Fréttablaðið - 26.05.2006, Page 66
26. maí 2006 FÖSTUDAGUR34
Stelpur við gefum boltann til ykkar!
Stelpudeildin á SKJÁEINUM frá 5. júní - 9. júlí
Alla virka daga milli kl. 19 og 22.30 verður dagskráin tileinkuð stelpum.
Nú nærðu SKJÁEINUM í gegnum Digital Ísland
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
19
4
6
Oft vill brenna við í fjölmiðlum
landsins að þeir sem kenna sig við
vinstri stefnu hafi hátt um
umhverfismál. En eru umhverfis-
mál einkamál vinstrimanna? Svar-
ið við því hlýtur að vera nei.
Umhverfismál varða alla Íslend-
inga og eru því í eðli sínu þverpól-
itísk. Þau eru þar af leiðandi ekki
einskorðuð við einn flokk eða eina
pólitíska stefnu. Náttúruverndar-
fólk kemur úr öllum flokkum
hvort sem það kýs að kenna sig við
hægri, vinstri, miðju eða bara háð
málefnum hverju sinni. Við sem
byggjum landið eigum það ekki.
Við höfum það einfaldlega að láni
frá framtíðinni og ættum að
umgangast nærumhverfi okkar
jafnt sem náttúruperlur í sam-
ræmi við það. Við eigum aðeins
eina jörð og hún er í okkar umsjá.
Það er nauðsynlegt að umgangast
þennan lífgjafa okkar af umhyggju
og nærgætni. Slíkt munum við fá
margfalt launað því náttúran er
uppspretta og aflgjafi andans og
forsenda nýsköpunar.
Umhverfismál varða okkur öll
og þess vegna eiga umhverfis-
áhrif alltaf að vera höfð að leiðar-
ljósi við stefnumótun og ákvarð-
anatöku í öllum málum. Margir af
frambjóðendum Frjálslyndra og
óháðra í Reykjavík hafa árum
saman verið í fremstu röð þeirra
sem vilja vernda hálendi Íslands
gegn gegndarlausri ásælni orku-
fyrirtækja í náttúruauðlindir
landsins fyrir erlenda stóriðju.
Þess vegna eiga umhverfismálin
ríkulegan þátt í stefnumálum
Frjálslyndra og óháðra í Reykja-
vík: F-listinn vill vernda óspillta
náttúru í borgarlandinu og standa
vörð um ströndina
F-listinn vill vernda grænu
svæðin í borginni því aðgangur að
náttúrutengdum útivistarsvæðum
er lífsgæði. F-listinn vill að vist-
vænar samgöngur verði raunhæf-
ur valkostur fyrir borgarbúa. F-
listinn vill endurvekja herferðina
„Hrein torg, fögur borg“ því ekki
veitir af í ruslaborginni Reykja-
vík. Þar þarf að fjölga ruslatunn-
um og sjá til þess að þær séu los-
aðar. Þá vill F-listinn að flokkað
sorp sé sótt heim. F-listinn vill
ekki að Ísland verði ruslahaugur
fyrir erlenda stóriðju. F-listinn
leggst gegn áformum Orkuveitu
Reykjavíkur um orkuöflun til stór-
iðju á kostnað náttúru landsins. F-
listinn leggst gegn áformum Orku-
veitunnar um frístundabyggð við
Úlfljótsvatn. Þar er einstök nátt-
úra og fuglalíf sem ber að varð-
veita og tryggja aðgengi allra.
Umhverfismál varða alla – allt-
af og vonandi munu kjósendur líta
til verka þeirra flokka sem þeir
hyggjast gefa sitt atkvæði á kjör-
dag. Vonandi velja þeir trúverð-
ugt fólk sem hefur staðið vörðinn
um náttúru okkar ástkæra lands.
Gleymum ekki að framtíð okkar
byggist á afstöðu og aðgerðum í
umhverfismálum, en ekki aðeins
innihaldsrýrum yfirlýsingum við
hátíðleg tækifæri, sem síðan sér
ekki stað í athöfnum þegar á reyn-
ir. Kæru kjósendur ef ykkur er
annt um umhverfið, setjið x við F,
frjálslynda og óháða.
Höfundur skipar 4. sæti á lista
Frjálslyndra og óháðra í Reykja-
vík.
