Tíminn - 25.09.1977, Blaðsíða 23

Tíminn - 25.09.1977, Blaðsíða 23
Sunnudagur 25. september 1977 23 Mi'liAJL! Guölaugsson flytur ferða- þátt meö rimuöu ivafi. (Aö- ur útv. 12. jan. i vetur). 18.00 Stundarkorn meö ung- versk-danska fiöluleikaran- um Emil TelmanýiTilkynn- ingar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Hvers vegna Reykja- vlk? Lýöur Björnsson sagn- fræðingur flytur erindi. 20.00 tslensk tónlist a. „Mild und meistens leise” eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Haf- liöi Hallgrimsson leikur á selló.b. Konsertino fyrir tvö horn og strengjasveit eftir Herbert H. Agústsson. Höf- undurinn og Stefán Þ. Stephensen leika ásamt Sin- föniuhljómsveit Islands: Al- fred Walter stjórnar. c. „Friðarkall”, hljómsveitar- verk eftir Sigurö Garðars- son. Sinfóniuhljómsveit Is- lands leikur: Páll P. Páls- son stjórnar. 20.30 Lifsgildi: sjöundi þáttur Geir Vilhjálmsson sálfræð- ingur tekur saman þáttinn, sem fjallar um gildismat I trúarlegum efnum. Rætt við séra Þóri Stephensen, Jörmund Inga og fleiri. .21.15 Hornaþytur I Háskóla- blói Unglingadeild lúöra- sveitarinnar „Svans” leik- ur: Sæbjörn Jónsson stjórn- ar. (Hljóöritað f maí I vor). 21.45 „Viö höfum gaman af þessu’ Sigmar B. Hauksson ræöir viö Sigurjón Jónsson skipstjóra á Vopnafirði um hákarlaveiöar. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Danslög Sigvaldi Þorgilsson dans- kennari velur lögin og kynn- ir. 23.25 Fréttir. Dagskrárlok. sjonvarp Sunnudagur 25. september 18.00 Símon og kritarmynd- irnar.Breskur myndaflokk- ur. Þýðandi Ingi Karl Jó- hannesson . Sögumaður Þörhallur Sigurðsson. 18.10 Svalt er á selaslóö Vetur hjá heimskautseskimóum Siðari heimildamyndin um Netsilikeskimóana i Norð- ur-Kanada, og lýsir hún lifi þeirra aö vetrarlagi. Þýö- andi og þulur Guöbjartur Gunnarsson. Aður á dag- skrá 21. febrúar 1977. Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Skóladagar (L) Sænskur myndaflokkur. 5. þáttur. Efni fjórða þáttar: Eva Mattson kemur i leitirnar, en móöirhennar hefur samt miklar áhyggjur af liferni hennar. Kamilia lendir i rif- rildi heima út af skólanum. Henni liður ekki vel, og hún leitar til hjúkrunarkonu skólans. Katrin býöur Jan að dveljast eina helgi með sér i bústað, sem hún á uppi i sveit. Eva heldur upptekn- um hætti, og kvöld nokkurt kemur móðir hennar að henni, þar sem hún liggur i vimu. Þýðandi Óskar Ingi- marsson (Nordvision — Sænska sjónvarpið) 21.30 Samleikur I sjónvarps- sal Erling Blöndal Bengts- son og Arni Kristjánsson leika saman á selló og pianó. Stjórn upptöku Tage Ammendrup. 21. 50 Þrir þjóöarleiðtogar Breskur heimildamynda- flokkur. Lokaþáttur. Joseph Stalin. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 22.45 Að kvöldi dags Séra Jón Dalbú Hróbjartsson, sóknarprestur I Laugarnes- prestakalli, flytur' hug- vekju. 