Tíminn - 16.10.1977, Blaðsíða 19

Tíminn - 16.10.1977, Blaðsíða 19
■liJ-llillltl'. Sunnudagur 16. október 1977. 19 tJtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Eitstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda- stjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300. Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð í lausasölu kr. 80.00. Áskriftargjald kr. 1.500 á mánuði. Blaðaprent h.f. Haldið í horfi 1 þeim umræðum sem i landinu hafa orðið um óðaverðbólguvandann ber of oft á þeim misskiln- ingi að unnt sé i einu vetfangi að koma þvi höggi á verðbólgudrauginn að hann verði þegar yfirrunn- inn. Það er ástæða til að vara við þesum misskiln- ingi vegna þess að slikar aðfarir myndu óhjá- kvæmilega leiða til annarra efnahagslegra og fé- lagslegra vandamála. Stefna núverandi rikisstjórnar hefur miðað að þvi að ná varanlegum árangri i þessari glimu með stöðugum og jöfnum aðgerðum. Rikisstjórnin hef- ur ekki stefnt að róttækum skammtimaaðgerðum sem sýna myndu tafarlitinn greinilegan árangur enda hefði slikt komið illa niður á atvinnuörygginu i landinu. Það er einnig rétt, að rikisstjórnin hefur lagt á það áherzlu að eiga sem bezt samráð við aðra samfélagsaðila um framvinduna i þessum málum. Það er þannig bersýnilegt að launþegasamtökin munu hafa meiri áhrif á þróunina nú fram undan en ella hefði orðið, vegna þess hve rikisstjórnin hefur gengið langt til samkomulags við þau. Enda þótt óþolinmæði gæti viða meðal stuðn- ingsmanna stjórnarflokkanna vegna óðaverðbólg- unnar mega þeir þó ekki gleyma þvi að vörður hef- ur verið staðinn um atvinnuuppbygginguna úti um land og um atvinnuöryggi i landinu. Þegar litið er til nágrannalandanna verður ljóst, að hér hefur út af fyrir sig verulegur árangur náðst. Það fjárlagafrumvarp sem nú hefur verið lagt fram ber það með sér að haldið er i horfi. Um er að ræða verulegar tilfærslur frá verklegum fram- kvæmdum almennt til umbóta i samgöngumálum. En þegar litið er yfir kjörtimabilið i heild kemur i ljós að stefnt er að sem næst 13% samdrætti rikis- umsvifa i þjóðfélaginu. Á fjórum árum munu rikisumsvifin þannig minnka úr 31,4% afþjóðar framleiðslu niður i 27,3% og á sama tima hefur staða rikissjóðs batnað. Minnkun rikisumsvifa er ekki takmark i sjálfu sér i augum félagshyggjumanna, en hennar er augljós þörf i óðaverðbólgu. Á sama hátt verður vöxtur rikisumsvifa að helgast af félagslegum og menningarlegum markmiðum eða atvinnu- uppbyggingu. Þessi sjónarmið voru forsenda aðgerða rikisstjórnar Ólafs Jóhannessonar, en þróun ytri skilyrða og kjaraákvarðanir innan lands röskuðu þeim grundvelli. Enn sem fyrr eru erlendar skuldir verulegt áhyggjuefni. í fyrra var greiðslubyrðin orðin sem næst 14% af útflutningstekjum, en hafði þó lækkað nokkuð frá árinu áður. Hitt verða menn að hafa hugfast að innstreymi erlends fjármagns inn i hagkerfið er hreinn verðbólguvaldur nema það ali þegar i stað af sér verðmætasköpun eða kostnaðarlækkanir. í þessu efni hefur okkur ekki miðað sem skyldi, vegna þess að um er að ræða fjárfestingu sem ekki verður arðbær fyrr en siðar. Það virðist alveg greinilegt að hægar verður að fara i slika fjár- festingu en verið hefur. Nú hefst sjálfsagt ófagur söngur i búðum hægri- sinnaðra öfgamanna vegna aukinna framlaga til landbyggðarinnar i samgöngumálum. Samgöngur eru lifæðar nútimaþjóðfélags með dreifðri byggð. Þeir sem þann söng syngja þekkja ekki landið sem þeir búa i og aðstæður þess. Þeir virðast aðeins þekkja malbikið i höf uðstaðnum. ERLENT YFIRLIT Carter f ól Patriciu erfitt verkefni Hún á að móta stefnuna í húsnæðismálimum JIMMY CARTER átti sigur sinn í forsetakosningunum öðru fremur þvi að þakka, að hann hlaut yfirgnæfandi fylgi blökkumanna. Þess vegna var þvi spáð, að hann myndi launa blökkumönnum þetta mynd- arlega, þegar hann skipaði stjórn sina. Ýmsir leiðtogar blökkumanna segja, að hann hafi brugðizt vonum þeirra i þessum efnum. Þeir viður- kenna hins vegar, að honum hafi að