Fréttablaðið - 26.05.2006, Qupperneq 76
26. maí 2006 FÖSTUDAGUR44
Í kvöld verður óperan Le Pays
flutt í porti Hafnarhússins við
Tryggvagötu. Ópera þessi er eftir
franska tónskáldið Joseph-Guy
Ropartz og eina ópera heimsbók-
menntanna sem gerist á Íslandi en
er samin af erlendu tónskáldi.
Verkið var samið á árunum 1908-
1910 en þar segir af samskiptum
fransks skútusjómanns við eyja-
skeggja og örlagaríku ástarævin-
týri hans. Skúta strandar í ofviðri
en sjómaðurinn Tual kemst af og
er honum bjargað af bónda í
nágrenninu. Dóttir bóndans hjúkr-
ar sjómanninum til lífs og fella
þau hugi saman með hádramatísk-
um afleiðingum. Enginn prestur
er á svæðinu svo þau sverja eiða
sína við kviksyndi eitt og heita því
að láta kviksyndið gleypa sig verði
tryggðarrof þeirra í millum. Síðar
verður dóttirin verður barnshaf-
andi en sjómaðurinn fær heimþrá
og æðir af stað þegar hann fréttir
að landar hans séu staddir á Seyð-
isfirði en þá verður kviksyndið á
vegi hans og hann ferst á þeim
örlagabletti.
Efnið er byggt á sönnum
atburðum sem áttu sér stað við
strendur Íslands árið 1873 en
óperutextinn er saminn upp úr
smásögunni „L‘Islandaise“ sem
kom út í smásagnasafni rithöfund-
arins Le Goffics árið 1910.
Tónlistin er samin í anda síð-
rómantíska tímabilsins og minnir
um margt á verk Puccinis og
Richards Strauss en hefur verið
lýst sem fagurri og dramatískri.
Sungið er á frönsku en texta óper-
unnar verður varpað á skjá til hag-
ræðis fyrir áhorfendur.
Sinfóníuhljómsveit Íslands
flytur óperuna ásamt þremur af
ástsælustu söngvurum landsins,
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Bergþóri
Pálssyni og Gunnari Guðbjörns-
syni, en þetta er í fyrsta skipti sem
hljómsveitin leikur á þessum sér-
staka tónleikastað. Leikstjóri sýn-
ingarinnar er Stefán Baldursson
en Kurt Kopecky stýrir hljóm-
sveitinni. Um ljósahönnun sér
Björn Bergsteinn Guðmundsson
en útlit og búninga annast Filippía
Elísdóttir. Lára Stefánsdóttir
dansari kemur einnig fram í sýn-
ingunni og bregður sér í ýmis hlut-
verk, þar á meðal í hrafnslíki.
Aðeins tvær sýningar verða á
óperunni, í kvöld kl. 20 og hin síð-
ari á morgun laugardag kl. 16.
- khh
��������������������������������� �����������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ������������������������������
������������ �������������� �� �����������
�������������� �������� ���������������
����������������������������������
������������������
������ �������������
��������� ��� �������� ����������
���������� ��� �������� ������
����������������������������������� ��������
��������������� �������� ������������������
������������� �������� ���������
������������� �������� ���������
Stuðbandalagið
frá Borgarnesi
í kvöld
Spænski leikstjórinn Pedro Almo-
dovar hefur gert stormandi lukku á
kvikmyndahátíðinni í Cannes með
nýjustu mynd sinni Volver. Myndin
þykir líkleg til að hreppa Gullpálm-
ann á sunnudaginn en hún keppir
við 19 aðrar myndir um þau eftir-
sóttu verðlaun. Gagnrýnendur hafa
keppst við að lofa Volver og segja
að með henni leiti Almodovar aftur
til róta sinna og myndin flokkist
með því besta sem hann hefur gert.
Meðaleinkunn myndarinnar í sam-
antekt tímaritsins Screen Daily er
3,4 en meðaleinkunn myndanna sem
kepptu um Gullpálmann í fyrra var
2,16 þannig að Almodovar er vel
yfir því.
