Fréttablaðið - 26.05.2006, Síða 90
26. maí 2006 FÖSTUDAGUR58
KB banki er a›alsamstarfsa›ili
Golfsambands Íslands
Fyrsta móti› í KB banka mótarö›inni ver›ur haldi› um helgina
á Gar›avelli á Akranesi.
Komdu og fylgstu me› bestu kylfingum landsins í návígi flar sem
fleir leika listir sínar í har›ri og spennandi keppni.
Milli kl. 11.00 og 14.00 á morgun ver›ur bo›i› upp á skemmti-
dagskrá, flrautir og golfkennslu fyrir yngstu kynsló›ina. Á milli
kl. 14.00 og 18.00 ver›ur bo›i› upp á golfkennslu fyrir byrjendur
og lengra komna.
Áhorfendum b‡›st einnig a› taka flátt í getraun og spá fyrir um
stigameistara KB banka mótara›arinnar. Sigurvegari getraunar-
innar hl‡tur fer› fyrir tvo á KB bankamóti› í Turnberry í Skotlandi
5.-8. október.
Komdu á Gar›avöll um helgina og fylgstu me› spennandi keppni
og taktu flátt í sannkalla›ri fjölskylduhátí›.
KB BANKA MÓTARÖ‹IN 2006
1. deild karla:
ÞRÓTTUR - FJÖLNIR 0-1
0-1 Pétur Björn Markan.
STJARNAN-HK 2-0
1-0 Goran Lukic, 2-0 Björn Másson.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI HK tapaði sínum öðrum
leik í 1. deild karla í gær, nú fyrir
nýliðum Stjörnunnar en í fyrsta
leiknum töpuðu þeir fyrir Leikni.
Lucic kom Stjörnumönnum
yfir með skoti utan vítateigs í
fyrri hálfleik. Björn Másson inn-
siglaði svo sigur heimamanna. Til
að fullkomna daginn fyrir Kópa-
vogsbúum varði Hannes Þ. Hall-
dórsson víti frá þeim í síðari hálf-
leik. Þá töpuðu Þróttarar fyrir
Fjölnismönnum í gær en eftir að
Pétur Georg Markan hafði komið
þeim yfir með glæsilegu skalla-
marki einsettu þeir sér að verjast
og halda stigunum. Það tókst þeim
þrátt fyrir miklar sóknarlotur
Þróttara, þar sem þeir skutu
meðal annars í þverslána. - hþh
Tveir leikir á dagskrá í 1. deild karla í gær:
Annað tap HK gegn nýliðum
ATLI EÐVALDSSON Getur ekki hafa verið
sáttur með sína menn. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
2-1
Kaplakriki, áhorfendur: 1312 Egill M. Markússon (2)
1-0 Sigurvin Ólafsson (40.)
1-1 Bjarni Guðjónsson (víti, 51.)
2-1 Atli Guðnason (75.)
FH ÍA
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 11–8 (5–3)
Varin skot Daði 2 – Páll Gísli 1
Horn 5–5
Aukaspyrnur fengnar 17–20
Rangstöður 3–4
ÍA 4–3–3
Páll Gísli 5
Kári Steinn 6
Heimir Einarsson 5
*Bjarni Guðjónss. 8
Guðjón Heiðar 6
Igor Pesic 4
Pálmi Haraldss. 5
Þórður Guðjónss. 4
(84. Jón Vilhelm -)
Ellert Jón 5
Arnar Gunnlaugss. 6
(37. Andri Júlíuss. 7)
Dean Martin 4
(46. Hafþór Ægir 7)
*Maður leiksins
FH 4–3–3
Daði Lárusson 6
Guðmundur 7
Tommy Nielsen 7
Ármann Smári 6
Freyr Bjarnason 7
Davíð Þór 6
Sigurvin 7
Ásgeir Gunnar 7
(76. Baldur Bett -)
Tryggvi 4
Allan Dyring 3
(66. Atli Guðnason 7)
Atli Viðar 3
(66. Ólafur Páll 5)
FÓTBOLTI „Við töpuðum leiknum
gegn Keflavík ósanngjarnt og
vorum staðráðnir í að ná sigri í
þessum leik og sýna að við eigum
heima í þessari deild. Það var
kominn tími á okkur, við spiluðum
frábærlega og það virkaði vel að
spila upp kantana. Þetta var ein-
faldlega okkar dagur og varnar-
menn þeirra voru þungir og hægir
í leiknum. Við höfum fljóta menn
fram á við og þeir höfðu ekkert í
okkur,“ sagði Viktor Bjarki Arn-
arsson, leikmaður Víkings, eftir
að liðið vann öruggan 4-1 sigur á
Breiðabliki í gær.
