Tíminn - 16.10.1977, Page 1
/*"■ .......................
GISDNG
MORGUNVERÐUR
SÍMI 288 66
-/
i
f Fyrir ^
vörubíia~
Sturfu-
grindur
Siurfu
dæiur
Sturtu-
drif
Borgarstarfsmenn velja eða hafna í annað sinn:
SBílð
Allsherj aratkvæðagreiðsla
um nýju kjarasamningana
AUsherjar atkvæöagreiösla
um kjarasamninga þá, sem full-
trúar borgarstarfsmanna og
borgaryfirvöldin undirrituðu á
fimmtudaginn, hófst klukkan
tvö-i gær, og stendur hún i allan
dag. Likur eru á afarmikilli
þátttöku, og taliö er, aö úrslitin
geti verið tvisýn.
Þeir, sem meðmæltir eru
þeirri gerð samninganna, er
samninganefnd starfsfólksins
varð á eitt sátt að ganga að,
leggja kapp á, að verkfallinu
ljúki sem fyrst, en hinir, sem
andvigir eru samningunum
sækja sitt ekki siður fast. Er
harkalega barizt um hvert at-
kvæði þess fólks, sem tvibent er
i afstöðu eða hefur ekki myndað
sér ákveðna skoðun um kosti og
galla þeirra samninnga, sem i
boði eru.
Hér kemur einnig til, að for-
ráðamenn Bandalags starfs-
Þessi mynd er úr Miðbæjar-
skólanum, þar sem borgar-
starfsmenn ganga til at-
kvæða um samningana nú
um helgina. Laust fyrir há-
degi i gær höföu 135 kosiö af
2194 sem á kjörskrá eru, og
er þaö betri kjörsókn á sama
tima samanborið viö þátt-
tökuna i kosningunum um
sáttatiUöguna fyrir hálfum
mánuöi. í dag veröur kjör-
staður opinn frá kl. 10 til 19.
manna rikis og bæja lita það
mjög óhýru auga, ef svo fjöl-
mennt félag sem Starfsmanna-
félag Reykjavikurborgar er,
gerir sérsamninga.þar sem þeir
telja aðstöðu sina veikjast við
það. Af þessum ástæðum mun af
þeirra hálfu lagt kapp á, að
samningarnir nái ekki fram að
ganga.
Allt stuðlar þetta að þvi, að
kapp og smölun við atkvæða-
greiðsluna ber einna helzt svip
af tvisýnustu alþingiskosning-
um, þegar allir flokkar berjast
um á hæl og hnakka.
Atkvæðagreiðslunni mun
ljúka i kvöld, en talningu verður
vart lokið fyrr en einhvern tima
á aðfaranótt mánudags, svo aö
þorri fólks fær ekki vitneskju
um, hvort verkfalli borgar-
starfsfólks er lokið eða ekki fyrr
en á morgun.
Ung hjón
hefja
búskap
— bls. 10-11-12
Fögur er
Hlíðin
Rætt við Oddgeir
í Tungu
— bls. 20-21
Fyrsta mál
Poirots
— bls. 26-27
170 ástarsögur
og engin
kona fífluð
— bls. 14-15
SPRENGIS ANDS VEGUR
FYRIR 260 MILLJ.
— segir Halldór
frá Rauðalæk
JH — Reykjavik — Ég er sann-
færður um, aöá stuttum tima og
meö viðráðanlegum kostnaöi
má gera bezta veg norður
Sprengisand og niöur i Báröar-
dal, sagöi Halldór Eyjólfsson
frá Rauðalæk, sem er maður
gagnkunnugur á öræfunum á
miöháiendinu. Ég get svo aö
segja lagt sannanirnar á borðiö.
Halldór vitnaði til þess, að nýi
vegurinn frá Galtalæk að Búr-
fellsstöðinni hafi verið gerður á
fimm vikum og kostaði, sem
nam 1,3 milljónum króna á
hvern lengdarkilómetra.
— Þetta er upphleyptur veg-
ur, sex metra breiður, og það er
mjög svipað land til vegagerðar
langleiðina yfir Sprengisand
niður i Bárðardal. Efnið i veg-
inn er alls staðar við vegarstæð-
ið, og um jafnlendi að fara yfir-
leitt. Það eru um tvö hundruð
kilómetrar fra Haldi norður aö
Mýri i Bárðardal, og ef takast
mætti aö gera upphleyptan veg
norður yfir, jafnódýran og veg-
inn milli Galtalækjar og Búr-
fellsstöðvarinnar, kostaði hann
ekki nema um 260 milljónir
króna með þvi verðlagi, sem nú
er, sagði Halldór.
Eitthvað þyrfti að gera af
brúm, sem hleypti kostnaðinum
upp, þó er nú komin brú á Mjóa-
dalsá hjá Mýri i Bárðardal, en
samt sem áður held ég, að unnt
væriað gera upphleyptan akveg ekki þarf að vaxa mönnum svo
norður yfir með tilkostnaði, sem mjög i augum.
Gömul varöa á Sprengisandi — vegvisir þeim, sem þessa leiö
fóru á hestum. — Ljósmynd: Páll Jónsson.