun
í maí og júní sjá um garðaráðgjöf
fyrir viðskiptavini Húsasmiðjunar
um allt land.
Vill hafa um-
hverfið fallegt
Stanislas Bohic gerir það gott sem garðahönnuður. Það
getur tekið um það bil tvo mánuði frá því fólk setur sig
í samband við hann þangað til fagmenn hafa lokið sinni
vinnu garðinum.
Stanislas Bohic segist gera a.m.k. þrjár útfærslur þegar hann teiknar upp garðinn.
■■■■ { sumarhús og garðar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■