Bæði þessi lið komu upp úr 1.
deildinni í fyrra en hlutskipti
þeirra fyrir leikinn var misjafnt.
Blikar höfðu unnið báða leiki sína
en Víkingar voru stigalausir á
botninum. Það voru þó Víkingar
sem höfðu nær öll völd á vellinum
frá upphafi til enda í gær. Viktor
Bjarki braut ísinn með marki úr
vítaspyrnu sem var réttilega
dæmd þegar Guðmann Þórisson,
ungur varnarmaður Blika, braut á
Davíð Þór Rúnarssyni.
Eftir rúman hálftíma kom
annað mark frá Víkingum en það
skoraði Hörður Bjarnason eftir
hreint magnaðan undirbúning
Viktors Bjarka sem dansaði fram-
hjá varnarmönnum Blika og
renndi boltanum síðan á Hörð sem
átti ekki í vandræðum með að
skora. Heimamenn voru mun
sprækari og léku sér oft á tíðum
að gestunum. Marel Baldvinsson
fékk úr litlu að moða einn í fremstu
víglínu.
Víkingar bættu við tveimur
mörkum í seinni hálfleik; fyrst
slapp Davíð Þór einn í gegn og
kláraði vel og hann lagði síðan upp
fjórða markið með fyrirgjöf sem
Viktor Bjarki skallaði inn og kór-
ónaði frábæran leik sinn. Marel
náði að minnka muninn með ágætu
marki eftir sendingu Nenad Zivan-
ovic en markið kom of seint.
„Vonandi höldum við þessu
áfram í sumar. Nú erum við von-
andi komnir á sigurbraut,“ sagði
Viktor en Bjarni Jóhannsson,
þjálfari Breiðabliks var skiljan-
lega ekki eins hress.
„Við vorum gjörsamlega skotn-
ir í kaf. Það vantaði alla karl-
mennsku í okkur, seinni hálfleik-
urinn var þó töluvert skárri en sá
fyrri. Við töpuðum á eigin aula-
hætti og þegar menn eru ekki til-
búnir í að berjast og sýna dugnað
þá er eitthvað að hugarfarinu.
Menn voru að láta sóla sig trekk í
trekk og þá er greinilegt að þeir
eru ekki tilbúnir í þetta,“ sagði
Bjarni.
„Völlurinn var skelfilegur og
erfitt að sýna góðan fótbolta á
honum en Víkingar unnu barátt-
una og áttu þennan sigur algjör-
lega skilinn. Nú ætla ég bara að ná
andanum áður en ég fer að vinna í
því að reyna að laga hugarfar leik-
manna fyrir næsta leik,“ sagði
Bjarni. - egm
Öruggur sigur Víkings á Breiðabliki í nýliðaslag Landsbankadeildarinnar:
Víkingar skutu Blika í kaf
VIKTOR BJARKI ARNARSSON Átti frábæran
leik gegn Breiðablik í gær. Skoraði tvö mark
og lagði upp eitt á snilldarlegan hátt og
lék sér að varnarmönnum Blika hvað eftir
annað. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FÓTBOLTI Miklar breytingar voru
gerðar á Skagaliðinu frá því í
tapleiknum gegn KR en aðeins ein
breyting var gerð á FH-liðinu sem
lagði Val. Bar þar hæst innkoma
Þórðar Guðjónssonar sem var
kominn inn á miðjuna hjá ÍA en
hann bar einnig fyrirliðabandið
hjá þeim gulkæddu. Hans fyrsti
leikur fyrir ÍA í sumar.
FH-ingar voru sterkari úti á
vellinum og stýrðu umferðinni en
háar sendingar fram völlinn skil-
uðu litlu. ÍA reyndi að sama skapi
að sækja hratt en var mistækt í
aðgerðum. Arnar Gunnlaugsson
lauk keppni fyrir hálfleik meiddur
sem var synd því honum óx ásmeg-
in eftir því sem leið á leikinn og
hann var þar að auki óvenju dug-
legur að hreyfa sig. Skagamenn
náðu oft á tíðum skemmtilegum
skyndisóknum en voru sem fyrr
miklar klaufar. FH hélt áfram að
stýra umferðinni en gekk bölvan-
lega að skapa sér færi. Fyrsta
markið kom því ekki eftir að FH
hafði opnað vörnina heldur með
glæsilegu skoti beint úr auka-
spyrnu af um 30 metra færi.
Glæsilegt mark hjá Sigurvin sem
var að leika vel og duglegur að
dreifa boltanum út á vængina.
Skagamenn tóku Dean Martin
af velli í leikhléi og inn á kom Haf-
þór Ægir Vilhjálmsson. Það reynd-
ist góð skipting því Hafþór fiskaði
víti eftir rúmar sex mínútur þegar
Ármann Smári braut á honum.
