Tíminn - 25.09.1977, Qupperneq 8

Tíminn - 25.09.1977, Qupperneq 8
ii m'iii Sunnudagur 25. september 1977 Hvassafellssel Ingólfur Davíðsson: Byggt og búið í gamla daga 190 Aftalstræti 42 á Akureyri (8/8. 1977) Saurbæjarhreppur er fremsti hreppur i Eyjafjarðardal, og byrjar vestan ár við bæinn Sam- komugerði. Þar skerst Djúpi- dalur til suðvesturs úr Eyja- fjarðardal og fram úr honum vmsir smádalir. er notaðir voru sem afrettir. Einn þeirra er Hvassafellsdalur, kenndur við höfuðbólið Hvassafell, en þar hefur jafnan verið stórbú og stundum tvibýli. Einbýli þó sið- asta mannsaldurinn. Á Hvassa- fellsdal eru á einum stað með- fram ánni langar, sléttar grundir, sem Selsgrundir heita, enda var þarna sel frá Hvassa- felli og stundum tvö, þegar tvi- býli var þar. Selshúsið stóðu i einfaldri röð, hvert af enda annars, og voru til að sjá eins og lengja, eða eitt hús með risi út og suður. Hvildi þakið á einum ás, mæniás, sem lá gafla á milli i húsinu. Veggir voru hlaðnir mestmegnis úr grjóti með sléttum hliðum, ef það fékkst, en kannske eitthvað af torfi og mosa á milli til þess að fylla upp holur. Að innan var selið hlutað sundur i f jögur hús eða hólf með þverveggjum úr grjóti. Syðsta húsið var svefnhús eða bað- stofa, 3,4 metrar á hvern veg. Næst var svo skyrbúr, nokkuð mjórra, en veggurinn á milli náði upp jafnt hliðarveggjum, en ekki að risi. Þá var mjólkur búr með bekkjum og hillum og stærðin svipuð og á svefnhúsi. Voru þar á útidýrnar, en innan- gengt var úr þvi I skyrbúr og svefnhús. Yzt var eldhús með sérstökum útidýrum. I baðstof- unni var breiður rúmbálkur með brik og einnig var þar borð. Gluggi var á austurhlið svefn- hússins. Að húsabaki voru kvlarnar og náðu að húsveggnum að vestan- verðu. Talið er að siðast hafi verið haft i seli frá Hvassafelli árið 1901. Lýsing þessi er tekin úr bók- inni „örnefni i Saurbæjar- hreppi” 1957, en myndin af sel- inu tekin af málverki eftir Baldur Eiriksson (birt i bók- inni). Vikjum héðan ogstaðnæmumst i „Fjörunni” á Akureyri við húsið nr. 42 i Aðalstræti. Svipuð þvi hafa mörg gömlu timbur- húsið á Akureyri verið, einlyft með kvisti. Húsið stendur á stalli i reyniviðarlundi með brekkuna að baki. Framhlið stallsins hlaðin upp með grjóti. Skammt er héðan I „skálda- húsin” Páls Árdals og Matthiasar. Við Aðalstræti 70 hefur skáld- skapurinn tekið á sig annan blæ, þar er ort i stein og málma. Myndastytturnar i garðinum (ein sést á myndinni) gerði frú Elisabet Geirmundsdóttir en hún og maður hennar Ágúst As- grimsson bjuggu i þessu húsi. Elisabet var miklum listagáfum gædd, en andaðist um aldur fram, aðeins 44 ára, árið 1959. Ekki var gróðrinum heldur gleymt þarna. I forgrunni á myndinni sést limgerði og geitatoppur en tré i baksýn. Kristján, bróðir Elisabetar, setti upp fugla o.fl. dýr af miklu listfengi. Göngum héðan út á Oddeyri og litum á Lundargötu 5 og 7. Þar sjáum við gamalt og nýtt, roskin hús og nýleg leiktæki barnanna. Tré skarta og skýla eins 'og hvarvetna i höfuðstað Noröurlands. Aðalstræti 70 á Akureyri (9/8. 1977) Lundargata 7 á Oddeyri (fyrir miðju) (8/8 1977)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.