Tíminn - 25.09.1977, Síða 13
Sunnudagur 25. september 1977
13
Lesefni og myndir Haraldur Blöndal
mér einnig starfið að hafa sér-
staka verkstjóra á stærstu
stöðunum.
Vinnudagurinn er sem hér seg-
ir: Það bregzt aldrei að ég er
kominn á fyrsta vinnustað klukk-
an sjö að morgni og er á stöðug-
um þeytingi fram á kvöld. Ef ég
þarf að fara til Reykjavikur er ég
aldrei lenguren hálfan dagisenn,
fer að morgni og kem á hádegi
eða fer upp úr hádegi og kem um
kvöldmál.
— Hvað er erfiðast i svona
rekstri?
— Ég veit ekki hvað ég á að
segja um það. Ég held að mestu
erfiðleikarnirséu að baki. Það fer
ekki hjá þvi að svona umfangs-
mikill rekstur þarfnast mikils
rekstrarfjár. Ég vil að lokum
geta þess ekki sizt að hjá mér
starfa frábærir smiðir og hafa
margir hverjir verið hjá mér i
fjöldamörg ár.
— Hverju vilt þú spá um fram-
tið Selfoss?
— Selfoss á eftir að stækka
gífurlega á næstu árum. Upp-
bygging hefur að visu verið mikil
og ör en nú fyrst tel ég byggðina
hafa náð þeirri stærð sem skapar
verulegan grundvöll umtals-
verðra framfara.
Menn ættu að ljúka þvl
sem þeir byrja á
— Ég vinn bæði upp á reikning
og eftir útboðum. Það er að minu
mati talsverður galli við útboðs-
verkin ef menn byrja á þeim en
hætta kannsi við f miðjum
kliðum af þvi að i
næsta áfanga býður annar
aðili örlitið lægri upphæð
en sá sem verið hefur með bygg-
inguna. Þetta er að visu eðli út-
boðsverka en getur verið erfittef
upp koma gallar. Þá vfsa menn
gjarna hverá annan og hljótast af
leiðindi. Bezt er að einn og sami
maðurinn byrji verk og ljúki þvi.
Meistarinn ber sem kunnugt er
ábyrgð á allri vinnu i eitt ár.
— Hefur þú hugsað um að
minnka við þig vinnuna?
— Það er ekki hlaupið að þvi.
Auðvitað verðég að draga i land i
fyllingu timans en það er erfitt þó
ekki væri nema vegna skattanna.
Þessi vinna er mér allt. Ég hef
ekki tima til að sinna neinu öðru.
Laxveiði og hestamennska eru sá
munaður sem ég kem hvergi
nærri. Þó eiga sveitin og sveita-
búskapur alltaf nokkurt rúm i
huga minum, enda var ég 7 sum-
ur i sveit, þegar ég var unglingur
og hef ætið haldið tryggð við
sveitina.
Það þarf að einfalda
reikningsbáknið
— Mér er kunnugt um að
meistararnir eru mjög óánægöir
með að þurfa sjálfir að standa i
þvi að hirða af mönnum ýmis
gjöld og greiðslur i hina og þessa
sjóði eða til hins opinbera. Finnst
þér ekki að ætti að sameina þessa
skriffinnsku?
— Vissulega. Þarna hreyfir þú
við brýnu máli. Það er nauðsyn-
teet að einfalda hetta bákn sem
versnar meðhverju ári og eftir
hverja samninga. Alltaf kemur
nýr skattur eða sjóður. Vinnan
við þessa Utreikninga er bæði
mikil og timafrek. Ég er þeirrar
skoðunar að ef hægt væri að fella
niður einhver þessara gjalda
mætti jafnvel hækka kaupið.
Launatengdu gjöldin eru um 37
prósent af öllum Utreikningum.
Ég álit að sérhver hugsandi
maðurhafihug á að breyta þessu
á einhvern hátt. Það má hugsa
sér þá einföldun þannig, að sam-
eina megnið af þessum liðum i
eitt gjald.
Verkalýðsfélögin ættu jafnvel
að sja um þessa skiptingu þvi það
eru þau sem koma á fót öllum
þessum sjóðumog eins og ég sagði
áðan stórversnar þetta eftir
hverja kjarasamninga.
Þess vegna itreka ég það að
einfaldað kerfi og minni
kostnaður við þessa Utreikninga
gæti komið fram i beinni kaup-
hækkun sagði Sigfús að lokum.