22.55 Dagskrárlok wmm—mmmm^—mmmmmm* David Graham Phillips: SUSANNA LENOX (jdnHelgason ^£010^ j kæri mig ekki um að hnýsast í einkamál yðar. ,,Hugsaðu um þitt", það er mín regla". Hún talaði af talsverðum móði eins og einjver ósýnileg vera hefði haldið hinu gagnstæða fram, og það mætti allt eins vel búast við því að hún kæmi þá og þegar fram á sjónarsviðið og léti til sín taka. Og hún hélt áf ram: ,, Fyrst herra Ellison mælir með yður, þá ætti öllu að vera óhætt. En þér verðið að vera komin heim klukkan tíu á kvöldin". ,,Ég skal alls ekki fara út á kvöldin", sagði Súsanna. ,,Þér virðist vera stillt stúlka", sagði frú Wylie með þeim svip að ráða mætti í, að stúlkur væru sjaldnast það sem þær virtust vera. ,,Ég er stillt stúlka", sagði Súsanna afdráttarlaust. ,,Ég qet ekki leyft átroðning af ókunnugu fólki. Það má enginn gestur koma inn i herbergið yðar". ,,Það verður enginn átroðningur". Hún sótroðnaði. ,,Það er reyndar ungur maður að heiman — hann kemur kannski einu sinni, en hann fer undir eins — hann er á leið austur á Atlantshafsströnd". Frú Wylie íhugaði þetta, og Súsanna beið úrskurðarins milli vonar og ótta. Hún var hrædd um, að hann yrði henni andsnúinn. Loks sagði frú Wylie: ,,Róbert sagði að þér vilduð fá fimm-dala herbergið. Ég ætla að sýna yður það". Þær f óru upp tvo stiga. Sóðaskapurinn f ór vaxandi eft- ir þvi sem otar dró. Inn af ganginum á þriðju hæð var lítið herbergi — ofurlitil kytra. Glugginn sneri út að húsagarðinum. í því var mjór beddi,. lítið borð, agnarlítil dragkista, þvottaborð af svipaðri stærð og á bátnum, fá- einir snagar og rósótt forhengi, eldhússfóll, steinprentuð mynd og óhrein og rif in gólfábreiða. Fúa- og saggalyktin var megn. ,,Þetta er snoturt og þægilegt herbergi", sagði frú Wylie. Ég get ekki leigt yður það og látið yður í té tvo málsverði á dag fyrir fimm dali nema um hásumarið. Eftir 1. september verðið þér að borga átta dali". „ Ég verð samt fegin, ef þér vil jið leyfa mér að vera", sagði Súsanna. Tortryggnin sem skein út úr nærgöngulu augnaráði konunnar, rændi Súsönnu öllum kjarki. Ljómi hins mikla ævintýris fölnaði óðum. „Þér hafið einhvern farangur meðferðis, þykist ég vita", sagði frú Wylie með þeim raddblæ að auðheyrt var, að hún bjóst alls ekki við því. „Ég skyldi hann eftir í lyf jabúðinni", sagði Súsanna. „Koffortið yðar?" Það var eins og hnífur hefði verið rekinn í Súsönnu. „Ég — ég var ekki með neitt koffort — aðeins dálitinn pinkil. „ Ja, nú á ég ekki orð til í eigu minni!" Frú Wylie hristi höfuðið og sletti i góminn. „En þér getið náttúrulega verið fyrir það, úr þvfherra Ellison vill það". „Þakka yður fyrir" sagði Súsanna hæversklega. Hún hefði ekki þorað að segja sannleikann um vilja herra Ellisons í þessu efni og taka síðan af leiðingunum af því, þótt ekki hefði verið öðru til að dreif a en því, að hún vildi ekki svíkja Róbert, vin sinn í tryggðum. „Ég — ég ætla að sækja dótið mitt." „Það er venja mín að láta leigjendurna greiða fyrir fram", sagði frú Wylie, hvöss á brún. „Æ-já — auðvitað" stamaði Súsanna. Hún tyllti sér á stólgarminn opnaði buddu sína og tók upp f imm dala-seðií. Henrii varð litið f raman i frú Wylie um leið og hún rétti henni seðilinn. Hún varð dauðhrædd er hún sá hvernig hún rýndi niður í budduna. Hún hafði aldrei fyrr séð uppmálaða hina skef jalausu græðgi, sem borgarlífið fæðir af sér hjá fólki , er berst hatrammri baráttu til þess að halda virðingu sinni og forða sjálfu sér frá ömurlegu hlutskipti hinnar fyrirlitnu