Tíminn - 25.09.1977, Page 12
12
Sunnudagur 25. september 1977
Tíminn heimsækir Selfoss
Ég hef alltaf
haft nóg að
gera og þarf
ekki að
kvarta yfir
neinu
— segir Sigfús Kristinsson
byggingarmeistari
Sigfús Kristinsson byggingameistari meö tvtt barna sinna.
Sigfús Kristinsson er bygginga-
meistari á Selfossi. Hann tók
sveinspróf i trésmiði árió 1954 og
hefur stundað trésmíðar siðan,
fyrstu 12 árin að Bankaveg 4, en
reisti árið 1967 350 fermetra verk-
stæðisbyggingu að Austurvegi 44.
Þar hefur hann rekið trésmiða-
verkstæði siðan. Þar er nú risið
glæsilegt þriggja hæða hús með
stórum verzlunargluggum á jarð-
hæð, fullfrágengið að utan og
malbikuð bilastæði. Þetta hús-
næði leigir Sigfús ýmsum aðilum
á Selfossi. Sigfús hefur tekið að
sér að reisa ýmiss konar bygging-
ar og staðiö að margháttuðum
verklegum framkvæmdum.
Þá hefur hann annazt inn-
réttingasmiði og reist ibúöarhús
viða um sveitir. Helztu hús-
byggingarsem Sigfús Kristinsson
hefur tekið að sér eru m.a. endur-
bygging Sláturfélags Suðurlands
á Selfossi, nýbygging Pósts og
sima, fiskverkunarstöð Straum-
nesshf., nýtt verzlunarhús Kaup-
félagsins Hafnar, sumarbústaðir
simamanna i Laugardal, nýbygg-
ing fyrir Hraðfrystistöð Eyrar-
bakka hf, þeir áfangar sem lokið
er við byggingu Sjúkrahúss
Suðurlands, og ótal verkefni önn-
ur semof langt yrði upp að telja.
Iðrast þess ekki að hafa
valið trésmiðina.
— Hvernig atvikaðist það að þú
fórst að læra trésmiði?
— Þannig stóð á þvi að eftir
landspróf var ég á báðum áttum
hvort ég ætti að fara i mennta-
skólaeða trésmiðina sem varðof-
an á. Ég hef aldrei iðrazt þessa
vals, þvi ég ég hef alltaf haft nóg
að starfa og ekkert lát virðist á
verkefnum. Iðnaðarmenn eru hér
margir og allir virðast hafa nóg
að gera.
Faðir minn, Kristinn Vigfús-
son, stundaði sjómennsku i
fjöldamörg ár og var formaður i
Þorlákshöfn og á Eyrarbakka
1917-1929. Hann lærði ungur tré-
smiði á Eyrarbakka, og hérá Sel-
fossi árið 1932, þar sem hann
stundaði húsasmiðarupp frá þvi i
samfellt 30 ár. Ég var ekki gam-
all, þegar ég fór að vinna með
honum við ýmiss konar bygg-
ingavinnu. Sennilega hefur þetta i
og með ráöið vali minu á ævi-
starfi- ,'Þegar ég byrjaði hjá hon-
um sem lærlingur var hann að
byggja Landsbankahúsið og hafði
tekið að sér endurbyggingu
Mjólkurhús Flóamanna.
Byrjaði smátt
— Hvernærhófst þú sjálfstæðan
atvinnuretetur?
— Það mun hafa verið 1956 að
ég hóf sjálfstæðan atvinnurekstur
og tók til min menn i vinnu.
Framan af byggði ég einkum
ibúðarhús sem smám saman tók
ég að mér stærri verkefni hús
Pósts og sima, verkstæðisbygg-
ingu Kaupfélags Arnesinga, sem
er stærsta iðnaðarhús á Suður-
landi, 36x72 metrar og ótalmarg-
ar byggingar aðrar.
— Hver eru helztu verkefni þin
nú?
— Ég hef verið með vinnuflokk
austur á Hvolsvelli og er að
byggja nýtt frystihús fyrir Slátur-
félag Suðurlands, liðlega 1000 fer-
metra byggingu. Þar hafa verið
að stað aldri um 15 manns. Verkið
hófst i vor og þvi verður að likind-
um lokiö þegar þetta birtist.
Sláturfélagið hyggst taka þá
byggingu i notkun strax i haust.
Þessu húsnæði skila ég að mestu
tilbúnu utan og innan. Það var
boðið út i vor og ég beðinn að gera
tilboð hvað ég og gerði. En þegar
til kom bárust ekki önnur tilboð
en mitt. Þar held ég klaufaskap
hafi verið um að kenna.
"Þá byggði ég fyrsta og annhn
álanga Sjúkrahúss Suðurlands.