Ekki er að efa að margir munu
honum sammála.
Sjúkrahús Suðurlands: Áformað er að húsið verði tekiö f notkun að fullu eigi slðar en 1980.
Alfreð t>orsteinsson, borgarfulltrúi:
VILL AUKA
ÖRYGGI ÍBÚA
BREIÐHOLTS -
HVERFA
— með því að staðsetja
sjúkrabifreið við nýja
heilsugæzlustöð í
Breiðholti
Kás-Reykjavik. — A siðasta fundi
borgarstjórnar flutti Alfreð Þor-
steinsson, borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, tillögu þess efnis
að sjúkrabifreið yrði staðsett I
Breiðhoitshverfi í tengslum við
hina nýju heilsugæzlustöð I
Asparfelli, sem senn verður tekin
I notkun.
1 framsöguræðu sinni með til-
lögunni sagði Alfreð, að eðlilegt
væri að stofnun eins og Slökkvi-
liðið færði þjónustu sína út i nýju
hverfin með sama hætti og önnur
starfsemi gerði, t.d. verzlanir,
skólar, pósthús og heilsugæzlu-
stöðvar. Ef flokka ætti þjónustu
niður eftir mikilvægi þeirra yrði
að flokka sjúkraliðaþjónustu, eins
og gert væri ráð fyrir í tillögunni,
undir frumþjónustu.
Alfreð kvaðst áður hafa flutt til-
lögu um sama efni, en hún hefði
ekki náð fram að ganga. Þá hefði
þvi verið borið við, að auka þyrfti
mannafla Slökkviliðsins.^ Taldi
borgarfulltrúinn slik rök léttvæg,
Vantar yður
bókhaldsþjónustu
HVERNIG GENGUR TOLVUBÓKHALD FYRIR SIG?
aðar í götunarstrimil sem jafnskjótt
er sendur til tölvufyrirtækis okkar í
Svíþjóð til vinnslu.
Að 10 dögum liðnum hafið þér í hendi
fullkomin bókhaldsyfirlit og að sjálf-
sögðu fylgir einnig rekstrar- og efna-
hagsreikningur hverri tölvuvinnslu
sem viðskiptavinir okkar kunna að
meta.
Sýnishorn á tölvuútskriftum fyrir-
iiggjandi.
Biðjið um nánari upplýsingar.
ÞANNIG:
Viðskiptavinir
færa bókhaldsfærslurnar í einfalda
tölvudagbók í samræmi við bókhalds-
lykil. Eftir hvern mánuð eða ársf jórð-
ung er frumrit tölvudagbókar sent til
okkar.
Bókhaldsskrifstofa —
Við framkvæmum afstemmingu dag-
bókar og endurskoðun færslumerk-
ingar. Dagbókarfærslur eru síðan gat-
TnhMMald
Tölvubókhald er
ódýrt, hraðvirkt
og veitir upplýs-
ingar um stöðu
fyrirtækisins
VIÐ ÞJÓNUM
FYRIRTÆKJUM UM LAND
ALLT JM-
Síðumúla 22
Sími 8-32-80
Alfreð Þorsteinsson
þvi að ekki væri nauðsynlegt að
hafa sjúkraliðsvakt i Breiðholts-
hverfinu allan sólarhringinn, t.d.
mætti hafa tviskipta vakt i fyrstu,
og hér væri um skipulagsatriði að
ræða.
1 lok framsöguræðu sinnar
minnti Alfreð Þorsteinsson á sér-
stöðu Breiðholtshverfisins. Það
væri mannflesta ibúahverfi
borgarinnar og langan tima tæki
að senda sjúkrabifreið i hverfið.
Ef hún væri aftur á móti staðsett
þar, myndi taka helmingi styttri
tima að senda slasað fólk eða al-
varlega veikt fólk i sjúkrahús og á
Slysavarðstofuna. Minútur og
sekúndur skiptu miklu máli I þvi
sambandi. Ekki taldi Alfreð Þor-
steinsson heldur óeðlilegt að
Slökkviliðið hefði einnig sjúkra-
bifreið staðsetta i tengslum við
Landakotspitala til að þjóna fólki
i Vestur- og miðbænum.
Páll Gislason (S) tók undir til-
lögu Alfreðs Þorsteinssonar
var henni visað til frekari meö-
ferðar borgarráðs.