verka- mannastéttar. „Þakka yður fyrir", sagði frú Wylie og hrifsaði seðil- inn með því látbragði að ætla mætti að hún væri að gera Súsönnu stórmikinn greiða. „Ég læt alla borga skilvis- lega. Peninga fyrsta dag vikunnar — eða burt úr mínu húsi. Ég var tilhliðrunarsöm áður og var hér um bil kom- inn á hausinn fyrir bragðið". „ Ég skal ekki verða hér lengur en ég get borgað" sagði stúlkan. „Ég fer strax að leita mér atvinnu". „Ja, ég vil ekkert vera að spilla vonum yðar, en það eru margir atvinnulausir í þessum bæ. Þó býst ég nú við, að þér getið snúið yður út peninga hjá einhverjum. En ég ætla að láta yður vita það, að ég geri strangar kröf ur um siðferði fólks. Ef eó| sé einhver merki þess.„Frú Wyl- ie lauk við setninguna. Orðin hefðu hvort eð var orðið á- hrifalaus í samanburði við augnaráð hennar. Súsanna brá litum, og það fór hrollur um hana. Þvi olli samt ekki hin meinlega bending um það, hverniq hún ætti að af la sér peninga svo að hún gæti borgað fæði sitt og húsnæði því að hún fór fyrir ofan garð og neðan hjá Súsönnu. Það, sem henni flaug i hug, var þetta: Hvað skyldi frú Wylie gera, ef hún kæmist að því, að ég er lausaleiksbarn? — Já, ef f rú Wylie kæmist nú að þvi að hún átti ekkert ættarnafn — var fædd í svo mikilli skömm, að allir ætluðu henni allt hið versta, hversu sak- laus sem hún annars var! „Þer getið reitt yður á það, að ég er eins og f járinn sjálfur á hælunum á hverjum kvenmanni, sem gerir sig eitthvað liklega við karlmenn", hélt matseljan áfram. „Ég hef aldrei getað skilið það, hvers vegna kvenfólk sleppir sér út í slíkt". Og þessi kona sem fram á þennan dag hafði komizt í gegnum lífið án ýkja margra tæki- færa til þess að „sleppa sér sjálf ri sér út í" neitt vegna karlmanna leit hvössum og tortryggnum öfundaraugum á Súsönnu hina fögru. Og svo bætti hún við: ,, Ég vona, að þér séuð sannkristin". „Ég er alin upp við kenningar-öldungakirkjunnar", sagði Súsanna kvíðafull. Þvi fór f jarri að hún f ulltreysti því að slíkt fólk væri talið til kristinna manna í Cincinn- ati. „Það er kirkja sem trúbræður yðar eiga, hér rétt hjá" sagði frú Wylie. Það lét hún nægja. Súsönnu fannst einhver ímugustur á öldungakirkjunni felast í hreimnum. „Það er gott", tautaði hún. Hún vildi komast sem fljótast á brott. „Nú fer ég að sækja dótið mitt". ,, Þér getið gengið hérna spottakorn niður f yrir og f arið með vagninum sem gengur eftir Fjórða-stræti", sagði húsmóðirin. „Þér skuluð hafa gát á öllu sjálf því að vagnstjórarnir eru hysknir og gleymnir." Súsanna hljóp eins hratt og hún gat niður stigana . þvi að hún vildi komast sem fyrst út úr þessu húsi. Hún varð undir eins vonbetri, er hún var komin út undir bert loft. Hún hélt niður að Fjórða-stræti en þegar til kom kaus hún fremur að ganga en fara með strætisvagninum. Henni fannst ennþá meira til um þessa götu en hina fyrri, og nú komst hún að þeirri niðurstöðu, að Sjötta- stræti myndi vera ein af minni háttar götunum. Því lengra sem hún komst inn í borgina þeim mun hrifnari varð hún. Þegar hún var komin gegnum þann borgar- hlutann, þar sem íbúðarhúsin voru og f yrirmenn óku um

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.