Tíminn - 16.10.1977, Blaðsíða 8
Sunnudagur 16. október 1977.
Stafholt um 1913
Ingólfur Davíðsson: Byarart oar búið ) í ganí 193 La daara
€/ DO O O o
Skaröshamrar I Noröurárdal
Stafholt 1 Borgarfirði var frá
fyrstu tiö höfuöból, kirkjustaöur
meö hjáleigum og mörgum
sjálfstæöum jöröum ítökum
miklum og gagnsömum. Atti
Stafholt alla tunguna fyrir neö-
an Arnarholts og Hamraenda-
land. Oft sátu höfuðklerkar i
Stafholti. Timburkirkja er þar
nær áttræð aö aldri og þötti all-
mikil á sinum tima. A þá leiö
segir i árbók Ferðafélags Is-
lands áriö 1953. Myndin sýnir
prestsetrið, og kirkjuna árið
1953, um það bil er éra Gisli
Einarsson flutti þangað frá
Hvammi i Norðurárdal, þegar
Stafholts- og Hvammspresta-
köll voru sameinuð.
Bregöum okkur i Noröurárdal
og lltum heim að Skaröshömr-
um. Gamla húsiö munhafaveriö
byggt kringum 1910. Þaö stóö til
1936, er nýtt steinhús var reist á
staönum. útihúsin viröast
gamalleg. Myndin er tekin um
1930, Baula i baksýn. A Skarðs-
hömrum var hálfkirkja lengi
fram eftir öldum. Þóttu Skarðs-
hamrarog nágrannajörðin Glit-
staöir beztar bújaröir í dalnum.
Fram um 1700 var skógur á
Glitstöðum og Skaröshömrum,
en er horfinn þaöan fyrir löngu.
Barnaskólahús Norðdælinga
var byggt rétt fyrir 1930. Þetta
var heimangönguskóli og rúm-
aði 12-15 börn. Húsið sem stend-
ur nálægt Dalsmynni var jafn-
framt samkomuhús Norðdæl-
inga. Þaö var notaö til skóla-
halds um 20 ár. Nú er þaö sam-
komuhús Norðdælinga.
Dalsmynni er upp frá vega-
skilum Norðurlandsbrautar og
Vesturlandsvegar — og er land-
námsjörð. Bjó þar Rauða-
Björn,er haföiútbúá Bjamadal
ogannað niöuri héraöi, þar sem
nú eru beitarhús frá Eskiholti.
Myndirnar af Stafholti, Skarös-
hömrum og skólahúsinu hefur
Ragnár Ölafsson lánaö þættin-
um, og látið fylgja skýringar.
Fjórða myndin er af Svigna-
skarði og er birt í bókinni
„Bændaförin”, ferðasaga norð-
lenzkra bænda um Suöurland
sumariö 1910. Svignaskarð er sá
bær er hæst ber á í Borgarfirði
og er mikil jörö. Þar var hálf-
kirkja og oft höfðingjasetur.
Þar sátu sýslumenn um fyrri
aldamót. Aður þótti jöröin erfiö
til hevskapar og fénaöur ekki
ganga þar vel fram. Svo reynd-
ist þaö Snorra Sturlusyni, er á
búi hans þar féll stórt hundrað
nauta einn hallærisvetur. Marg-
ir gistu i Svignaskarði og um
skeið var rekin þar greiöasala.
Nú er þarna sumarbústaðaland
Iöju o.fl. auk búskapar.
Barnaskólinn I Noröurárdal
A Svignaskaröi áriö 1910