Tíminn - 25.09.1977, Side 15
Sunnudagur 25. september 1977
15
'Náttúrufegurb dalanna i ftölsku ölpunum er viðrómuö. Þetta er Val di Rhemes.
Svo er önnur frásögn varð-
manns sem segir hér frá þvi
hvernig steingeit kom i veg fyrir.
að örn hremmdi kiðlinginn henn-
ar.
— Ég sat og virti fyrir mér
fjallið igegnum kiki. Sá ég þá örn
sem flaug rölega nærri fjalls-
hliðinni. Allt i einu flaug hann i
hringi mjög nálægt grýttri fjalls-
hliðinni, og hélt ég að hann ætlaði
að hrem ma þar eitthvert s mádýr.
Þegar ég rýndi betur sá ég litinn
steingeitarkiðling, sem hljöp til
og frá i grýttri hliðinni. Grjótið
þar kom i veg fyrirað örninn næði
til kiðlingsins. Vesalings kiðling-
urinn þaut fram og afturum stór-
grýtið i örvæntingarfullri
hræðslu, en gat ekki lagt á flótta.
Ég fylgdist með hvernig örninn
gerði hverja tilraunina á fætur
annarri til að hremma bráðina,-
en sá svo hvar steingeit kom
aðvifandi. Og þegar örninn kom
auga á hana, sló hann til öflugum
vængjunum og sveif rólega upp
með fjallinu og gaf upp á bátinn
þessa kræsilegu bráð.
öflug gæzla.
Þessi Stóra Paradis (Gran
Paradiso) væri örugglega ekki
svona tilkomumikil, ef ekki kæmi
til öflugt starf varða sem þarna
eru allan ársins hring. Starf þess-
ara manna er raunar forsenda
þess að nútimamönnum gefist
færi á að njóta þar ósþilltrar nátt-
úru.
Lifið uppi i fjöllunum er erfitt
bæði mönnum og dýrum. Frá þvi i
nóvember fram i april vinna
varðmennirnir niðri i dölunum.
Þeir fara til starfa fyrir birtingu
og moka vegiog stiga fram i'niða-
myrkur. Þegar tungl er fullt
verða þeirað standa vaktir allan
sólarhringinn, þvi að þá er timi
veiðiþjófa. Veitingastaðir borga
um 3500 n. kr. fyrir skrokk af
steingeit, svo eftir nokkru er að
sælast fyrir óráðvanda
veiðimenn. Á þessum árstima er
knappt um fæðu fyrir dýrin og
þegar harðast er sækja þau niður
i dalina. Veiðimenn geta.lagt að
velli gemsu rétt fyrir utan svefn-
herbergi varðmannanna. Þeir
hafa hljóðdeyfi á byssum sinum
og skotið verður aðeins daufur
smellur i' næturkyrrðinni.
A sumrin hafast varðmennirnir
við ofar eða i 2000 til 2600 metra
hæð. Þar eru þeir i litlum,
fábrotnum kofum, þar sem eru
tvær kojur, ullarteppi, borð,
stólar, primus og pottar. Vatn
verða þeir að sækja i læki.
Vekjaraklukkan vekur þá fyrir
sólarupprás og þeir halda til
starfa meðan næturhúmið liggur
enn yfir dalbotnunum. Siðan snúa
þeir ekki heim i kofana fyrr en
skyggja tekur, eftir 14, 15 tima
útivist.
Fyrir kemur að vaktmenn hafa
útvarp meðferðis og þá má reyna
nokkuð skemmtilegt. Oft finna
dýriná sér þegaróveðureri nánd
og flykkjast þá að varðkofunum.
Einu sinni sem oftar höfðu dýr-
in pata af óveðri og þyrptust að
kofunum. Vaktmaður i einum
kofanum hafði útvarp i fórum sin-
um, og þegar hann sá dýrin við
kofann, stillti hann útvarpið eins
hátt og hægt er með dynjandi
músikk. Dýrin hættu að nasla, litu
upp og spertu eyrun. Þau nutu
greinilega tónlistarinnar. Þegar
varðmaðurinn dró niður i tækinu,
heyrðist óánægjubaul frá stein-
geitunum, þær gengu burt og
byrjuðu aftur að nasla.
VarðmennirnireruUtbúnir með
byssur, en jafnvel getur peli með
mjólk komið sér vel, t.d. ef þeir
ganga fram hjá hjálparvana
kiðling. Kikirinn er samt nauð-
synlegasta tækið þeirra. Þeir
finna sér góða snös að standa á og
horfa fránu kikisauga yfir næsta
nágrenni.
— Dýrum stolið
1 eina tið var töluvert um að
steingeitum væri stolið úr ölpun-
um, sem skilja að ítaliuog Sviss.