Fyrsti áfanginn var að steypa
húsið,annar áfangi var múrverk
allt og lagnir. Hjá mér starfa
múrarar sem annast alla múr-
verksvinnu. Lokaáfangi er svo að
fullgera húsið að öllu leyti og
smiða allar innréttingar. Sá
áfangi var nýlega boðinn> út.Tvö
tilboð bárust og mitt var lægra.
— Hversu marga menn hefur
þú i vinnru?
— Hjá mér eru nú 12 lærðir tré-
smiðir, 7 lærlingar 19 verkamenn
og 8 unglingar eða 46 manns. En
fólkinu fækkar eitthvað þegar
skólarnir hefja starf sitt.
Verkstæðisplássið hjá mér er
nú 1000 fermetrar og þar af um
helmingur nýleg viðbót. Þá er ég
með fimm bila til að flytja starfs-
menn milli staða og tvær gröfur
sem ég leigi ýmist út eða nota
sjálfur.
Framundan eru ýmis verkefni.
Uppbyggingin á Selfossi er feiki-
leg. T.d. hygg ég aö Kaupfélagið
hyggist leggja út i byggingu vöru-
markaðar á 4500 fermetra grunn-
fleti.
Man varla eftir dauðu
timabili þessi ár
— Oft er talað um samdrátt og
erfiðleika i byggingariönaði, Sig-
fús. Hefur þig aldrei skort verk-
efni eöa orðið var við samdrátt?
— Nei, ekki aldeilis. Ég man
ekki eftir dauðu timabili öll
þessi ár. Mér fannst stöðug stig-
andi i öllum framkvæmdum. Oll
umsvif hafa aukizt jafnt og þétt.
Alltaf er unnið að einhverjum
verkefnum, ýmist akkorðsvinna
eða byggingar sem ég er með
sjálfur. Ég þarf aldrei að senda
menn heim vegna verkefna-
skorts. En þess ber og að minn-
ast, að ég hef mjög tekið að mér
verk fyrir stórfyrirtækin, t.d.
Sláturfélagið, Mjólkurbú Flóa-
manna og Póst og sima.
— Þú hefur marga menn i
vinnu. Er það ekki geysilegt verk
að annast bókhald, útborgun, inn-
heimtu og alla þá snúninga sem
starfinu fylgja?
— Þvier ekkiaðleyna að álagið
er gifurlegt þegar útborgun og
innheimta bætast ofan á allt
annað.Leiðinlegast er að standa i
innheimtum. Ég hef fram til
þessaannaztbókhald, verkstjórn,
launaútreikning, útborgun og
innh. sjálfur. En þetta er ein-
um manni gersamlega ofviða og
þess vegna hef ég nú ráðið sér-
stakan bókhaldara. En svo léttir
Upplýsingar og innritun er í simum:
52996 frá kl. 1-6 76228 frá kl. 1-6 84750 frá kl. 10-12 og 1-7
Lærið
að dansa
það er holl og góð íþrótt
ennt verður: Barnadansar — Jassdans — Stepp — Samkvæmisdansarnir
- Gömludansarnir — J i tterbug-Rokk — Nýjustu Táningadansarnir — Plantation, Hasa, Bulb og fl.
Kennslustaðir:
Reykjavik:
Ingólfscafé
Skúlagötu 32
Seljabraut 54
Safnaðarheimili
Langholtssóknar
Félagsheimili Fylkis
Kópavogur:
Hamraborg 1
Digranesskóli Akranes:
og Kópavogsskóli Reim
Hafnarfjörður: Hella:
Iðnaðarmannahúsinu Hellubió
Fimleikar
Áhaldafimleikar fyrir stúlkur, æfingar
eru að hefjast.
Innritun og upplýsingar i æfingatimum
sem verða i Breiðholtsskóla
Fyrsti og annar flokkur: þriðjudaga og
miðvikudaga kl. 18.50-20.30
Þriðji og fjórði flokkur: laugardaga 8-10
ára kl. 9,11 ára og eldri kl. 10.30
Fimleikadeild ÍR
I liter af kem. hreinsuðu
rafg. vatni. fylgir til
áfyllingar hverjum
rafgeymi sem keyptur
er hjá okkur.
RAFGEYMAR
Þekkt merki
Fjölbreytt úrval 6 og 12
volta fyrir bíla, bæði gamla
og nýja, dráttarvélar og
vinnuvélar, báta, skip o.fl.
Ennfremur:
Rafgeymasambönd — Startkaplar
og pólskór. Einnig: Kemiskt
hreinsað rafgeymavatn til áfylling-
ar á rafgeyma.
V* m
ARMULA 7 - SIMI 84450