likindum tekizt vel, þegar hann skipaði Patriciu Roberts Harris i embætti hús- næðismálaráðherra, en undir það heyra ekkiaðeins húsnæð- ismál, h ldur endurskipulagn- ing og þróunarmálefni stör- borga, sem skipta blökku- menn miklu, þar sem þeir búa langmest i hinum lélegri borg- arhverfum. Enn er svo skammt siðan Patricia Harris tók við ráðherraembættinu, að of snemmt er aö dæma um, hvernig henni tekst að leysa það af höndum.Sitthvað, sem hún hefur þegar gert, þykir benda til, að hún muni reynast framtakssöm og að ekki skorti hana góðan vilja. Til þess aö koma áformum sinum frafn, verður hún aö leita á náöir þingsins og þar getur henni reynzt við ramman reip að draga. Sú er a.m.k. reynsla Carters sjálfs um þessar mundir, einkum þó i sambandi við orkumálin. PATRICIA Roberts Harris er 53 ára að aldri, fædd i Chi- cago þar sem faðir hennar starfaði sem járnbrautar- þjónn. Hann mun hafa verið að einhverju leyti af hvltum kynstofni, en móðir hennar ekki. Patricia setti sér ung þaö markmið að ganga menntaveginn og gerast hvorki skrifstofustúlka eða kennari, en það voru þau störf, sem konur af blökkum ættum sem gengu skólaveginn, áttu þá helzt völ á. Að mennta- skólanámiloknu hófhún nám i hagfræði við Howards Uni- versity i Washington og lauk þar prófi meö góðum vitnis- buröi 1945. Næstu árin starfaði hún á vegum ýmissa félags- samtaka, m.a. á vegum YWCA. Hún vildi helzt ekki takast fast starf á hendur, þvi að hugur hennar stefndi til frekara náms. Það varð þó ekki af þvi, að hún hæfi fram- haldsnám fyrr en eftir að hún hafði gifzt blökkum lögfræð- ingi, William Beasley Harris, sem var tiu árum eldri en hún. Hann var þá kennari i lögum við Howard University en lagði jafnframt stund á mál- flutning. Hann hvatti hana til að halda áfram námi og að ráðum hans hóf hún laganám við lagaháskolann, sem ber nafn Georges Washington. Því námi lauk hún með góöum vitnisburði 1960. Hún hafði þá þegar látið mannréttindamál ýmiss konar mikið til sln taka og stóð framarlega i samtök- um, sem einkum létu sig þau mál varða. Það bendir til þess, að hún hafi unnið sér gott álit á þessu sviði, að á flokksþingi demókrata 1964 var hún fengin til að halda eina aðalræðuna til stuðnings framboði John- sons forseta. Johnson launaði henni lika vel, þvi að hann skipaði hana sendiherra Bandarikjanna I Luxembourg 1965. Þar dvaldist hún i tvö ár en maður hennar fylgdist meö henni sem sérstakur ráðu- nautur á vegum utanrikis- ráðuneytisins. Þótt sendi- herrastarfið þætti fara henni vel úr hendi, fannst henni það of aðgerðalitið. Jafnframt fóru forsetakosningar i hönd og óvist hvort demókratar héldu velli i þeim vegna Viet- namsstriðsins. EFTIR HEIMKOMUNA frá Luxembourg hóf Patricia lagakennslu við Howard Uni- versity og varð skömmu siðar rektor lagadeildarinnar. Kona hafði ekki gegnt slikri virðingarstöðuáður.Þetta var áþeim tima, þegar stúdentaó- eiröir voru algengar i Banda- rikjunum, m.a. vegna mót- mæla gegn striöinui Vietnam. Patricia lenti i talsverðum deilum við stúdenta og kröfð- ust þeir þess um skeið, að henni yrði vikið úr rektorsem- bættinu. Hún lét þó ekki hlut sinn. Hins vegar haföi hún meiri áhuga á ýmsu öðru en rektorsstarfinu og sagði hún þvi lausu og hóf að starfa við þekkta lögfræðiskrifstofu i Washington. Þar vann hún sér bráttgottálit, einsog ráða má af þvi, að hún hlaut sæti i stjórnum ýmissa stórfyrir- tækja, t.d. Chase Manhattan Bank, IBM og Scott Paper Co. Þegar Carter skipaði hana húsnæöismálaráöherra, hafði hún ekki haft veruleg afskipti af þeim málum, og var þaö nokkuð gagnrýnt. Carter mun hér hafa fylgt hinni fornu ráð- leggingu, að nýir vendir sópa bezt. Þau Harrishjónin eru barn- laus. William er nú dómari við sjódóminn i Washington og hefur ærið að starfa, eins og kona hans. Helzta tómstunda- iðja þeirra er að hjálpast að við eldhússtörfin. «£*£ Ji Patricia Harris og maður hennar Harrishjónin við eldhússtörfin Þ.Þ. JS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.