Í grænum sokkum
UMRÆÐAN
KOSNINGAR
ÁSTA ÞORLEIFSDÓTTIR
FRAMBJÓÐANDI
L-listinn, listi fólksins, býður nú
fram til bæjarstjórnar á Akur-
eyri í þriðja sinn. Við bjóðum
fram krafta okkar til að vinna að
þeirri hugsjón að gera bæinn
okkar betri. Þess vegna mótum
við stefnuskrá okkar eftir spurn-
ingunni: „Hvernig viljum við að
Akureyri verði við lok kjörtíma-
bils, árið 2010?“
Umfram allt viljum við efla
bæjarfélagið, þess vegna kjör-
orð okkar: Afl fyrir Akureyri!
Akureyrarbær getur veitt meiri
og betri þjónustu þannig að bæj-
arbúum líði betur og þeir hafi
það betra í lok kjörtímabilsins
árið 2010 heldur en nú. Af þeim
fjölmörgu verkefnum sem ráð-
ast verður í vil ég nefna nokkur
helstu. Við viljum bæta skipulag
innanbæjarsamgangna og efla
almenningssamgöngur með því
að hafa frítt í strætó. Dalsbraut
þarf að leggja í stokk. Bæta verð-
ur aðkomu skemmtiferðaskipa
og við höfnum því að skera mið-
bæinn í sundur með síki! Ávallt
verður að hafa nægar byggingar-
lóðir, jafnt fyrir íbúðir sem
atvinnustarfsemi.
Tryggt aðgengi að daggæslu,
skólum, heilsugæslu og allri
þjónustu, leikskólar verði án
skólagjalda og við viljum ekki
einkavæða grunnskólana. Öll
skólabörn leik- og grunnskóla fái
heitan mat í hádeginu. Fram-
haldsskólarnir og Háskólinn á
Akureyri njóta öflugs stuðnings
okkar og við viljum ljúka skipu-
lagi háskólasvæðis. Orkuháskól-
inn er boðinn velkominn, hann
styrkir stórlega háskólastarf á
Akureyri! Glerársundlaug verð-
ur opin allt árið. Byggjum upp á
KA- og Þórssvæðinu. Við viljum
byggja akstursíþróttaaðstöðu við
Glerá, tryggja fimleikafólki 1.
flokks aðstöðu, við munum vinna
að því að byggja áhorfendasvæði
við íþróttahús Síðuskóla. Lista-
hátíð unga fólksins verði árlegur
viðburður og bæjarstjórn unga
fólksins verður starfandi á
hverju ári til að veita okkur
hinum eldri aðhald. Stóraukum
fjármagn til vímuvarna og for-
varna og aukum niðurgreiðslu
þátttökugjalda í íþrótta og æsku-
lýðsmálum.
Vinnum markvisst áfram að
uppbyggingu hjúkrunarheimila
fyrir þá sem þess þurfa og búum
þeim heimilislegt umhverfi. Ráð-
inn verður sérfræðingur í öldr-
unarlækningum. Við teljum að
málefnum fatlaðra sé betur borg-
ið hjá sveitarfélaginu en ríki og
munum vinna ötullega að því.
Umhverfismál bæjarins þarf að
taka nýjum tökum. Sorpmálin
eru bæjarskömm, þeim verður
komið í það horf að sómi verði af
og opnunartími gámasvæðis
verður endurskoðaður. Glerárgil
og strandlengjan meðfram
bænum verða gerð að hreinu og
vistvænu útivistarsvæði. Við
munum vinna markvisst að
stuðningi við atvinnulíf í bænum
og gera Akureyri fýsilegan kost
fyrir ný fyrirtæki. Um leið vilj-
um við strax hefja vinnu við að
tryggja að þyrlubjörgunarsveit
verði hér staðsett og að flugvöll-
urinn verði lengdur.
Jafnrétti kynjanna á að vera
ófrávíkjanleg regla í stjórnsýslu
Akureyrarbæjar um leið og
stjórnsýslan verði gegnsæ. Við
viljum að bæjarstjórinn verði
ráðinn á faglegum forsendum, en
ekki pólitískum. Hér er aðeins
það helsta talið af markmiðum
okkar í L-listanum. Nú er það
undir ykkur komið Akureyringar
að veita okkur afl til að hrinda
þeim í framkvæmd. Kjósum L-
listann, lista fólksins!
Höfundur skipar 1. sæti L- list-
ans, lista fólksins á Akureyri.
Afl fyrir Akureyri
UMRÆÐAN
KOSNINGAR
ODDUR HELGI HALLDÓRSSON
BÆJARFULLTRÚI Á AKUREYRI
Tryggt aðgengi að daggæslu,
skólum, heilsugæslu og allri
þjónustu, leikskólar verði án
skólagjalda og við viljum ekki
einkavæða grunnskólana. Öll
skólabörn leik- og grunnskóla
fái heitan mat í hádeginu.