Fréttablaðið - 26.05.2006, Side 54
14
„Kirkjugarðinn var farið að nota
um það leyti sem Lágafellskirkja
var vígð í febrúar 1889,“ segir
Jóhann. „Síðan þá er búið að
stækka garðinn nokkrum sinnum
en hann verður ekki stækkaður
meir, frekar en kirkjan sjálf. Elsta
merkta leiðið í garðinum er frá
1891, en í honum hvíla nokkrir
þjóðþekktir einstaklingar, þeirra
á meðal Guðmundur Einarsson,
listamaður frá Miðdal. Gamli garð-
urinn var aðalgrafreitur sóknar-
innar en þar sem hann er að fyllast
er kominn nýr grafreitur við Mos-
fellskirkju.“
Að sögn Jóhanns fer ekki minni
vinna í viðhald á garðinum en á
kirkjunni. „Á sumri hverju fæ ég
með mér fólk, yfirleitt ungt náms-
fólk, til þess að sjá um garðinn,“
segir hann. „Starfið tekur að öllu
jöfnu þrjá mánuði. Fyrstu verk-
efnin eru tiltekt í garðinum eftir
veturinn, sem getur verið nokkuð
vandasamt. Til dæmis felst í því að
hreinsa beð vel og vandlega og búa
þau undir niðursetningu blóma.“
Jóhann segir einnig þurfa að
laga krossa sem láti á sjá eftir
veturinn og svo séu garðsláttur
og almenn umhirða í verkahring
starfsmanna garðsins. „Við höfum
þrjá garða til að hugsa um, það
er að segja Lágafellskirkjugarð og
Mosfellskirkjugarð. Sá síðarnefndi
skiptist í nýja og gamla hlutann,
sem er nokkurra alda gamall,“
segir hann. „Það er því óhætt að
segja að okkur falli ekki verk úr
hendi.“
Starfið margborgar sig greini-
lega því í garðinum er sérlega
fallegt um að litast og óskandi að
gestir og gangandi taki með sér
Þar sem mætir menn hvíla
Lágafellskirkjugarður er fallegur staður með langa sögu að baki, samkvæmt Jóhanni
Björnssyni, kirkjuverði og framkvæmdastjóra Lágafells- og Mosfellssókna.
Lágafellskirkjugarð var farið að nýta upp úr vígslu kirkjunnar árið 1889. Garðurinn er því
meira en aldargamall og fer mikil vinna í viðhald á honum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Margir þjóðþekktir einstaklingar hvíla
í Lágafellskirkjugarði, þeirra á meðal
Guðmundur frá Miðdal, sem er álitinn einn
fjölhæfasti listamaður Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Upp úr sameiningu Mosfellssóknar og Gufunessóknar á milli 1885 og 1890 var byggð ein kirkja á Lágafelli. Árið 1956 var byggt við kirkjuna
og á aldarafmælinu 1989 var skrúðhússal bætt við hana. Hún verður nú ekki stækkuð meir vegna aldurs. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Allra bjartsýnustu blóma-
áhugamennirnir voru byrjaðir að
gróðursetja sumarblómin fyrir
miðjan maímánuð en flestir treysta
íslenska vorinu ekki betur en svo
að þeir bíða fram að mánaðamót-
um maí og júní til þess að vera
nokkuð öruggir.
Lára Jónsdóttir garðyrkjufræð-
ingur segir að skipta megi sumar-
blómunum í tvo flokka. Annars
vegar séu plöntur sem seldar eru
í minni einingum líkt og stjúpur,
fjólur, morgunfrú og silfurkambur.
Hinn flokkurinn er stærri sumar-
blómin eins og vinsælu hengi-
plönturnar tóbakshorn, snædrífur
og hengilóbelíur svo dæmi séu
tekin.
„Þegar maður gróðursetur
sumarblóm er gott að byrja á því
stinga moldina vel upp áður og
jafnvel að bæta nýrri mold við þá
gömlu,“ útskýrir Lára.
„Það er mikilvægt að bera hæfi-
lega mikið af áburði í beðin og
taka pottinn af plöntunni áður en
maður gróðursetur hana í moldina,
síðan er bara að vökva vel,“ segir
hún og bætir því við að eftir það
séu örlög blómsins komin að mestu
í hendur veðurguðanna.
Enginn sérstakur eindagi er á
því hvenær fólk má gróðursetja
sumarblómin og því er í lagi að
gróðursetja þau svo lengi sem þau
fást í blómabúðunum. Ef veðrið
helst sæmilegt og engin plantan
hlýtur þau örlög að vera troðin
undir geta sumarblómin flest stað-
ið falleg fram í september.
,,Svo vil ég líka benda á að
svalirnar eru kjörinn staður til að
geyma sumarblóm í pottum. Það er
hægt að búa til lítinn blómagarð
með nokkrum fallegum sumar-
blómum á svölunum hjá sér,“ segir
Lára að lokum.
Í fullum skrúða
Nú er sá tími ársins þegar allir henda sér á fjóra fætur
og byrja ýmist að rífa upp gömul blóm eða gróðursetja
ný. Lára Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur hjá Blómavali,
fór yfir nokkur mikilvæg atriði í tengslum við sumar-
blómin með blaðamanni.
Lára Jónsdóttir garðyrkjufræðingur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Gular stjúpur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Dalíur úr Blómavali. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
■■■■ { sumarhús og garðar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■