Þessir ólöglegu flutningar og
óskipulegar veiðar höfðu næstum
útrýmt stofninum i' byrjum
nitjándu aldar. Yfirvöld komu þó
iveg fyrir algera útrýmingu með
friðun Gran Paradiso árið 1821.
Árangurinn af friðunaraðgerðum
var til þess að stofninn komst upp
i 3000 dýr. Það voru mörg lönd
sem ekki gátu unnt Italiuþess, að
hafa dýr eins og steingeitur i
landi sinu, þar á meðal Sviss.
Svissnesk yfirvöld fóru þess á leit
við itölsk yfirvöld að fá að taka i
sina vörzlu einhvern hluta þess-
ara sjaldgæfu dýra, en var auð-
vitað synjað.
Mátti með þvi segja að málið
væri útrætt. Nokkrum árum eftir
þessa málaleitan Svisslendinga
urðu menn samt varir við litinn
flokk steingeita iSt. Gallen héraði
i Sviss. Skýringin var þessi:
Svissneskur náttúrufræðingur,
RóbertMander að nafni, gerði út
leiðangra i Alpana til að ná stein-
geitum. Fékk hann tilliðs við sig
fátæka fjallabændur og borgaði
þeim þúsund franka svissneska
fyrir hverja steingeit sem þeir
komust með ofan úr fjöllunum.
Það var dálagleg upphæð i þann
tið. Súupphæð borgaði sig þó eng-
an veginn. Steingeiturnar höfðust
við isnarbröttum fjallshliðum, og
það var engin leið fyrir venjulega
menn að komast nálægt þeim til
að skoða þær. Að nokkrum árum
liðnum voru þær svo til gleymdar
i Sviss.
Framtið Gran Paradiso
Gran Paradiso prýðir flest það,
sem þjóðgarð getur prýtt: og þeir
sem þangað leita finna flestir
hvild á likama og sál. Mikið er þó
undir þvi komið að nærliggjandi
byggðarlög beri hag garðsins fyr-
ir brjósti i' náinni framtið. Þau
hafa áformað byggingu hótela
með 4-5 þús. gistirúm. Þær áætl-
anir sem eru á döfinni eru flestar
gerðar með ferðamenn i huga.
Fjármálamenn hafa auövitað
komið auga á þá möguleika sem
Gran Paradiso býður upp á, og
vilja ólmirfá að reisa þar staði til
að græða á ferðamönnum, en yf-
irvöld kæra sig auðvitað ekkert
um þá. Ef slik starfsemi væri gef-
in frjáls væri ómögulegt að hafa
nokkra yfir sýn yfir hana, allt
starf varðmanna yrði mjög erfitt
og þá yrði kannski öllu erfiðara
að vera steingeit. Þess vegna
gera byggðarlög, sem sjá um
Gran Paradiso, sér ljóst, að það
þarf að gæta vel þessa gimsteina
ítala.
(Þýtt og endursagt S.St.
/"------------\
Víltþú
eignast hlut í banka ?
Samvinnubankinn hefur ákveðið:
• að gefa út fríhlutabréf að upphæð ÍOO
milljónir kr. og tvöfalda á þann hátt hluta-
fjáreign núverandi hluthafa
• að auka hlutafé bankans úr 200 millj. í 500
millj. kr.
• að gefa öllum kost á að gerast hluthafar
Hlutabréfin eru að nafnverði 10 þús., 50 þús.,
100 þús. og 500 þús. krónur. Helmingur
greiðist við áskrift en eftirstöðvarnar innan
árs.
Upplýsingar og áskriftalistar í aðalbankanum,
útibúunum og í kaupfélögunum um land allt.
Kynningarbæklingur sendur þeim, sem þess
óska.
VILT ÞÚ VERA MEÐ!
Samvinnubankinn
Bankastræti 7, Reykjavík sími 20700
Húseigendur
í Hveragerði —
á Selfossi —
i Þorlákshöfn
— á Stokkseyri — á Eyrarbakka og ná-
grenni.
Þéttum sprungur i steyptum veggjum og
þökum með Þan-þéttiefni, áralöng reynsla
i meðferð og þéttingum með Þan-þéttiefni.
Látið þétta húseign yðar fyrir veturinn og
verjið hana fyrir frekari skemmdum.
Leitiðupplýsinga i sima 3863 Þorlákshöfn.
Höfum á söluskrá
mikið úrval vörubifreiða og vinnuvéla.
M.a. Volvo 85, 86 og 88, Scani Vabis 76,
MAN og Benz margar gerðir 6 og 10 hjóla.
Kynnið ykkur verð og skilmála.
Látið skrá hjá okkur ef þér þurfið að selja.
Vagnhöfða 3
Reykjavik
Simi 8-52-65
Vörubila &
vinnuvélasala.