Tíminn - 16.10.1977, Blaðsíða 4

Tíminn - 16.10.1977, Blaðsíða 4
4 Sunnudagur 16. október 1977. Laugarvatn — stærsta byggingin á myndinni er menntaskólinn, en hægramegin viö hann er iþróttaskólinn. Hafsteinn Þorvaldsson, formaður IJMFI: tafar i málefnum 1K1 aö Laugarvatni, er þetta fyrst og fremst: 1. Fjölga þarf fastráðnum kenn- urum skólans i 5 og bæta launakjör þeirra. Byggja þarf án tafar þrjár kennaraibúöir i raöhúsum, sem teikningar eru þegar til af. 2. Byggja þarf, eöa fá til afnota t.d. hjá Héraðsskólanum rýmra og hentugra kennslu- rými (stofur). 3. Og er þaö mál manna i dag ef Laugarvatn sem skólasetur á að valda sinni reisn. Byggja þarf á sem skemmstum tima vandaöa iþróttamiðstöð, likt og gert var i Vestmanna- eyjum á einu ári og löngu er landsfrægt oröið. tþróttamiðstöð þessari þyrftu aö tilheyra: stórt og fullkomið iþróttahús með áhorfenda- svæðum, og fullkominni keppnislaug ásamt til- heyrandi abstöðu. öll þessi atriði, og raunar mörg fleiri hafa um árabil veriö á óskalista skólastjóra, kennara og skólanefndar, en litinn fram- gang hlotið hjá stjórnvöldum. Fyrir þvi heiti ég nú á islenzka iþróttahreyfingu undir forustu ISt og UMFI að skera upp herör fyrir bættri aðstöðu tþróttakennaraskóla Islands að Laugarvatni. Samþykktir árs- þinga okkar, svo og einstakra sérsambanda innan tSI, hafa litinn sem engan hljómgrunn íþróttakennaraskóli íslands að Laugarvatni Þegar þetta er ritað eru nemendur tþróttakennaraskóla tslands að Laugarvatni aö koma þangað að nýju eftir sumar- langa vinnuskyldu við leið- beinendastörf viðs vegar um land. Framundan er seinni veturinn iskólanum, lokaáfang- inn, og lokapróf að vori. Astæðan til þess, aö ég tek mér nú penna i hönd og skrifa um málefni og aðstöðu (eða öllu heldur aöstöðuleysi) skólans, er sú, aö þessi æðsta mennta- stofnun þjóðarinnar á sviði iþróttamennta býr við svo frumstæða og ófullkomna aðstöðu á mörgum sviöum aö undrun sætir. iþróttahúsið og sundlaugin Égefastum, að margir þeirra nemenda sem nú þreyta nám við 1K1 að Laugarvatni hafi i sumar leiðbeint eða þjálfaö við mikið lakari aðstæður en þeir koma nú til i þessum æðri skóla islenzkra iþróttafræöa, og segir það sina sögu. 1 þessu sambandi á ég fyrst og fremst við iþrótta- húsið, og þó sér i lagi sund- laugina, sem er bæði litil og á stundum hreinlega ónothæf vegna elli og ofálags. Annað kennslurými úrelt og gamalt Kennslurými til bóklegra fræöa er litið og gamalt og úr sér gengið, eina aðstaðan til þess að ræða viö nemendur i einum hópi, sem þó eru aðeins um 30 að tölu, er i setustofu heimavistarhússins, eða hrein- lega að leita á náöir nærliggj- andi skóla. Kennarar of fáir og illa að þeim búið A siðustu árum hefur skól- anum gengið æ verr að fá til starfa sérmenntaða kennara, sem örugglega á sinar orsakir. Að mati undirritaðs eru kenn- arar skólans of fáir, illa launaðir, kennsluaðstaða fyrir neðan allar hellur og húsnæðis- aöstaða þeim til handa ekki til, þegar frá eru taldar tvær litlar einstaklingsibúðir i hinu nýlega heimavistarhúsi skólans. Þokkalegt heima- vistarhús og góð umgengni Iþróttavellirnir við skólann eru auðvitað ekkert til þess aö Aðstöðuleysi skólans komið á alvarlegt stig hrópa húrra fyrir i dag, þegar litiö er til aðstöðu næstu