Bjarni sendi Daða í rangt horn og
skoraði örugglega.
Leikurinn dó nánast í kjölfarið
og ekkert hafði gerst í háa herrans
tíð þegar varamaðurinn Atli
Guðnason potaði boltanum inn
fyrir línu Skagamarksins eftir
hornspyrnu. Atli væntanlega
búinn að tryggja sér sæti í byrjun-
arliðinu því hinn danski Allan Dyr-
ing er ekkert búinn að geta í fyrstu
þrem leikjum sumarsins.
Þessi meðfæddi markaskorari,
að eigin sögn, hefur ekki komið sér
í færi allt mótið og er langt frá því
að vera líklegur til afreka. Það
verður ekki tekið af honum að hann
er duglegur að hlaupa en Martha
Ernstdóttir getur líka hlaupið mikið
og lengi en það þýðir ekki endilega
að hún eigi skilið sæti í byrjunarliði
Íslandsmeistaranna.
Skagamenn náðu ekki að skapa
sér mikið það sem eftir lifði leiks
nema dauðafæri sem Andri
Júlíusson fékk í uppbótartíma en
honum tókst á einhvern óskiljan-
legan hátt að skalla yfir markið.
Þriðji sigur FH í röð því staðreynd
og sannkallaður meistarabragur á
liðinu enda klárar félagið alla leiki
með sigri, sama hvernig það spilar.
Það er engin leið að sjá nokkurt lið
stöðva FH eins og liðið byrjar
þetta mót. ÍA er aftur á móti komið
með þrjú töp í röð og þar þurfa
menn að skoða sín mál enda hafa
verið brestir í vörninni og sóknin
langt frá því að vera sannfærandi.
Við þennan leik verður ekki
skilið án þess að minnast á ömur-
lega frammistöðu Egils Más dóm-
ara. Hann var vægt til orða tekið
lélegur í þessum leik og margir
dóma hans algjörlega óskiljan-
legir.
henry@frettabladid.is
Íslandsmeistararnir eru óstöðvandi
Íslandsmeistarar FH byrja Íslandsmótið með ótrúlegum látum en í gær vann FH sinn þriðja sigur í röð,
gegn helstu keppinautunum, þegar ÍA kom í heimsókn í Kaplakrika. 2-1 urðu lokatölurnar í fjörugum leik
þar sem ungur leikmaður, Atli Guðnason, skoraði sigurmarkið eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
SLAKUR Allan Dyring náði sér ekki á strik í leiknum, frekar en aðrir sóknarmenn FH.
Íslandsmeistararnir búa yfir þeim kosti að geta spilað illa en unnið samt.FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
STAÐAN Í LANDSBANKADEILDINNI
1. FH 3 3 0 0 7-1 9
2. FYLKIR 3 2 0 1 4-2 6
3. BREIÐABLIK 3 2 0 1 7-6 6
4. KR 3 2 0 1 3-4 6
5. GRINDAVÍK 3 1 1 1 5-5 4
6. KEFLAVÍK 3 1 1 1 3-3 4
7. VALUR 3 1 0 2 4-4 3
8. ÍBV 3 1 0 2 3-8 3
9. VÍKINGUR 3 1 0 2 5-5 3
10. ÍA 3 0 0 3 4-7 0
FÓTBOLTI „Þetta er gjörsamlega
óþolandi. Við töluðum um fyrir
leikinn að FH hefði bara skorað
úr föstum leikatriðum og svo
koma bæði mörk þeirra úr föstum
leikatriðum,“ sagði Skagamaður-
inn Bjarni Guðjónsson sem átti
stórleik í Skagavörninni. „Í
úrslitamarkinu voru tveir menn
ódekkaðir á fjærstöng og það
gengur ekki. Það er slæmt að vera
ekki komnir með nein stig og núna
verðum við rífa okkur upp.“
Heimir Guðjónsson, aðstoðar-
þjálfari FH, var ívið hressari en
Bjarni í leikslok. „Mér fannst við
fá betri færi en þeir í þessum
leik en Bjarni bjargaði tvisvar á
marklínu fyrir þá. Við hefðum
reyndar getað spilað betur og
fengið meira út úr vængjunum
en það eru stigin sem telja. Það
er sterkt hvað við nýtum föstu
leikatriðin vel því það drepur
niður anda andstæðinganna og
það er öflugt að eiga sterka
spyrnumenn eins og Sigurvin og
Tryggva. Eins gott að eiga sterka
skallamenn eins Ármann
Smára.“ - egm
Viðbrögð þjálfara eftir leikinn:
Gjörsamlega óþolandi