Fréttablaðið - 26.05.2006, Side 64
16
VISSIR ÞÚ
... að stúdentar við Pretoríu-háskóla
í Suður-Afríku bjuggu til lengstu
pylsu í heimi. Hún var 10,5 metra
löng en þeir bættu metið sem var
6,9 metrar. Stúdentarnir bjuggu
til sinn eigin kolaofn og grill til að
geta eldað ferlíkið sem var um 60
sinnum lengri en venjuleg pylsa.
... að dýrasti rjómaís í heimi er
Serendipity Golden Opulent-rjóma-
ísinn. Hann var að finna á matseðli
Serendipity 3 veitingastaðarins í
New York í september 2004. Hann
kostaði þúsund dali eða um 65
þúsund íslenskar krónur.
... að í þessum dýrasta rjómaísrétt
var að finna sykruð blóm þakin
ætri gullþynnu. Grande passion-
kavíar með Armagnac og safa úr
blóðappelsínum og ástaraldinum.
Fimm kúlur af rjómaís með vanillu-
baunum frá Tahítí, þaktar ætri 23
karata gullþynnu. Sykraðir framandi
ávextir, tólf gullhúðaðar möndlur og
súkkulaði.
... að þessi ísréttur var borinn fram í
kristalskál og gullskeið með.
... að dýrasta eggjakaka í heimi heit-
ir Grilljóndollara humarfrittata. Hún
kostar 65 þúsund krónur og hana
er að finna á matseðli Nroma‘s
veitingahússins í New York.
... að innihald þessarar eggjaköku
samanstendur af eggjum, rjóma,
viskíi og humarkæfu; einn heill risa-
humar, 280 g kavíar og ein sneidd
kartafla.
... að dýrasti hamborgari í almennri
sölu kostar um 7.800 krónur og
fæst á Bistro Moderne í New York.
... að dýrasta hanastél í almennri
sölu kostar 34.350 krónur og fæst á
Paris Ritz í Frakklandi.
... að dýrasta vínsflaska sem um er
vitað kostaði 13.125.000 krónur og
var seld hjá Christie‘s í Lundúnum.
... að dýrasta sterka áfengið er
Macallan 60 ára viskí sem seldist
hjá Fornum & Mason í Lundunum á
1.375.000 krónur.
... að dýrasti jarðsveppur í almennri
sölu er 1.08 kílóa hvíttruffla sem
kostar 2.665.000 krónur á Alba á
Ítalíu.
... að dýrasta brúðkaupsterta sem
um getur var seld í Sotheby‘s í New
York. Þetta var sneið af brúð-
kaupstertu hjónanna af Windsor frá
1937 og kostaði hún 1.950.0000
krónur.
... að dýrasta vínglas var selt á Bick-
wick kránni í Beaune í Frakklandi.
Vínið var af gerðinni Beaujolais
Noveau 1993 og kostaði glasið
122.750 krónur.
... að dýrasta súkkulaðistykki sem
um getur kostaði 58.750 krónur.
Þetta var Cadbury‘s súkkulaðistykki
úr eigu Roberts Scott sem hann
hafði með sér í suðurskautsleið-
angri sínum 1901.
ECC Skúlagötu 63 – Sími 511 1001
GASGRILL smíðað úr ryðfríu stáli • Fjórir massívir brennarar úr pottjárni 18,4KW/h • Grindur yfir
brennurum úr áli • Grillteinn og rafmagnsmótor • Ábreiða • Hágæða elektronískur kveikjari • Tvö sett
af grillgrindum annarsvegar úr krómuðu stáli og hinsvegar úr pottjárni (ein heil plata) • Skápur fyrir
gaskútinn og tvær stórar skúffur • 4 hjól 2 með bremsu • Skúffa í fullri stærð undir brennurum sem
tekur við fitu • Skúffa á hliðarborði til að geyma t.d. krydd og drykki • Hitamælir á loki • Grillflötur 78
x 46cm • Utanmál með lokið niðri H:124cm B:159cm D:59cm • Afhent samsett ef óskað er.
Kynningarverð 99.900
Wolfgang Amadeus Mozart (27.
janúar 1756 - 5. desember 1791) var
eitt áhrifamesta tónskáld klassískrar
tónlistar í Evrópu. Hann fæddist í
Salzburg og varð frægur sem undra-
barn á fiðlu og píanó.
Mozart var afkastamikið tónskáld
og samdi um sína stuttu ævi
fjölda verka af nær öllum gerðum.
Það voru óratoríur (trúarleg verk
fyrir einsöngvara, kór og hljóm-
sveit), kantötur (verk fyrir söng
og hljóðfæri), mótettur (trúarleg
verk fyrir kór), sónötur (kaflaskipt
einleiksverk), konserta, sinfóníur,
strengjakvartetta og -kvintetta og
svo auðvitað óperur. Lætur nærri
að verk Mozarts séu um 600 talsins
en sum þessara verka eru þekktari
en önnur.
TOPP 5: MOZART
1. Brúðkaup Fígarós 1786. Skopóp-
era sem var og er með eindæm-
um vinsæl meðal almennings.
2. Don Giovanni 1787. Ópera um
spænska aðalsmanninn Don
Giovanni og ást hans á Donnu
Önnu.
3. Töfraflautan 1791. Ópera um
ævintýralega tilveru manna í
fuglslíki, vondar drottningar og
ást í meinum.
4. Sálumessa í D-moll 1791. Var síð-
asta verkið sem Mozart samdi og
hann náði aldrei að fullklára það.
Nemandi hans að nafni Sussmayr
fullgerði síðar verkið sem nýtur
mikilla vinsælda.
5. Cosi fan tutte 1790. Skopópera
um ástarflækjur og misskilning.