nágranna okkar á hinum Norðurlöndunum, að ég tali nú ekki um ef við berum okkur saman við aðra skóla hjá þeim, þótt ekki sé tekinn samanburður við iþrótta- eða iþróttakennara- skóla. A okkar mælikvaröa eru þeir sem sagt þokkalegir, og umgengni og hirðusemi öll nú á haustdögum til fyrirmyndar, sama má segja um allt umhverfi heimavistarhússins og skólastjórabústað. Heima- vistarhúsið er það eina sem raunverulega hefur verið byggt fyrir skólann, það er að visu litið, en ágætlega útfært að mörgu leyti og hver einasta vistarvera nýtt til hins ýtrasta, þegar frá er talin mötuneytis- aðstaða eða eldhús, sem nemendur hafa ekki fengið i gang ennþá þrátt fyrir óskir þar um. Heimavistarhúsið er að hluta til byggt fyrir fé frá tþróttasambandi tslands, sem á sinum tima lagöi þetta fé fram til þess að reyna aö bæta aðstöðu skólans, svo hann mætti frekar ná ab þjóna sinu ætlunar- verki meðal annars i þágu iþróttahreyfingarinnar. Þar hefur ISt svo lika rekið sumar- iþróttamiðstöð um árabil meö þátttöku iþróttafólks viðs vegar að af landinu. Nýja tækni er ekki hægt að nýta vegna húsnæðis- skorts tþróttakennaraskóli tslands aö Laugarvatni er aö ég hygg sæmilega búinn tækjum i dag i sambandi viö alla kennslu. Það mun þó vera staðreynd, aö þessari tækni fleygir mjög ört fram, og þótt skólastjóri, kennarar og skólanefnd vildu auka og bæta þennan tækjakost er þaö vonlaust, vegna þess að húsrými og aðstaöa til þess að taka við þessum tækjum er ekki til. Það segir sig sjálft að æðri menntastofnun, sem á við slika aðstöðu að búa, er i miklum vanda stödd eigi hún á annað borð að standa undir nafni. Hvað er þá helst til ráða? Það sem stjórnvöld verða að mati undirritaðs að gera án fengið meðal forráðamanna fjárveitingavaldsins, sama er að segja um árlegan erind- rekstur skólastjóra, og for- manns skólanefndar, Þorsteins Einarssonar iþróttafulltrúa, á fund sömu aðila um áratuga skeið. Þaö er með öllu óskiljanlegt, að skóla- og ferðamannasetrið að Laugarvatni skuli ekki hafa náð betri og áþreifanlegri árangri varðandi uppbyggingu á iþróttaaöstöðu en raun ber vitni. Vegna hins mikla aðdráttar- afls, sem staðurinn hefur i sam- bandi við móttöku ferðamanna, ætti arösemi slikra mannvirkja að vera tryggð árið um kring, auk þess sem núverandi skóla- hald á Laugarvatni krefst stór- kostlega aukinnar aðstöðu á iþróttasviðinu. Þingmenn allra flokka og byggðarlaga sameinist Ég trúi þvi, að alþingismenn viti um og viðurkenni það aðstöðuleysi tKt að Laugar- vatni, sem hér hefur veriö lýst. Ég trúi þvi einnig, að þeir hafi hug á þvi að efla eftir föngum allt iþróttastarf i landinu, það hafa þeir sýnt á svo fjölmörgum sviðum. En það má aldrei gleyma undirstöðunni: Ef tKt, að Laugarvatni verður ekki gert kleift að útskrifa með sæmilegu móti hæfa leiðbeinendur og kennara er hætt viö að allt iþróttastarf i landinu dragist saman, auk þess sem iþróttaleg reisn okkar biöur stórkostlega hnekki. Hafsteinn Þorvaldsson, form. UMFI Nemendur tþróttakennaraskólans sýna fimleika á landsmóti 1965. Grasvöllurinn á Laugarvatni. Myndin er tekin á landsmóti UMFl 1965. Rætt við handboltastúlkur i leikhléi. Bústaður skólastjóra tþrótta- kennaraskólans i baksýn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.