Leikstjórinn Alejandro Gonzal-
es Inarritu er að mati gagnrýnenda
líklegastur til að ógna Almodovar
en mynd hans Babel, með Brad Pitt
og Cate Blanchett í aðalhlutverk-
um, hefur einnig fengið prýðilega
dóma. Southland Tales, eftir
Richard Kelly, er almennt talin
mestu vonbrigði hátíðarinnar en
þessi ungi leikstjóri vakti mikla
athygli árið 2001 með Donnie Darko
og þá vöknuðu strax upp spurning-
ar um hvort honum myndi takast að
fylgja henni eftir með sannfærandi
hætti. Southland Tales er því miður
ekki svarið sem fólk vað að vonast
eftir.
Fast Food Nation eftir Richard
Linklater þykir ekki nema miðl-
ungsgóð mynd og þó að Ken Loach
hafi fengið þolanlega dóma fyrir
The Wind That Shakes the Barley
var búist við meiru frá þeim trausta
leikstjóra. Þá þykir finnski leik-
stjórinn Aki Kaurismaki ekki skila
neitt sérstöku dagsverki með Laita-
kaupungin Valot, eða Ljósin í húm-
inu, en hann var forseti dómnefnd-
arinnar í fyrra.
Volver skartar Penelope Cruz í
aðalhlutverki og þykir hún sýna
stórleik og með viðtökunum sem
hún er að fá í Cannes má segja að
Evrópa sé að bjóða hana velkomna
heim en hún hefur á undanförnum
árum starfað í Hollywood með æði
misjöfnum árangri. Almodovar fer
ekki leynt með aðdáun sína á Cruz
en hún lék síðast fyrir hann í All
About My Mother árið 1999. „Ég
vissi alveg að hún myndi valda
þessu hlutverki og það er eins og að
horfa á allt aðra manneskju þegar
maður ber hana saman við Holly-
woodmyndirnar,“ sagði Almodovar
í samtali við Fréttablaðið í Cannes.
Penelope Cruz er ekki eini leik-
arinn sem hefur öðlast heimsfrægð
og vinsældir eftir samstarf sitt við
Almodovar þar sem Antonio Band-
eras á svipaða sögu. Þegar
Almodovar var spurður að því
hvort hann myndi næst sækja
Banderas frá Hollywood sagðist
hann ekki telja það líklegt. „Ég
myndi gjarnan vilja vinna aftur
með hæfileikafólki sem ég hef
unnið með áður og Antonio og Vict-
oria Abril koma strax upp í hugann
en ég held að ég hafi ekki lengur
efni á Antonio.“ thorarinn@frettabladid.is
Almodovar þykir
sigurstranglegur
PENÉLOPE CRUZ Í miklu uppáhaldi hjá
Almodovar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Föðurlandið í Hafnarhúsinu
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
MAÍ
23 24 25 26 27 28 29
Föstudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Kvennakórinn Crescento
kemur fram í Norræna húsinu.
20.00 Hljómsveitirnar Mount
Eerie (áður The Microphones),
Woelv og Micah Blue Smaldone
spila á Kaffi Hljómalind ásamt
söngkonunni Lay Low.
21.00 Þröstur Jóhannesson flytur
tónleikadagskrána Aðra sálma í
Fríkirkjunni í Reykjavík.
■ ■ SKEMMTANIR
00.00 Dúettinn Sessý og Sjonni
leikur á Paddy’s í Reykjanesbæ.
Svöl tónlist úr öllum áttum og
gargandi gleði. Frítt inn.
■ ■ LISTAHÁTÍÐ
11.00 Masterklass í Íslensku
óperunni á vegum sönghópsins I
Fagiolini.
17.00 Sönghópurinn I
Fagiolini flytur tón- og leikverkið
L’Amfiparnaso eftir ítalska tónskáld-
ið Orazio Vecchi í Íslensku óper-
unni. Sögumaður er Hilmir Snær
Guðnason.
19.00 Benedikt Erlingsson flytur
einleik sinn Mr. Skallagrímsson í
Landnámssetrinu í Borgarnesi.
20.00 Franska óperan Le Pays
verður flutt í porti Hafnarhússins
af Sinfóníuhljómsveit Íslands og
þremur einsöngvurum. Leikstjóri
er Stefán Baldursson en Kurt
Kopecky stýrir sveitinni.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
FRANSKA ÓPERAN LE PAYS
EÐA FÖÐURLANDIÐ VERÐUR
FLUTT Á LISTAHÁTÍÐ Í KVÖLD
Bergþór Pálsson og Sigrún
Hjálmtýsdóttir í hlutverkum
Kötu og sjómannsins Tual.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI